Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gmaria
gmaria Notandi frá fornöld 1.684 stig

Nær barnið þitt í svefnlyf ? (14 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Aukinn notkun svefnlyfja og róandi lyfja er áhyggjuefni ekki hvað síst vegna þess að komið hefur í ljós að ekki finnast á því skýringar hvers vegna unglingar hafa undir höndum slík lyf. Notkun á Ritalíni hefur margfaldast að öllum líkindum vegna síaukinna greininga og meðferðar á hegðunarvandkvæðum á unga aldri ? Er sú aukning sjálfsögð og eðlileg, í ljósi talna, eða kann svo að vera að hér líkt og í Bandaríkjunum kunni að hafa verið farið gert of mikið af þvi að greina vandamál og meðhöndla...

Dómur fallinn um afmarkað tjáningarfrelsi. (146 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Í fyrsta skipti á Íslandi er fallinn dómur er setur mörk og skorður við tjáningu skoðana á opinberum vettvangi, að vísu í undirrétti, og varðar það atriði hegningarlaga að einhver aðili skuli ekki ráðast með orðum að hópi manna, með háði eða rógi. Í þessu tilfelli var um að ræða skoðanir manns í blaðaviðtali,þar sem sá hinn sami tjáði sig um íbúa annarrar heimsálfu. Í Kastljósi komu fram verjandi mannsins og sitjandi alþingismaður, úr röðum kvennalista sáluga ,til umræðu um þennan dóm....

Lyfjaát landsmanna. (33 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hafið þið spekúlerað í því hve mikill hluti skattprósentu okkar fer í það eitt niðurgreiða lyf, við öllu mögulegu jafnt sem ómögulegu. Þar er um óheyrilega háar upphæðir að ræða, og með ólíkindum satt best að segja hvernig finna má rökstuðning fyrir slíkum lyfjaaustri. Getur það verið að afi og amma þurfi nú fyrst að fara að sofa við svefntöflur, af því þau fluttu í þjónustuíbúð aldraðra, það finnst mér skrítið ? Er ekki nóg að þurfa að taka lyf við liðagigtinni, blóðþrýstingi, maganum, þótt...

Fatlaðir og sjúkir á vergangi ? (1 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er slæmt að heyra að landssamtökin Þroskahjálp skuli hyggja á málssókn, til verndar hagsmunum skjólstæðinga sinna. Raunin er sú að ríki og sveitarfélög hafa nú þegar tekið á sig hinar ýmsu skuldbindingar í formi laga , sem þeim hinum sömu virðist ganga illa að standa undir. Þetta er slæmt og um má spyrja til hvers var verið að setja þetta og hitt í lög, ef framkvæmd þeirra gengur síðan ekki eftir. Sem eitt lítið dæmi er t.d að finna ákvæði í Lögum um réttindi sjúklinga, undir Gæði...

Týndar rjúpnaskyttur, stórfrétt ? (28 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er ein af þeim er pirrast ár hvert er fjölmiðlar segja dag hvern frá því að haustin að rjúpnaskyttur hafi týnst og fundist. Miðað við þær leitir sem alltaf þarf að gera varðandi þetta “ hobbý ” þá finnst mér ekkert að því að rjúpnaskyttum sem fara að lágmarki þrjár saman sé gert skylt að hafa með sér GPS staðsetningarbúnað með byssunni, þannig að hægt sér að fylgjast með ferðum þeirra gegnum gervihnött og spara leit ef þeir hinir sömu telja sig villta. Einnig mætti athuga...

Mengun af völdum nagladekkja. (13 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hef enn ekki Asthma á háu stigi en hef þó mátt meðtaka vott af einkennum hans. Ég bý á höfuðborgarsvæðinu og árlega um leið og nagladekkin eru komin í notkun, versnar heilsufar mitt til muna. Hvern dag er ég keyri til vinnu minnar, horfi ég á þykkan brúnan mökk við sjónarrönd yfir haffletinum, einkum og sér í lagi í logni. Nær ekkert hefur verið að gert til þess að minnka þennan mengunarvald enn sem komið er og þung ökutæki sem hreint og beint spæna upp malbikið, þykja enn af hinu góða,...

