Og yfir máninn skín

vísar
veginn heim til þín
við morgunroðann bæinn ber

og þú flýtir þér

í átt
að steinrunnum
andlitum

styttur bæjarins
bera kveðju
brátt ertu heima

ljúft
líða fjöllin hjá
langleit til himna

og þú hugsar

það boðar ekki gott að vera
bergnuminn

og síðustu mínútuna
getur verið að þú sért hamingjusamur

og síðustu mínútuna
getur verið að styttur bæjarins bíði eftir þér

og síðustu mínútuna
getur verið að fjöllin taki eftir þér

en eftir síðustu mínútuna er allt um seinan

eftir á
líta fjöllin
leið til himna

eftir á
stara stytturnar
sorgar til jarðar

eftir á
er vegurinn rauður
en bæinn við morgunroðann ber

og yfir máninn skín