Og þú brosir
svarthol augna þinna
gleypa hverja geimþokunna á fætur annarri

á meðan
líða minningar um himininn
hvítar maríutásur

strýkur með höndum þínum
yfir mjúkan akurinn

grefur tærnar
í myrkri moldinni

í blárri fjarlægðinni
leggjast símastaurar niður
hvort sem er farnir að fúna

í blárri fjarlægðinni
leggjast símtól á
ekki lengur notuð

í blárri fjarlægðinni
er á tali