Sjálfbær þróun á Íslandi. (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það verður mjög forvitnilegt að vita hvað kemur út úr ráðstefnu sem hér er haldinn nú á vegum FAO , um sjálfbæra þróun í sjávarútvegi. Getur það verið að heimsins færustu vísindamenn sem hingað eru komnir, hafi ef til vill fleiri útreikninga meðferðis um sjálfbæra þróun en menn hafa þykjast vilja vita af hér á Íslandi enn sem komið er hvort sem er í sjávarútvegi eða landbúnaði. Sjálfbæra þróun er nefnilega ekki hægt að ræða með raun réttu hvorki í sjávarútvegi eða landbúnðaði, þar sem...

Endurskoðun fiskveiðistjórnunar, til málamynda ! (6 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sem aldrei fyrr höfum við skattborgarar sóað fé í nefnd sem hafði það markmið að skapa sátt í fiskveiðistjórnum, en skilaði “ MÖRGUM ÓLÍKUM NIÐURSTÖÐUM ”. Fyrir það fyrsta átti nefnd þessi að segja af sér þegar í ljós kom að ekki væri hægt að ná niðurstöðu meðal nefndarmanna og láta skipa aðra menn í nefndina sem hugsanlega gætu hafa komist til þess að vinna þá eðlilegu vinnu að skila sameiginlegu áliti. Annað er hneyksli og dæmi um ófagleg vinnubrögð í þessu annars stóra hagsmunamáli er...

Ljós réttlátra og lampi óguðlegra. (94 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“ Ljós réttlátra mun skýra skært en á lampa óguðlegra mun slokkna ” segir í Orðskviðum Biblíunnar. Í Orðskviðunum er að finna ráð til handa okkur kristnum mönnum til að lifa eftir okkur til góðs og farsældar. Lifum við í samræmi við þann kristna boðskap sem Biblían birtir okkur ? Er náungakærleikurinn og virðingin, allsráðandi í samskiptum manna á meðal eða má lítið út af bera svo ekki komi til “ stríðs ” millum manna um hvaðeina sem upp á kemur, þar sem spjótakast orða rifur og eyðileggur...

Meira fjármagn í kvensjúkdóma ! (27 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Nú er rætt um aukna gjaldtöku af sjúklingum til þess að reka heilbrigðiskerfið. Ég fæ satt best að segja ekki séð annað en þeir sem þurfa á glasafrjógvun að halda greiði nú þegar nokkuð mikið umfram aðra sjúklinga, og forvitnilegt væri að fá sundurliðaða kostnaðarþætti í því dæmi, frá a- ö, sem og samanburð við önnur lönd, sem og hve mikið er niðurgreitt af ríkinu í því sambandi. Ég tel hins vegar að heilbrigðiskerfið í heild sinni þurfi á uppskurði að halda, varðandi fjárveitingar og...

Lagasetning og framkvæmd laga. (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Loksins komu fram í fjölmiðlum nú í dag mótmæli formanna ríkisstofnana varðandi það atriði að tilraunir þeirra til þess að hafa með höndum framkvæmd settra laga í landinu, virðast oftar en ekki mega þurfa að lúta gagnrýni höfunda laganna, þ.e. alþingismanna sjálfra. Því miður held ég að hamagangur og læti við lagasetningu hvers konar undanfarin ár og áratugi einkum fyrir jólaleyfi og sumarfrí hins háa Alþingis kunni að hafa orðið til þess að menn hafi allsendis ekki gaumgæft til hins ýtrasta...

Össur. (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Formaður Samfylkingar var í viðtali í Kastljósi um hin ýmsu mál, en sá hinn sami hefur vart verið sýnilegur í fjölmiðlum um langan tíma. Það fyrsta sem mér datt í hug eftir viðtal þetta að þessi flokkur væri skoðanalega séð miðað við skoðanir formannsins flokkur tækifærissinna er telja sig til hægri þegar það hentar og til vinstri þegar almenningsálitið segir svo en þó oftast í miðjumoði skoðanaleysis, að undanskildum einum þingmanni. Varðandi virkjanamálin virtist formaðurinn reyna að dansa...

