Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gmaria
gmaria Notandi frá fornöld 1.684 stig

Siðfræði markaðslögmálanna ! (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég hlýddi á þátt í sjónvarpi ( Kastljós ) nú fyrir nokkrum dögum þar sem tveir ungir menn menntaðir í viðskiptasiðfræði voru til viðtals, vegna uppákoma í íslensku viðskiptalífi undanfarið þar sem stjórnmálamönnum virðist hafa mistekist eitthvað í því að girða girðingar í formi laga á hinum íslenska fjármálamarkaði, varðandi t.d. svonefnda stofnfjáreigendur og möguleika þeirra hinna sömu til þess að verja fé sínu á hinum frjálsa íslenzka markaði. Í máli þeirra kom fram að viðskiptasiðferði...

Ofstyrkt verksmiðjuframleiðsla innan ESB. (24 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Svo virðist sem allt í einu hafi komið til kúvending í stefnu Evrópusambandsins í landbúnaðarmálum, þ.e. ráðamenn virðast hafa áttað sig á því að ágæti stærri eininga er ekki endilega það sem kemur til með að gilda í matvælaframleiðslu til framtíðar undir formerkjum umhverfissjónarmiða og efnhagslegrar afkomu í heild. Mikið var að beljan bar var það fyrsta sem mér datt í hug, því hve lengi skyldu vísindamenn vera búnir að benda á þessa staðreynd og hve lítið hafa stjórnmálamenn lagt við...

Þjónusta við heilbrigði á Íslandi. (18 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Íslensk heilbrigðisþjónusta tekur til sín mestan hluta okkar skattpeninga ár hvert, samt sem áður eru það ekki margir sem hafa haft áhuga á því að ræða hvernig þeim peningum skuli varið sem þangað fara nema kanski þeir er heita sérfræðingar hvers konar innan þjónustunnar. Raunin er sú að Íslendingar hafa dregist aftur úr öðrum þjóðum varðandi heildarútgjöld til heilbrigðismála undanfarin ár og áratugi. Ítrekað hefur verið reynt að hagræða í rekstri sjúkrahúsa en illa gengið því engin hefur...

Skaðsemi líkamlegra refsinga gegn börnum. (61 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Í dag hlýddi ég á viðtal við Sæmund Hafsteinsson sálfræðing á útvarpsstöðinni Bylgjunni vegna framkominna rannsókna í Bandaríkjunum á skaðssemi þess að beita börn líkamlegum refsingum, svo sem að “ rasskella ” þau. Í máli Sæmundar kom m.a. fram að “ allar refsingar er fela í sér hluti eins og ofbeldi, niðurlægingu, líkamsmeiðingar, sárindi, hræðslu, ótta, og ógnanir ” þær séu ekki góðar aðferðir. Sökum þess að að slíkt skilur ekkert gott eftir sig. Í máli Sæmundar kom fram að þetta úrræði að...

Kynlífsiðnaður og vændi. (220 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nefnd á vegum dómsmálaráðherra hefur skilað af sér tillögum m.a.með það að markmiði að gera vændi löglegt á þann máta að konur séu fórnarlömb er stunda vændi og það skuli falið innan veggja þar sem það ekki er sjáanlegt yfirvöldum að skilja má af skýrslu þessarri. Á sama tíma kemur það fram í fréttum að kynlífsiðnaður velti meiru en fíkniefnasala, þ.e. sala á konum milli landa til þess að stunda slíkan iðnað og konur frá öðrum löndum séu hér á landi í störfum sem slikum. Satt best að segja...

Auðlegð. (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Lífið er til þess að finna og vinna, sigur í afrekum athafna sinna. Öðlast og skilja, að hver athöfn og orð, spor okkar markar, við mannanna borð. Vor auður er einkum að endingu sá, er uppspretta kærleikans, byggir helst á. Kærleikur heldur í sannleikans hönd, saman þeir sigra af ströndu á strönd. Vort auðuga málið við eigum að virkja, vekja upp vísugerð, fara að yrkja. Finna svo hvernig í hrynjandi tónum, hefjum við okkur á flug upp úr skónum. úr skúffum frá "96. GMÓ. með fullri virðingu...

Hvernig stjórnmálamenn viljum við? (6 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Í ljósi þess að virkt lýðræði megi þróast í landi voru tel ég að einmitt um þessar mundir getum við með góðu móti myndað okkur afsöðu þess efnis hver okkar kjörnu fulltrúa kann að vera hæfastur til þess að efla lýðræðisþróun, og auka veg mannréttinda í voru landi og hver ekki. Annar hvor ríkisstjórnarflokkanna hefur haldið um stjórnvaldstauma varðandi heimsókn Kínaforseta og framkvæmd hennar, og þau afrek munu skráð á spjöld sögunnar, en einnig það atriði að stjórnarandstaða hefur nýtt sér...

Íslenzkt nútímalýðræði ! (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Atburðir undanfarinna daga ættu að geta kennt okkur Íslendingum eitthvað, hvað varðar það atriði að ekki verður leikið tveim skjöldum í því efni að viðhafa lýðræðislega hætti, með heilindum, nema að slíkt megi finna í athöfnum stjórnvalda að einu og öllu leyti. Því miður held ég að sú sé ekki raunin hvað varðar það atriði að meina fólki aðgang að landinu vegna mótmæla við heimsókn þjóðhöfðingja annarrar þjóðar, þar sem vitað er fyrirfram að lotið hefur ádeilu varðandi virðingu mannréttinda...

Íslendingar í sárri fátækt. (51 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég hlýddi á fréttir á Bylgjunni í dag þar sem það kom fram að um 90 fjölskyldur leita í viku hverri til Mæðrastyrksnefndar, varðandi aðstoð til þess að fæða heimilismeðlimi. Það kom einnig fram í sömu frétt að margir þessir aðilar væru með vísan til Mæðrastyrksnefndar frá Félagsþjónustu eða prestum þjóðkirkju. Jafnframt að aukning í leitan til nefndarinnar hefði aukist mjög. Ef áfram heldur sem horfir þá eru það um 12 fjölskyldur á degi hverjum sem ekki hafa nægilega innkomu til lifibrauðs á...

Skuldir heimilanna. (27 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Afar fróðleg umræða fór fram í Kastljósinu í gær um skuldaaukningu heimilanna og fjárfestingar einstaklinganna og skuldsetningu í veraldlegum verðmætum í formi steinsteypu og ökutækja. Þar var lítillega drepið á þátt banka í t.d. veittum yfirdráttarheimildum til handa einstaklingum og ábyrgð þeirra hinna sömu í því efni en þar kom m.a fram spurningamerki við hin óheftu útlán í “ meintu ” góðæri. Sem dæmi sendi einn banki sínum viðskiptamönnum nýtt kort veltukort að mig minnir á sínum tíma...

Hamlar markaðshyggjan lýðræðisþróun ? (45 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það veldur mér vissulega áhyggjum sem mörgum öðrum að framboðum til sveitarstjórnarkosinga er mismunað í krafti fjármagns til auglýsinga hvað varðar þáttöku í umræðum um málefni að virðist, burtséð frá því hvaða flokkur á í hlut. Stjórnvöld virðast ekki hafa til þess burði að gæta jafnræðis til handa frambjóðendum, lagalega séð. Með öðrum orðum ljósvakamiðlar eða aðrir, hverju nafni sem þeir nefnast virðast því geta flokkað framboð skoðana í ljósi stærðareininga framboða og að virðist...

Skaðabótamál vegna minna kláms ! (140 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Klámkóngar segjast tapa milljörðum ef bann við einkadansi tekur gildi og hóta málssókn á hendur Reykjavíkurborg. Mjög fróðlegt væri að vita í þessu sambandi hve miklar skattekjur slík starfssemi hefur skilað í formi skatttekna til hins opinbera s.s. virðisaukaskatti af útseldri þjónustu. Jafnframt væri fróðlegt að vita hve miklu “ menningarlegu gildi ” stöðum þessum hefur verið ætlað að þjóna, í næturlífsmenningu höfuðborgar í norðri, á heimsvísu, menningu sem að mínu áliti nær ekki mikið...

Uppfyllt kosningaloforð.! (21 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það er alltaf jafn fróðlegt að fylgjast með loforðaflóðinu sem dynur á manni fyrir kosningar í landinu, þar sem hver um annan þveran keppist við að lofa að gera betur en hinn, þótt allir geri ætíð sitt besta. Keppnisandinn og vígahamurinn virkjar hinn venjulega mann til þess að standa vörð um “ sína ” á hverju sem dynur og oft fara þar rök fyrir lítið, svo mikið er víst. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna fyrrverandi borgarstjóri sem nú er forsætisráðherra hefur síkar vinsældir meðal...

Til hamingju með auðlindagjald Íslendingar. (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Alþingi Íslendinga hefur nú borið gæfu til þess að samþykkja auðlindagjald í sjávarútvegi, sem markar spor, til framtíðar og forðar því að auðlindir okkar kunni að ganga kaupum og sölum, án þess að landsmenn allir njóti góðs af. Ef til vill gera sér ekki margir grein fyrir því hve hér er um mikla tímamótaákvörðun að ræða, enn sem komið er, en komandi kynslóðir eiga eftir að njóta góðs af þessari ákvarðanatöku í hinum margvíslegustu myndum því hér er um að ræða aðalatvinnuveg þjóðarinnar, sem...

Þúsund orð á færibandi... (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Alltaf finnst mér það vera séríslenskt fyrirbæri að hið háa Alþingi skuli þurfa að klára hvert þing með þrefi fram á nætur, fyrir þinglok. Ég get ekki, með nokkru móti séð að skipulag þurfi að vera með þeim hætti að þingmál og frumvörp sitjandi stjórnvalda sem þeir hinir sömu hafa haft í hyggju að reyna að koma fram þurfi að koma fram á færibandi rétt fyrir þinglok, þannig að ekki sé mögulegt að ræða mál með viðunandi hætti af hálfu lýðræðislega kjörinna leiðtoga allra með tilheyrandi tíma...

Kynbundinn launamunur á Íslandi. (60 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum
Nú nýlega kom það fram í fréttum að nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, hefur af því áhyggjur hve mikil kynbundinn launamunur er á Íslandi. Sjálf hefi ég einhvern tímann rætt um nauðsyn þess að lögbinda lágmarkslaun, og tel það laun fyrir fullt starf 16 ára á vinnumarkaði ætti aldrei að geta verið undir viðmiðun yfirvalda við framfærslumörk einstaklings. Raunin er allt önnur og fyrirtæki komast upp með það að greiða ungu fólki laun, sem illa eða ekki duga til framfærslu fyrir viðkomandi. Ef...

Læknadóp og brauð. (20 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum
Það er okkar íslenzka eftirlitskerfi í heilbrigðismálum lítt til sóma að fulltrúi hins opinbera skuli ekki hafa tölur um það hver margir heilbrigðisstarfsmenn hafi verið sviptir leyfum á ári, einhverra hluta vegna. Þegar verið er að ræða um það atriði að skipulags og eftirlitsleysi kunni að orsaka það að starfsmenn heilbrigðiskerfisins viðhaldi fíklum í meðferð við slíku, vegna þess að einn sérfræðingur veit ekki hvað annar gerir í útskrift lyfja til handa fíklum, þá HLÝTUR að þurfa að koma...

Of mörg lyf = heilbrigðisvandamál ! (26 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum
Loksins hefir það komið fram hér á Íslandi, hve mikið áhyggjuefni það er hve margir aðilar ávísa lyfjum til viðbótar við það magn alls konar fæðubótarefna og heilsuvara sem markaður hefur að bjóða, en enginn einn aðili hefur yfirsýn yfir ávísaða lyfjaskammta, sem aftur leiðir af sér að tíunda hver innlögn á sjúkrahús er af völdum samverkandi þátta þeirra hinna sömu lyfja sem viðkomandi innbyrðir. Bandarískur prófessor, Linda að nafni var hér á ferð í boði íslensks lyfjafyrirtækis þar sem...

Mannkyn grætur. (114 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum
Hvern einn einasta dag sem líður heyrum við að láti saklausra borgara, í stríðsátökum fyrir botni Miðjarðarhafs, vegna deilna um landssvæði og yfrirráðarétt. Með ólíkindum er að þjóðarleiðtogar vestrænna samfélaga skuli ekki láta sig mál þessi varða, meira en svo að bíða og sjá hverju fram vindur og ef til vill leggja á Bandaríkjamenn að skerast í leikinn. Það eru til hinar ýmsu aðgerðir til þess að beita þrýstingi en ef til vill eru opinberar yflirlýsingar sú aðgerð er felur í sér hvað...

Sjö milljarðar án tekjuskatts á sjö árum ! (34 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Samkvæmt úttekt Morgunblaðsins á afkomu sjávarútvegsfyrirtækja sem birt er í blaðinu í dag, hefur greinin skilað hagnaði, frá árinu 1994,til 2001, en þrátt fyrir það ekki greitt KRÓNU í tekjuskatt til ríkisins. Að segir í grein Mbl. er ástæðan sú hægt hefur verið að yfirfæra skattalegt tap á móti hagnaði við sameiningu hinna ýmsu fyrirtækja í greininni. Með öðrum orðum núverandi sjávarútvegur skilar þjóðinni í heild ekki nokkru í formi skattekna. Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar ! Á sama tíma er...

Uppeldi í ólíkum menningarsamfélögum. (36 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mér leikur forvitni á þvi að vita hvort foreldrar þekkja almennt til þess hverning uppeldisaðferðir innflytjendur frá ólíkum menningarsamfélögum er setjast hér að viðhafa, þar sem líkamlegar refsingar í formi þess að nota ólar til þess hirta stúlkubörn er viðhaft. ( dæmi sem ég þekki persónulega ). Mér stórbrá við að heyra þetta en fór að kynna mér hlutina agnar ögn og komst að því að slíkt tíðkast einfaldlega hjá hluta innflytjenda sem komnir eru hingað til lands. Þeir hinir sömu þekkja...

Gæðastýring í landbúnaði. (38 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Nú nýlega hefur verið undirritaður samningur millum Bændasamtaka landsins og ríkisins um fjárstuðning í formi gæðastýringar þar sem tæplega hálfum milljarði er varið í þetta verkefni af hálfu stjórnvalda. Nokkur orð hafa verið látin falla af hálfu ráðherra þess efnis hve nauðsynlegt sé að neytendur geti rakið framleiðsluferlið til framleiðanda og þessi gæðastýring sé til þess fallin. Því miður á framleiðsla á kindakjöti eins og hún nú er, langt í land með það að geta talist frambærileg...

Bifrreiðatryggingar á Íslandi. (6 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki hvort ég er ein um það að þykja iðgjöld bifreiðatrygginga enn allt og há, einkum og sér í lagi í ljósi þess að viðkomandi hafi ekið um tjónalaust í áraraðir. Trygging á meðafólksbíl virðist nú í dag innihalda meirihlutann af einum mánaðarlaunum ( konu ) á ári. Eins og áður sagði alveg sama þótt engin tjón í umferðinni hafi verið um að ræða í áraraðir. Bótasjóðir tryggingafélaga eru sagðir velta milljörðum, og því veltir maður því fyrir sér hvers vegna í ósköpunum, hluti af því...

Þarf að stofna neytendasamtök skattgreiðenda ? (27 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mismunun á skattlagningu með tilliti til þeirra greiðslu sem hver innir af hendi í formi lögboðinna skatta á vöru og þjónustu og magni þeirrar þjónustu sem veitt er lögum samkvæmt fyrir þá skattpeninga undir formerkjum ýmissa markmiða, er stjórnvöld setja hverju sinni, þarfnast skoðunar við að mínu mati. Í þessu sambandi vil ég nefna þrennt sem telst til leyfilegrar söluvöru an lýtur all mikilli mismunun í ljósi skattlagningar. Sykur, áfengi og tóbak. Þótt vitneskja þess efnis að sykur valdi...

Vex "spillingin " á trjánum ? (21 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 1 mánuði
Með ólíkindum er hve mörg leiðindamál hafa litið dagsins ljós undanfarið þar sem einhvers konar eiginhagsmunatengda fjármálalega umsýslu hefur verið hægt að heimfæra að virðist á opinbera umsýslumenn s.s. rekstur Þjóðmenningarhúss. Hvað með alla hina er standa í stjórnunarlegri ábyrgð í hinum ýmsu stofnunum hins opinbera ? Getur það virkilega verið svo að þess finnist mörg dæmi að opinberir aðilar telji sér heimilt að fara frjálslega með almannafé eða er hér aðeins um að ræða einstök...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok