Hún dregur þig með sér
niður að vatninu
gefur þér appelsínur
og strýkur hönd um hár þitt
heldur fyrir augu þín
snertir huga þinn
með líkama sínum

og ef aðeins drukknandi menn
gætu séð hana eins og þú
myndu himnarnir opnast
og viska þeirra sökkva yfir þig
eins og steinn
með útréttri hendi
býður hún þér að fylgja
niður í vatnið

frá fílabeinsturni þínum
getur þú horft yfir vatnið
og þú óskar að þú hefðir
fylgt henni
en þú ferðast ekki blindu