Í fjörtíu nætur
fjörtíu daga
hefur rignt

glærir lækir
renna af húsþökum
niður strætin

rignt yfir rangláta
rignt yfir réttláta

og þú
veltir fyrir þér
hvorum hópnum þú tilheyri