“Fáranlegt!…

FÁRANLEGT!…

…Viltu vita hvað er fáranlegt!?

Það er fáranlegt að eyða mörg hundruð milljónum í geimferðalög á meðan þriðji heimurinn sveltur!!!
Það er fáranlegt að Ísrael skuli komast upp með þjóðarmorð.
Það er fáranlegt að enn skuli vera til kjarnorkuvopn.

Þögn

Það er fáranlegt að ég skuli enn hlusta á þig.
Það er ekki fáranlegt að ég skuli ekki vilja vera lengur með þér.

Þögn

Það væri fáranlegt ef að ég myndi ekki hætta með þér…”

Símtólinu skellt á hinum megin.

Djöfull…
Andskotans djöfull…hún gerir mann brjálaðan…
Helvítis t…

Kann…

Nei, helvítis andskotans djöfull

Kannski…kannski var ég…
Full orðhvass…eins og mér einum er lagið

djöfulsins andskoti…stundum veit ég ekki
hvort okkar ég hata meira