Regnið fellur lárétt
og öldur froðufella við ströndina
af bræði.

Djöfulsins rok!

Plastpokar flýja í ofboði
og pollar rembast við að halda
sér fastir við malbikið.

Helvítis veður!

Ég þar fað halla mér 45 gráður
fram á við til að geta gengið.

Andskotans rugl!

Djöfull hata ég þetta veðravíti.
Það er alltaf rok hérna.

Svitaholan Akranes