Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jazzy
jazzy Notandi frá fornöld 598 stig

Hvað er til ráða á landsbyggðinni? (9 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ísland er kannski ekki stórt land ef miðað er við umheiminn. Íslendingar eru hins vegar fáir og njóta þeirra forréttinda að geta spókað sig á afar stórum svæðum án þess að nokkur grípi inní nema kannski einn og einn fugl á flugi. Við erum að koma úr löngu og erfiðu landbúnaðarharki þar sem allir stóðu sem einn í þvi að reyna að komast á æðra menningarstig þar sem einstaklingurinnn fær tækifæri til þess að velja stórt. Þetta tókst okkur með ágætum en gættum kannski ekki að þvi fremur en aðrir...

Johnny Cash Johnny Cash Johnny Cash (16 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hæhæ vil bara minna á Tribute Tónleikar Johhny Cash verða haldnir föstudaginn 3.október í þjóðleikhúskjallaranum. Tónleikarnir eru til styrktar langveikum börnum og þau þurfa virkilega á stuðning að halda þvi þeim er ekkert að batna. Fram koma(og spila bara Johnny Cash lög) Mínus Megas og Súkkat Kimono Varði(goes europe)og Eiríkur Nordal Trabant \“Singapore Sling\” Valur og fríríkið Fræbblarnir Pétur Tristian Santiago Rúnar Júlíusson ofl Húsið opnar 22 og 1000kall inn komið og drekkið í...

Vangavelta um skatta (41 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að horfa á Kastljósið í fyrradag á þau Pétur Blöndal og Jóhönnu Sigurðardóttur. Jóhanna talaði um það að það væri til í þjófélaginu hópur sem væri innan með nítíuþúsund á mánuði en þyrfti samt sem áður að borga af því skatt.Það veit hver heilvita maður að þetta er bara eins rangt og hugsast getur enginn á að þurfa að lifa við minna í landi sem kallar sig velferðarríki. Það er til fólk sem nennir ekki að vinna en það er mjög lítill hópur og í raun ætti hann að telja með þeim er kallast...

Bónustilveran (6 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Bónus er ódýr búð og notaleg þar finnst mér gott að koma með mömmu minni og horfa á allar hinar mömmurnar tæta í hillunum. Gulur er líka uppáhaldsliturinn minn og ég ætla að stofna pólitískan flokk sem er gulur þegar ég verð orðinn stór. Vitanlega verða einhver skilyrði ef þú óskar þess fá lykilstöðu í flokknum. Í fyrsta lagi verður þú að vera með guluna því þá eru miklar líkur á því að lífdagar þínir séu færri en hjá meðalmanni. Þá er smá sjéns á því að þú getir haft áhuga á bónusflokknum...

Íslenskir samkvæmisleikir fyrir menn og mömmur (2 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ok ég viðurkenni það ég var stingandi graður þegar ég gerði þetta. Hún sagðist vera að skilja, fertug, flott, ríðileg, ræðinn og rosalega kinky. Hún átti son, ég hefði getað verið hann, nema náttúrulega að ég stóð þarna tuttugu og fimm ára smástrákur og barðist við blóðflutninga innan í mér. Hin guðdómlega íslenska samviska sagði mér að nú væri kominn tími til þess að brosa og hoppa léttstígur í átt að léttklæddri yngismey sem hefði ekki sofið það oft hjá að hún ætti ekki eftir að sjá...

Hvatir. (5 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég vaknaði skyndilega en þó illa við það að norðanvindurinn harði barði mig í ennið og hleypti verk frá blóðhlaupnum augunum upp í höfuðið þar sem hann stöðvaði og hvíldi sig og kvaldi mig við djúpa gjá sem bersýnilega var nú staðreynd á líkama mínum. Mál og menning. Ég lá þar, við mál og menningu. Hláturinn leyndi sér ekki í Satanískum bláma hugsunar minnar. Þrátt fyrir óreglulegan og stopulan feril sem einhver eða eitthvað þá var ég nú þrátt fyrir allt menningarlega sinnaður, ég gæfist...

