Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Vor (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum
Yfir hvítar öldur hafsins heim að þúsund ára eynni, þar sem dökkir draumar svífa og dansa milli hvítra húsa, gráleit andlit vonlaus óska eftir björtum sumardögum, flýgur þreyttur lítill fugl sem fæstir taka eftir. En einn morgunn er þú vaknar, ef þú hlustar vel þá kannski heyrir, gegnum bílalæti og borgarnið, bjartan vorsins söng.

42 mánuðir (fyrir botni Miðjarðarhafs) (6 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum
Í fjörtíu og tvo mánuði gekk ég um borg óttans og fyrir himnana dró óútskýranlegt myrkur. Að hliði ég kom en það var brotið og inn streymdi hagl og blóð vellirnir loguðu að öðru hliði ég kom en það var brotið og þar sá ég logandi fjall í hafi að hinu þriðja ég kom en það var einnig brotið og þar var Remma að því fjórða ég kom en það hlið var brotið og í gegnum það sá ég dag verða nótt og nótt dag fimmta hliðið var brotið og inn runnu sporðdrekar svartir sem eilífar nætur hið sjötta var...

Martröð (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Eftir mörg þúsund morgna mun ég vakna og líta dökkleita dögun daggardropum í. Á sölnuðu grasi og gulnuðum laufum geng og geigur sækir að mér. Svört er sólin og varpar skugga í stað birtu. Og ég spyr -Hvers vegna? Hrundar borgir hvíla á hafsbotni liðins tíma, og blóði bornar öldur berast hægt að nýjum ströndum. Og askur allra tíma stendur allslaus og beinaberar greinar brothættar teygja sig upp til tunglslauss himins. -Hvers vegna? Úr djúpinu rís dauðraskip. Dökklitað og stýrislaust heldur í...

Um sígildar sögur (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hvernig stednur á því að þessi korkur, þe. sígildar sögur er ekki uppfærður? Ég man eftir einhverjum fimm, sex sögum sam hafa fegnið mun betri viðtökur en margar sagnanna sem eru þar en eru ekki komnar inn á þennan kork? Hvernig er valið inn á hann eiginlega? Verður hann einhvern tímann uppfærður?

Líkn (3 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þögn. Eða kannski ekki þögn. Frekar andhávaði, sem er alger andstæða hávaða. Þögn er nefnilega ekki andstæða hávaða, frekar en myrkur er andstæða ljóss. Myrkur er bara fjarvera ljóss, og ljós fjarvera myrkurs. Andstæða ljóss hlýtur að vera andljós, rétt eins og andstæða myrkurs er andmyrkur. Andljós er svo svart að það er ekki litur heldur áþreifanleg tilvera án ljóss, rétt eins og andmyrkur er svo hvítt að það er áþreifanleg tilvera án myrkurs. Þannig var þögnin. Eða öllu heldur andþögnin....

Álfaþoka (7 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Inn hún siglir sléttan fjörðinn, svífur létt að þorpinu. Þar standa lág hús, skip og bátar, síldarbrennsluturn og kirkja. Allt um kring er fjöll að finna, í fjarska glitrar jökullinn. Sólin skín og tunglið líka, stjörnur þessa ferðalags Allir gluggar festir aftur, enginn vill fá hana inn, hraðar hendur dyrum loka. Hrollköld álfaþoka ferðast inn fjörðinn þinn, forn og gamall galdrakraftur. Skelfur hver hönd, hvert bein, hvergi´ er skjól að finna. Álfar læðast milli hvítra húsa og hvísla illt...

Gunnar Gunnarsson (16 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna Gunnar Gunnarsson hefur ekki hlotið hærra undir höfði en raun ber vitni. Það leikur enginn vafi á því að hann er einn besti skáldsagnahöfundur okkar Íslendinga á síðustu öld. Vissulega kemst hann ekki sama flokk og Halldór Laxness en samt sem áður á Gunnar til perlur, svona inn á milli, sem standast fyllilega samanburð við bækur nóbelsskáldsins. Það er ein bók sem mér finnst alltaf standa upp úr hjá Gunnari. Bók sem, að mínu mati, á sér engan líka í...

Hvernig á að gagnrýna ljóð? (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði

Um stafsetningu og ljóðagerð (9 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Í tilefni af könnuninni sem er í gangi núna og þeim umræðum sem ég hef orðið vitni að hér langar mig til að leggja fáein orð í belg. Það virðist sem svo að sumum hér er nokkurn veginn sama hvernig ljóð eru stafsett, það er jú ,,tilfinningin" sem á að komast til skila. Þetta er að vissu leyti rétt, en þó ekki alveg. Ljóð eru miðill, táknmiðill fyrst og fremmst. Við notum tákn, þe. orð, til að koma til skila einhverri ákveðinni mynd, sögu eða tilfinningu. Ljóð er eini bókmenntamiðillinn, nema...

Réttlæti? (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Skilningslaus eru augu barnsins þegar þú dregur upp mynd af heiminum eins og hann er þegar þú dregur upp mynd af sjálfum þér eins og þú ert á vegg er blóð afmyndast mynd af þér Þú horfir reiður eitt augnablik en dofnar svo eins og gamalt brauð myglar þú samviska þín er eins og skröltormur í símaklefa Skilninglaus eru augu þín

ferskur fiskur (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Eftir fjórtán ára fangelsisvist er þér hleypt út í kuldann og þeir ætlast til að þú vitir eitthvað. En þú, varla að það spretti hár á höku þinni, nýr, ferskur eins og nýveiddur þorskur, ert étinn eins og hver annar smáfiskur. Smátt og smátt gefurðu eftir, lætur endurforrita þig, og verður eins og þeir vilja. Af því að þú veist að biluð tölva veldur þeim meira angri en dauði þinn.