Hvernig velferð viljum við ? (56 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég tel satt best að segja með ólíkindum hve mikið vor þjóð lætur bjóða sér í því efni að greiða mjög háa skattprósentu í heildina litið en fá til baka, BORGAÐU MEIRA FYRIR ÞJÓNUSTUNA, EÐA BÍDDU BARA. Alls konar gjöld er innihalda t.d virðisaukaskatt til viðbótar, við fasteignagjöld, og alls konar skerðingar allra handa á hinum ýmsu tilfærslum með peninga fram og til baka í formi bóta hvers konar sem hið opinbera innir af hendi. Ógreidd bifreiðagjöld sem dæmi eru til dæmis skuldajöfnuð af...

Áfengi og heilsutjón. (35 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er slæmt til þess að vita að engar opinberar áróðursherferðir gegn áfengi eru í gangi af hálfu hins opinbera, þótt alls konar vandamál tengd ofneyslu þess s.s. drukknir ökumenn, og ofbeldiverk undir áhrifum áfengis séu nær daglegt fréttaefni fjölmiðlanna. Afleiðingar ofneyslu áfengis félagslega og heilbrigðislega, eru stórkostlegar í okkar samfélagi þótt meðferðaraðilar til handa alkóhólistum vinni gífurlegt starf. Það er ekki aðeins að ofneytendur áfengis, fækki virkum heilafrumum í...

Margeir og viðskiptasiðferði ? (6 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ólafur G. Einarsson sakar Margeir Pétursson um óheilindi innan stjórnar Lyfjaverslunar, varðandi kaup á Frumafli. Hann talar einnig um skort á viðskiptasiðferði. Getur það verið að viðskiptalífið sé svo gegnsýrt af gróðasjónarmiðum að lögfræðingar ástundi lygar, í stjórn stórfyrirtækja til handa öðrum stjórnarmönnum ? Margeir hefur verið innheimtulögfræðingur hjá Búnaðarbankanum og að mig minnir þegið styrki frá honum á skákmótum. Varla hefur slíkt nokkuð að gera með álit bankans á...

Pólítísk spilling. (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Spilling í stjórnmálum er einkum þess eðlis að flokkar við stjórnvöld á hverjum hygla flokksmönnum sínum hvað varðar embætti og stöðuveitingar, ef til vill á kostnað hæfni og menntunar til starfa. Hafa Seðlabankastjórar t.d. eða aðrir bankastjórar ríkisbankanna, ekki miklu minni viðskiptamenntun en undirmenn þeirra margir hverjir ? Hverjir sitja í ráðum og nefndum ríkisins í hinum ýmsu verkefnum ? Er formennska í nefndum þessum ekki alla jafna falin þeim er fellur í flokk ráðandi aðila, þótt...

Siðspilling ? (15 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Er það ekki slæmt þegar góðir og gildir siðir, eins og almenn kurteisi, hreinlega tapast í tímaleysi nútímamannsins á lífsgæðakapphlaupabrautinni, þar sem sá hinn sami keppist við að sanka að sér veraldlegum umbúnaði, helst á einhvern veg betri en náungans. Reglulegir matartímar á heimilum heyra sögunni til og laugardagsmáltíð í borgarsamfélaginu, er pitsa, sem keyrð er heim, á bensínbílum pitsastaðanna af sendlum er flýta sér mikið. Börnin fá farsíma, þannig að alltaf sé hægt að hafa við...

Umhverfisspilling ! (11 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Núverandi skipulag í aðalatvinnugreinum okkar Íslendinga, sjávarútvegi og landbúnaði er enn nær eingöngu undir formerkjum rányrkjustefnu frumskógarlögmálanna, á þann veg að við föngum fisk úr sjónum, mestmegnis með þungum toghlerum sem dregnir eru eftir hafsbotni af stórveiðiskipum, þar sem eyðilegging fæst ekki rædd af hálfu útgerðaraðila. Því til viðbótar er óhóflegu magni af smáfiski hent aftur í sjóinn, því enginn hvati finnst fyrir því í hinu heimskulega kerfi að hirða þann afla, sem...

Eftirlit hins opinbera með sjálfu sér ! (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mál þingmanns Sunnlendinga varðandi sambland eiginhagsmuna og almannahagsmuna, vekur vissulega til vitundar um hvernig eftirlitshlutverki hins opinbera sé háttað, gagnvart þeim aðilum sem framkvæmdavald er falið. Við skattgreiðendur borgum starfssemi fjölmargra eftirlitsaðila er starfa lögum samkvæmt til eftirlits varðandi einstakar framkvæmdir hins opinbera, hvort sem þar er um að ræða viðgerðir á Þjóðleikhúsinu eða aðgerðir á mannslíkamanum í heilbrigðiskerfinu, vegaframkvæmdir eða vinnu...

