Stundum heyri ég rödd þína
bergmála í tómum gosdósum
sem renna niður strætin

af og til sé ég andlit þitt
í skítugum framljósum
ryðgaðra bíla

það kemur fyrir að
kolsýrt andrúmsloft borgarinnar
leiki mig grátt
og þá finnst mér eins og
þú snertir mig

en hvernig sem ég reyni

HVERNIG sem ég reyni

þá get engann veginn munað
hvað þú heitir.

Ef þú sérð þessa auglýsingu
Og kannast við mig
hringdu þá í mig
í síma 550-0666

Einn munaðarlaus