Morgunn einn rís sólin ekki. Myrkur grúfir yfir öllu og það er hrollkalt. Golan ýfir upp ryk af margförnum vegunum en fljótlega fer að hvessa. Þetta er enginn venjulegur stormur, heldur ýlfrandi, brjáluð barátta endalausra vindhviða sem virðast koma úr öllum áttum, þær skella hvor á annarri og glíma hátt yfir landinu. Greinar, fuglar og plöntur, allt saman þýtur um í storminum, hátt upp í loft. Síðan hefst regn, og él, og snjór, allt í einu á ómögulegan hátt, um leið slær niður eldingum og...