Skegg 2 (0 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Skegg 2. Ég er aðeins karlmannlegri í dag, ég skipti ekki um sokka viljandi í morgunn og rúnkaði mér án þess að þvo mér um hendurnar á eftir. Það er engum líkamleg þægð í því að gera sér dælt við hörund mitt í dag sökum þess vaxtabrodds sem á sér nú stað. Það er sem hárvöxtur minn sé tilfinningalegs eðlis því eftir að ég gerði ykkur kunngjört í gær að ég ætlaði að safna skeggi í níutíu daga þá breyttist líf mitt í einni svipan. Ég er hustler, ég er robinson krúsó, ég er rafvirkinn sem kann á...

skegg (0 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er svo sannarlega kominn time á mjúka manninn, lambið sem ropar, nautið sem geymir ylinn og gamla manninn sem á öllu kann skilin. Það er dagur eitt af 90 í dag. Ég rakaði mig ekki í morgun og kærastan mín segir mig harðan, óþægilegan, og er lítið vir gælur af minni hálfu þessar mínúturnar en hún lærir svo lengi sem lifir líkt og börnin sem hlaupa brennandi í átt að tærri og svalandi lind. Ég er karlmaður. Ég get kannski ekki sannað það með neinu en þið verðið bara að taka mig trúanlegan....

Beiðni um fyrirgefningu (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég sagði þér eitthvað um sannleikann minn og sýndi þér hlið sem var björt vafði þig örmum, kyssti á kinn kveikti í nóttinni ört. Ég fann þig í hjartanu fylla mig af fallegum þrálátum draumum sem kastaði ég út á hyldýpsta haf haltrandi á fótunum aumum. Ég þorði ekki að elska því alltaf ég var einn innií líkama mínum og sál mín ei vissi hvernig og hvar kynnst gæti löngunum þínum. Ég laug að þér vina og vanrækti þig og velti þér nóttina í. Lét okkur hverfa mildina og mig úr manni ég breyttist í...

Í kulinu (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Í kulinu býr alltaf einhvers konar nótt frostið framleiðir einmannaleikann og tekur úr manni fjöldann allan af falsguðum. Í kulinu verður maður duglegur og vaknar snemma, á meðan að tárin streyma niður kinnarnar. Tippið minnkar en veröldin stækkar. Kjarkurinn eykst til muna. Í kulinu þá rækta ég blóm og ást, sem ég á annars til með að drepa við kjöraðstæður.

Tíminn (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég man þegar að tíminn var ég. Tíminn var einhvern veginn biðin eftir Sanasól Tíminn voru langir aðfangadagar Tíminn var tippahár og kossar lítilla vinkvenna Ég veit að tíminn er Ég veit ekki hverngi tíminn er Kannski er hann ánægjulegt minnisleysi Kvalarfullur dauðdagi Eða kannski er hann ein milljón, tvær milljónir, þrjár milljónir, sílíkonur, steikur, bens, veski, blowjob, sykur, rauðir litir, hestar sem hlaupa fallega, fólk sem dáist að þér Tíminn er eins og þetta eitthvað, óendanlegur,...

Aðeins um gifslistina (5 álit)

í Bókmenntir og listir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Í dag er ég iðnaðarmaður. Ég mála. Ég er klístraður á höndunum og veigra mér við það, tímunum saman, að klóra mér í pungnum vegna þess að ég vil ekki að málningin brenni sundur á mér lífsgæðaranann. Ég var að spjalla við vin minn sem er að vinna rétt hjá mér( í smáralindinni) hann er frá Tékklandi. Hann var töluvert móðgaður yfir því að enginn, sem leið átti hjá iðnverkum hans, kæmi ekki til hrópandi“Þetta er list, drengur þetta er list” Hann trúði mér síðan fyrir því að í raun væri þetta...

Til vinar (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Sjálfan hefurðu djöfulinn séð og drukkið úr dýi því er fæstir súpa á fórst inn í heim er sýndi mér að sukkið það súrnar þegar hærra þarf að ná Um göturnar hljópstu beinaber og blautur barðist einn við sjálfskapaðan vetur í hausnum voru hundrað falskar flautur sem að fólskulega ærðu sálartetur Með helming vasa hálffulla af klinki hýrðist einhvers staðar inn á milli með krónu fimmkall sívalninga úr sinki sastu á bekknum laus við mennska hylli.

Leðurstræti (10 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég verð að mæla með plötu sem að ég fékk hérna um daginn. Hún heitir Leðurstræti. Öll lögin á plötuni bera nafnið leðurstræti og eru samin af bræðrunum og leðurverunum Arnari Guðjónssyni(Vynilara og óperuunnanda) og svo hins vegar leðurverunni Sigurði Guðjónssyni ( fyrrum Cranium meðlimur, 2001, Fallega gulrótin, rafmagnssveitin) Það verður að segjast eins og er að þegar að þessir bræður bræðast þá verður einhvers konar yfirbræðningur í hausnum á manni og bróðurparturinn af manni hreinlega...

hláturinn (6 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hláturinn Það að þola hláturinn er eins og að kunna að hlægja. Þú leggst undir sáralítinn og auman höggstokk sem að þú bítur í þúsund parta með viðhöfn og stolti. Svo deyrðu og tekur upp molana af honum og af þér og þú raðar þeim upp á þann hátt að leikfangið sem að myndast verður sett á himinháan bannlista. Þannig grefur þú harðan vetur undir þitt hlýa og lifandi hreiður vorsins og sumarið er þitt.

Einelti (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Í myrkrinu vakir hann veikur og vonsljór um betra líf við mennina hræddur svo smeykur með sár eftir illskunar hníf Þeir áttu hans andvökunætur þær ætlar hann þeim öllum að gjalda því að hatrið með grimmdinni grætur og geldur því skuldina þúsundfalda Eftir háðung og spott í lífinu stutta skal ferðinni heitið yfir í annað endapunkt smellt á með einum putta paradís fundin og landið þar kannað.

Formfestur. (1 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ekki veit ég fyrir víst hvort að greinin fjallar á nokkurn hátt um heimspeki ellegar ekki, kannski ekki einu sinni víst að hún hafi nokkurn tíma sést, þar sem að ég er alls ekki svo viss um að þið séuð raunverulegur partur af minni veröld. Það sem að heldur mér stilltum eru í raun og veru tveir meginpartar eins og sú staðreynd að ef að ég framkvæmi a þá gerist b. Og það sem að ákveður hvort b sé gott eða slæmt er samviska heildarinnar sem er c. Þannig að ef að a blandast við x á einhvern...

Eru bókmenntir listir? (7 álit)

í Bókmenntir og listir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég varð einhvern veginn svo máttvana því að raddirnar í hausnum á mér sögðu mér að þessir rassar væru alveg jafn mikið í lagi og allir aðrir rassa en Guðs rödd var þessu náttúrlega alveg gjörsamlega ósammála. Nú ég gat náttúrulega ekki talað um þetta við neinn því í fyrsta lagi þá var ég frekar og subbulegur(og ef því er að skipta þá get ég allt eins sagt ykkur það satt að ég er yfirleitt dálítið subbulegur)og í öðru lagi þá var ég einhvern veginn í þannig ástandi að allt sem að ég reyndi að...

Hvað eru bókmenntir og hvað er eiginlega að (5 álit)

í Bókmenntir og listir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það virðast myndast klíkur hvar sem er í veröldinni og ekki síst á listasviðinu, þar sem hugurinn á að standa opinn líkt og hænurass í vindi. Ég sendi inn hérna um daginn eins konar bókmenntalega hugleiðingu um Guð eins og hann birtist í bókum og listum og í raun vildi ég byrja einhverja umræðu um það hvort guð væri yfirleitt einhvers staða enn undirrót að list. Það er nefninlega gaman að velta því fyrir sér hvort maðurinn gefi sér tíma fyrir hugmyndaflugið af trúalegum eða andlegum ástæðum...