Valið (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ef ég mætti að velja, á milli mín og hans, um hvorn okkar ætti að kvelja, -er svarið ekki augljóst? Takið hann! Takið hann og pínið, tryllta, já, bandóða svínið. Hann veður hér uppi, hæstur og mestur okkar (að honum finnst sjálfum), með yfirgang og læti, frekju og leiðindi og leyfir sér að hafa vit fyrir ,,þessum bjálfum” (eins og hann kallar okkur). Já, takið hann! Ég ræð mér ekki fyrir kæti, ég verð að sjá þessa sýningu. Á að ganga hingað inn? Æ, hve það er bjart hérna. Ha! Já, ég skal fá...

Ég veit allt! (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
,,Upp á heimsins hæstu fjöll hef ég klifið oft, og heimsins stærstu höf, hef ég siglt um öll. Það lítt þýðir við mig að deila, því að ég veit best. Minn hugur er á við þúsund heila, er ég hugsa mest. Og guðleg er gæðin gefin minni hugsun, og fá þau eru fræðin, framar mínu viti. Ég er fremri öllum af mannakyni, enda á ég enga vini.“ Þetta ljóð er um ,,vin”!

nótt (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Svört nótt yfir borgina svífur, sorg líður hægt yfir allt. Nákaldur vindur kyrrðina rýfur, og kroppar napurt í gömul sár. Öldur við kletta í óráði hjala, alls staðar hvílir nú brotthættur friður. Dauðleg náttúra liggur í dvala, dreymir og kvíðir því að verða til. Í fjarlægum tíma býr morgunn fagur, en feigð rís í hjarta þér. Hvenær, þú spyrð, hvenær kemur dagur? Hvenær mun loks birta til? Því allar öldur að lokum leita ljúfbjörtum ströndum að.

Húsið (11 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
ég ákvað að búa til smásögu byggða á ljóði sem ég orti fyrir nokkru..endliega segið mér hvað ykkur finnst Húsið Þegar ég var yngri fórum við pabbi oft í göngurferðir. Við gengum um allt, uppá klettótt fjöll, um víða dali og dimma skóga. Eitt skipti vorum við á gangi niður við sjó. Niður við sjávarmálið stóð gamalt, lágreist og dökkleitt hús. Það var nelgt fyrir alla glugga. Pabbi benti mér á það og sagði. -Í þessu húsi er reimt. Mörgum árum seinna eignaðist ég þetta hús. Ég nelgdi frá öllum...

í ljósaskiptunum (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þokan kemur í ljósaskiptunum yfir garðinn kyssir hvern legstein og hvert leiði. Þú veist að þú ert ekki einn, en samt er enginn á ferli. Einmana standa trén, eins og kaktusar í biblíueyðimörk, og varpa löngum skuggum inn í þokuna. Milli leiðanna vaxa svartar rósir sem þú þorir ekki að týna. Hér er enginn hlátur, enginn grátur eða reiði, bara ró og friður, -eilífur friður. Þú stingur höndum í vasana og gengur rólegur niður stígana. Leyfir þokunni að snerta andlit þitt. Og kvöldið kemur á...

Húsið (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þegar ég var yngri gengum við faðir minn niður í fjöru. Þar stóð lágreist, dökklitað hús við sjóinn og faðir minn benti á það og sagði: ,,Í þessu húsi er reimt”. Mörgum árum seinna eignaðist ég þetta hús. Ómur löngu liðinna veislna og rifrilda barst milli herbergja eins og grátur ungbarns, -angurvær. Ég bjó einn en var aldrei einmana. Á óveðursnóttum þegar saltrokið barði alla glugga og þak fannst mér eins og að söngur, undurblíður, liðaðist um hvern krók og kima hússins. Dag einn, stóð ég...

Hjálp....ASAP! (1 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Mig vantar að vita hvar ég get fundið Rogue Stone!!!?'

Draumur (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég horfi á mig þar sem ég ligg sofandi. Það stirnir af litríkum draumi og glóir allt um kring. Ég er allt og ekkert í eitt augnablik og að eilífu. Öldur óendanlegrar gleði og sársauka skola yfir mig og silkiklæddar strendur mínar. Hátt uppi í brúnleitum himni sveima albatrossar og hrægammar. Tré, sem hafa slitið rótum, svífa milli himins og jarðar, eins og tímalaust ljóð. Gul, íhvolf ský leka niður og snerta mig. Rautt auga trónir efst á himninum og sér yfir allt. Þegar ég vakna mun ég ekki...

Hvers lags ljóð höfða mest til þín? (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum

Hvert þessara bókmenntaforma höfðar mest til þín? (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum

morgun í borginni (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvít slæða liggur yfir borginni, eins og líkklæði úr mjúku silki hafi verið dregið yfir hana í nótt. Þú gengur niður frosnar götur, borgin er enn ekki vöknuð, allir sofa djúpt í glaumi og gleði drauma sinna. Inni á geðsjúkrahúsinu sofa menn sem geta mælt á þig spennitreyju með augunum, séð þig fyrir sér skoppa inni í bólstruðu herbergi eins og skopparabolti í borðtennis. Niður við höfnina liggja ástfangin skip róleg, kinn við kinn og einstaka koss. Þú gengur niður frosnar götur, borgin er...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok