Ég hef enn ekki Asthma á háu stigi en hef þó mátt meðtaka vott af einkennum hans. Ég bý á höfuðborgarsvæðinu og árlega um leið og nagladekkin eru komin í notkun, versnar heilsufar mitt til muna.
Hvern dag er ég keyri til vinnu minnar, horfi ég á þykkan brúnan mökk við sjónarrönd yfir haffletinum, einkum og sér í lagi í logni. Nær ekkert hefur verið að gert til þess að minnka þennan mengunarvald enn sem komið er og þung ökutæki sem hreint og beint spæna upp malbikið, þykja enn af hinu góða, þótt eytt sé stórkostlegum fjárhæðum í gatnaviðgerðir ár hvert.
Mér hefur meira en dottið í hug að fara að ganga með klút eða grímu fyrir vitunum um leið og nagladekkjanotkun hefst, til þess að reyna að fyrirbyggja hin leiðinlegu heilsufarslegu vandkvæði sem þetta tímabil árs inniheldur.
Oftar en ekki hefur þetta verið það tímabil sem pestir allra handa ná hámarki, og ég held að þurfi ef til vill að athuga aðeins betur sem orsakavald.
Það er þó gott að vita að borgaryfirvöld hyggjast auka mengunarmælingar. Það er af hinu góða.