það skín fölu ljósi
af mosavöxnum steinum

standa þarna í hlíðinni
horfa á ánna leka hjá

fyrir ofan liggja kaldgrá ský
síðustu regndroparnir hafa þegar fallið

þú stendur og horfir í hylinn
dökkur skuggi bærist í vatninu

í andakt sestu niður
og nýtur þessa augnabliks

morgunsárið blæðir út
og ljósleit sólin

og hljóðlega strýkur
andvarinn strain

þú stendur upp og hugsar
er til nokkuð kyrrara
en kaldgrár stein
sem bíður í brekkunni?