þar er visnað blóm
laufblöð þess þurr
og hörð
því regnið fellur til skýjanna

frá hjartanu sem blæðir
eins og döggin
sem fellur
frá skýjunum
að visnuðum blómum
með þurr laufblöð
og hörð