Lyfjanotkun almennt. (32 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mér hefur stundum þótt nóg um þegar ég hef séð þau ósköp af lyfjum sem eldra fólk tekur inn við öllum þeim kvillum er kunna að hrjá, á efri árum. Við Íslendingar eigum að ég held enn Norðurlandamet í notkun Prozac, þótt slíkt dreifist sennilega á alla aldurshópa. Eru öll þessi lyf nauðsynleg ? Fær almenningur nógu góðar upplýsingar um verkun og samverkun hinna ýmsu tegunda, ég tala ekki um þegar taka þarf inn kanski tíu tegundir mismunandi lyfja á sama tíma ? Er viðhorf okkar kanski það að...

Hverju þarf að breyta í íslenzku samfélagi ? (25 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvað er helst að í vorum stjórnarháttum og skipan mála ? Þarf að gera miklar breytingar og þá hverjar og hvernig vilja menn forgangsraða verkefnum ? Fyrir mína parta vildi ég sjá komið á fót stjórnlagadómstól, hið allra fyrsta til þess að auðvelda dómstólum starfssemi sína, og tryggja að ekki gangi lög í gegn um Alþingi sem ekki standist stjórnarskrá landsins. Lög á lög ofan jafnvel um nær sömu atriði allt aftur í Jónsbók, þar sem teygja má og túlka fram og til baka sömu hlutina, hlýtur að...

Náttúruvænar fiskveiðar. (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er ekki nóg að hafa kvóta á fiskistofna til veiða, ef veiðarfæri þau sem notuð eru, raska eða eyðileggja hluta lífríkis hafsins. Togveiðihlerar stórveiðskipa sem skrapa botninn og ryðja til dæmis burtu heilu kóralrifjasvæðunum, eins og Norðmenn sýndu fram á með neðansjávarmyndatökum, hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir okkur Íslendinga. Hlutfall stórveiðiskipa annars vegar og smábáta hins vegar í fiskiskipaflotanum í heild, þarf að skoða með það að markmiði að nýting hafsvæðanna sé í...

Tilgangur mannsins ? (36 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hver er tilgangur mannsins ? Getur verið að maðurinn hafi á köflum misst sjónar á hinum raunverulega tilgangi er felur í sér hans eigin hamingju ? Hvað er hamingja ? Er hamingjan fólgin í veraldlegum gæðum eða andlegri vellíðan ? Sækjum við þjónustu við andlegt heilbrigði nú til dags á sama hátt og við förum með bílinn okkar á verkstæði ? ´Þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör en ég lít svo á að tilgangur mannsins sé sá að kunna fótum sínum forráð i umgengni við móður náttúru og hver...

Lífrænn landbúnaður ? (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er hörmulegt til þess að vita að enn hefur stjórnvöldum ekki tekist að koma af stað nokkrum þeim aðgerðum t.d. í formi aðlögunarstyrkja svo bændur geti með mögulegu móti snúið sér að lífrænni ræktun, og nytjun lands, ( og mannvirkja ) í stað þess að láta það fara í auðn. Lög um lífræna framleiðslu litu dagsins ljós, árið 1994 að mig minnir, en fátt annað hefur gerst af hálfu hins opinbera, eins og áður segir, en fátt er mikilvægara hvað varðar framfylgni umhverfis og byggðamarkmiða hvers...

Sannleikurinn sigrar. (5 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Gegnum mannkynssöguna alla hefur það reynst manninum afar óhagkvæmt að fara með ósannindi, hvort sem er í stóru eða smáu. Sannleikurinn verður nefnilega alltaf ofan á hvort sem okkur mönnunum líkar betur eða ver, fyrr eða síðar. Sökum þess gengur þeim mun betur gangan fram á veginn er hafa tileinkað sér þann eiginleika að segja satt. “ Oft má satt kyrrt liggja ” segir einn málsháttur okkar Íslendinga, og hann ber okkur boðskap þess að enginn þurfi að ausa úr vitbrunni sínum því sem aðra menn...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok