Ég man þegar að tíminn var ég.
Tíminn var einhvern veginn biðin eftir Sanasól
Tíminn voru langir aðfangadagar
Tíminn var tippahár og kossar lítilla vinkvenna

Ég veit að tíminn er
Ég veit ekki hverngi tíminn er
Kannski er hann ánægjulegt minnisleysi
Kvalarfullur dauðdagi
Eða kannski er hann ein milljón, tvær milljónir, þrjár milljónir,
sílíkonur, steikur, bens, veski, blowjob, sykur, rauðir litir,
hestar sem hlaupa fallega, fólk sem dáist að þér

Tíminn er eins og þetta eitthvað, óendanlegur, fallegur í heild
sinni og vinalegur.
Tíminn er eins og þetta eitthvað, tilgangurinn í sjálfum sér
Vertu tíminn og þú verður eitthvað sem líkist honum.