Sjálfan hefurðu djöfulinn séð og drukkið
úr dýi því er fæstir súpa á
fórst inn í heim er sýndi mér að sukkið
það súrnar þegar hærra þarf að ná

Um göturnar hljópstu beinaber og blautur
barðist einn við sjálfskapaðan vetur
í hausnum voru hundrað falskar flautur
sem að fólskulega ærðu sálartetur

Með helming vasa hálffulla af klinki
hýrðist einhvers staðar inn á milli
með krónu fimmkall sívalninga úr sinki
sastu á bekknum laus við mennska hylli.