Soror Á veginum gengur hún ekki lengur, Augun blá þreyttu, sem sál þinni breyttu, Sálin titrandi strengur um hug hennar bönd, bundið hafa hugarlönd barnæsku hennar og drauma, undir niðri enn krauma, útrétt hjálparhönd í myrkrið hún flýr, augum undan snýr og kæfir sitt hjarta, framtíðin bjarta, bjartdagsins dýrð og reikulum hug sem vinnur ei bug á hversdagsins for og finnur ei þor eða í sjálfum sér dug undir augum, bláleitum baugum brennur bál, lítil sál, full af draugum