Með þúsundþjalaþumalputta nudda ég ís framan úr einhverju barni sem er nýbúið að öskra á einhverja neyslu framreidda. Ég velti fyrir mér þessu barni, hundrað ára barni , gömlum börnum og nýjum börnum. Við vorum ekki svona frek, við fengum bara kerti og spil en þið fáið himnaríki í þrívídd og klámmyndir í jólagjöf og þjáist ekki einu sinni af guðhræðslu. Það getur verið lýandi að skjótast meðfram veggjum bara fyrir það eitt að vera ekki nógu guðhræddur eða sólgin í gamlan, súran og saltaðan...