Tilvistarkreppan (3 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég hef aðeins verið að pæla í okkur mannfólkinu, þó náttúrulega sérstaklega Íslendingum, að því að ég er einn slíkur. Innri ró er eitthvað sem við erum orðin svo örvæntingarfull eftir að við erum komin með eina heila útvarpsstöð sem hefur þan eina tilgang að róa okkur aðeins niður. Mest megnis er landið byggt upp af vinnutýpunni, þessari sem líður aldrei betur en þegar hún vaknar svo snemma að ælan situr í hálsinum fram að morgunkaffi og verkirnir í bakinu gefa aðeins samviskunni smá frið...

Össur Skarphéðinsson (7 álit)

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég ligg dáldið fyrir framan sjónvarpið öðrum hvoru því ég var farinn að hafa af því áhyggjur að ég væri ekki lengur í sambandi við ykkur sem allt vitið og allt er af að frétta. Það er svosum ekkert merkilegt nema hvað að ég sá að Össur Skarphéðinsson var mættur á skjáinn og var að brasa einhvern fiskling sem átti sér einskins ills von. Það var auðséð á Össurri að hann er listakokkur og á sé mikla framtíð í eldamennsku, annað en hægt er að segja um pólitíkina. Össur er hreinlega á rangri...

Til hvers að hafa forstetann (14 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég var að horfa á fréttirnar um daginn í okkar ástkæra ríkissjónvarpi og mér til mikilliar undrunar og hamingju var enginn annar en Ólafur Ragnar Grímsson á skjánum. Hann var frekar reffilegur á að líta þar sem hann var að hjálpa Súgfirðingum að draga fram lífið með því að kötta fisk að hreinni snilld. Síðan að loknum erfiðum tökum þá var hann spurður að því hvað honum fyndist nú eiginlega um þetta fólk Súgfirðinga. Ólafur var náttúrulega fullur af auðmýkt, líkt og Jésús kristur forðum daga,...

Skólabúningar (18 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér hvort það borgi sig ekki hér á landi að taka upp skólabúninga. Það sem hræðir okkur mannfólkið einna mest er að fyrir miskilning þá verði maður álitinn svipaður og næsti maður eða bara jafnvel nokkuð líkur honum. Þetta er alveg hræðileg tilhugsun þessi mynd af þjóðfélagi sem gengur um í sama fatamerkinu með sama varalitinn og í sömu skónum og hef ég það fyrir satt að þessi þankagangur fari svo illa með suma að þeir læsa sig inni, á táningsaldri, með...

Má bjóða dömunum í ballei (7 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Er ballet karlmannleg íþrótt eða liggja einhverjar óskiljanlegar og vægast sagt dularfullar ástæður að baki þess að ungir drengir taka allt í einu þá undarlegu ákvörðun að nú skuli þeir leggja stund á ballet. Þegar ég hugsa um ballet þá sé ég fyrir mér allar þessar tíu sem voru með mér í barnaskóla, flottur rass, breiðar axlir og svo sá ímyndunaraflið um það að leggja þær og kanna hversu liðugar þær væru og æstar í mig. En svo fór ég á balletsýningu til þess að skoða nokkrar þeirra í aksjón...

Eru samtök gegn fordómum að ríða baggamun (11 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú eru allir einhvern veginn alltaf að tala um fordóma og það hvað við Íslendingar erum í raun og veru fordómafullir. Þetta er náttúrulega laukrétt en hvað ætlum við eiginlega að gera í stöðunni? Það birtast viðtöl við gott fólk í sjónvarpi,útvarpi og greinar,eins og þessi, í blöðum þar sem drepið er á því að við séum ekki alveg að sýna þessa íslensku sveitagestrisni, sem við ættum svo auðveldlega að geta gert á þessum tímum þar sem ráðamenn okkar eru búnir að telja okkur trú um að við eigum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok