Er ballet karlmannleg íþrótt eða liggja einhverjar óskiljanlegar og vægast sagt dularfullar ástæður að baki þess að ungir drengir taka allt í einu þá undarlegu ákvörðun að nú skuli þeir leggja stund á ballet.
Þegar ég hugsa um ballet þá sé ég fyrir mér allar þessar tíu sem voru með mér í barnaskóla, flottur rass, breiðar axlir og svo sá ímyndunaraflið um það að leggja þær og kanna hversu liðugar þær væru og æstar í mig. En svo fór ég á balletsýningu til þess að skoða nokkrar þeirra í aksjón og viti menn, haldiði að það hafi ekki verið allt krökkt af kátum piltum á pungbindum með svona geldingaglott á vörunum. Þeir svifu þarna um salinn kampakátir við mjög svo rómantíska tónlist og brostu þvílíkt að manni datt í hug að víst að það væri búið að taka þá úr sambandi að þá væru áhyggjur heimsins þeim gjörsamlega horfnar og að þeir þyrftu aldrei meir að hafa áhyggjur af því hvort vinurinn ætti eftir að leiða þá í gönur einhvern daginn.
Síðan fór ég náttúrulega að pæla í því hvort það væri ekki sniðugt að fara bara sjálfur að æfa svona til þess að nálgast gellurnar á þeirra nótum og ímyndaði mér mig þarf sem ég sveif um gylltan sal á pungbindi í átt að stæltri stúlku sem brosti til mín um leið og Komdu til mín, ég elska þig, myndi hljóma á ítölsku um salinn við ógnvænlegan fögnuð áhorfenda. Eftir sýninguna myndu síðan stúlkur frá ýmsum löndum færa mér blóm og spyrja mig um áhugamál mín og horfa upp eftir íturvöxnum líkama mínum. Daginn eftir þá fór ég á bar í næsta nágrenni og vaknaði við hliðina á ballerínu um morguninn. Hún hafði viljað sýna mér underground balletinn, og ég þáði með þökkum. Eftir þessa góðu reynslu fór ég að efast um að karlmennska mín og þokki myndu aukast til muna ef ég myndi droppa gallanum sem að ég klæðist í dag og fórna limum mínum og loforðum fyrir danslistina, enda hef ég heyrt að mjög algengt sé að ballerínum snúi sig á ökkla.
En það sem ég er að reyna að segja er í rauninni “Kommon ballet er fyrir stelpur og bleikt er ekki sumarliturinn í ár fyrir piltana”jafnvel þó limir ykkir kunna að leika létt og blítt í bleiksanseruðum silkirúllukragahlýrabolum.