Þegar skýin verða rassbleik
og sólin silast niður fyrir sjóndeildarhringinn
og við sitjum með hvort sitt kókglasið
og glápum á hollývúdaða ást.

Þegar við stoppum á blóðrauðum ljósum
í kransæðastíflum borgarinnar
og þú hermir eftir asnalega manninum
í bílnum við hliðina.

Þegar við setjumst niður
inni á troðfullum skemmtistað
þar sem allir virðast reykja
og þú segir:
Umm, hvað það er góð lykt af þér!

Þegar sólargeislarnir rífa þig á fætur
alltof seint og þú rýkur af stað
með hárið allt út í loftið og stýrur í augum
en manst að kyssa mig bless!