Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hvað kostar að fá sér tattoo? (4 álit)

í Tíska & útlit fyrir 11 árum, 4 mánuðum
Ég var bara að pæla, þar sem ég veit ekkert rosa mikið um að fá sér tattoo... hvað kostar það svona almennt? Ég er aðallega að hugsa um samt svona frekar lítil, ekki rosa stór og mikil. Er þetta rosa dýrt? Og hvert er best að fara? Ég er bara í svona hugleiðingum, er ekkert endilega að fara að fá mér tattoo, en hef samt nokkrar hugmyndir ef ég geri það einhvern tímann. Eitthvað svona sætt eins og hjarta, kross, "Faith" eða "Stay Strong" á úlnliðina :)

Neighbours þættir á netinu (0 álit)

í Sápur fyrir 11 árum, 8 mánuðum
Ef það er einhver sem horfir á þættina á netinu eða veit um einhverja síðu endilega segja mér! Sérstaklega ef það eru þættir sem er nýlega búnir að vera sýndir hér, aðallega tveir þættir. Þetta eru þættir nr. 6302 og 6303 og þeir voru sýndir 12. og 13.júlí hérna en 29. og 30.október úti. Finn þá ekki neins staðar!

RÚV: LEIÐARLJÓS AÐ HÆTTA!!! (11 álit)

í Sápur fyrir 11 árum, 9 mánuðum
Leiðarljós, sem hefur verið á dagskrá RÚV árum saman, hverfur af skjánum frá og með þriðjudeginum 3. júlí. Ástæðan er sú að dreifingaraðilar þáttanna sjá sér ekki hag í að endurnýja samninga við RÚV auk þess sem þeir hafa ákveðið að stöðva sölu þeirra í bili vegna óvissu í Bandaríkjunum sem tengist réttindum á tónlistinni, sem er notuð í þáttunum. Ég fékk sjokk þegar ég sá frétt á eyjunni með fyrirsögninni: "Hvað eigum við þá að horfa á? Réttindamál urðu Leiðarljósi að falli". Þetta stóð í...

Gleðileg jól! (2 álit)

í Hátíðir fyrir 12 árum, 4 mánuðum
Betra seint en aldrei… Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla :D

Margot Robbie í Late Night with Jimmy Fallon (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 4 mánuðum
Eins og ég sagði fyrir neðan myndina sem ég setti inn, er Margot Robbie, sem lék Donnu, í New York að leika í Pan Am, sem eru sýndir á ABC og eru að slá í gegn úti í Banaríkjunum. Margot leikur Laura Cameron sem fer að vinna hjá Pan Am eftir að stinga af úr brúðkaupinu sínu. Eldri systir hennar, Kate, er afbrýðissöm út í hana eftir að það kom mynd af henni á forsíðu Life tímaritsins. Christina Ricci er líklega þekktust af öllum leikurunum. Skjár Einn byrjaði að sýna þættina 23.nóvember og...

Stefan Dennis Live Chat: Heilsaði Íslendingum! (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 6 mánuðum
Ég var að horfa á Live Chat við Stefan Dennis aka Paul Robinson í gærkvöldi (kl.22:30 að íslenskum tíma) sem var geðveikt gaman! Ég spurði fullt af spurningum, ma.a. hvort hann gæti heilsað íslensku aðdáendunum og hvað hann vissi mikið um Ísland. Ég var ekkert að búast við því að hann myndi svara því en hann gerði það!!! Ég og mamma, sem var að horfa á þetta með mér, við fríkuðum alveg út! Finnst þetta rosa gaman :D Hér er linkurinn: http://www.ustream.tv/recorded/17857410 Um Ísland er á...

Unboken með Demi Lovato til Íslands? (2 álit)

í Popptónlist fyrir 12 árum, 7 mánuðum
Veit einhver hvort nýi diskurinn hennar Demi Lovato, Unbroken, komi hingað til Íslands? Langar rosa mikið í hann, en hann var að koma út í Bandaríkjunum í dag. Ef ekki, þá verð ég bara að panta hann…

Jacqueline MacInnes Wood í Final Destination 5 (8 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 7 mánuðum
Hefur einhver séð Final Destination 5? Ástæðan fyrir því að ég er að spyrja er sú að okkar ástkæra Jacqueline MacInnes Wood (Steffy) leikur í henni og það er aðalástæðan fyrir því að ég fór að sjá hana núna í kvöld :) Ég hef ekki séð heila Final Destination mynd nema brot úr þriðju sem Texas Battle lék í (Marcus) og hef aldrei verið mikð fyrir þær eða svona myndir. En ég bara varð að sjá þessa útaf Jacqui og hún kom mér skemmtilega á óvart! Auvitað var hún scary á köflum og spennan á undan...

OGAE Fan Club á Íslandi loksins kominn :D (0 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 12 árum, 7 mánuðum
OGAE Fan Club Iceland, öðru nafni FÁSES, er loksins kominn! OGAE eru stærstu samtök aðdáenda Eurovision í heiminum og eru þau starfræk í u.þ.b. 37 löndum. FÁSES: Félag áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem kemur af franska nafninu af OGAE: Organisation Générale des Amateurs de l'Eurovision. Official Facebook síða FÁSES: http://www.facebook.com/pages/F%C3%81SES-OGAE-Iceland/203572039704066

The Lion King í 3D! (2 álit)

í Teiknimyndir fyrir 12 árum, 7 mánuðum
Hún er ekki ný í bó, en hún er að koma! Var að lesa Myndir Mánaðarins fyrir september og ég fékk bara sjokk þegar ég sá 23.sept. “Konungur Ljónanna 3D”. Það er satt, hún er að koma í 3D í bíó! Ég fór á google og sá trailerinn á YouTube: http://www.youtube.com/watch?v=nCKCSBpfL0M :D Ég bara vona svo innilega að hún verði með ensku tali líka ;)

B&B Fan Event 27.ágúst 2011 - SPOILER VIÐVÖRUN (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 7 mánuðum
SPOILER VIÐVÖRUN - KANNSKI SPOILER Á laugardaginn var hið næstum árlega Bold and the Beautiful Fan Event. Ég segi næstum árlega því þau reyna að hafa það á hverju ári, en það hefur ekki alltaf verið, eins og t.d. í fyrra. Á B&B Fan Event (sem er haldið á hóteli í L.A.) mæta ekki bara aðdáendur frá Bandaríkjunum heldur líka frá öðrum löndum til að hitta stjörnurnar úr þættinum, fá eiginhandaráritun, myndir og bara spjalla við þær. Það er það sem er svo frábært við B&B Fan Event (og sápuóperu...

Eric Saade Icelandic Fans :D (6 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Hæhæ. Langaði bara að nota tækifærið þar sem hinn sænski Eric Saade varð í 3.sæti í Eurovision, og auglýsa síðuna mina: http://www.facebook.com/pages/Eric-Saade-Icelandic-Fans/111126162314889 - Endilega like-ið :D Svo er þetta official FB síðan hans: http://www.facebook.com/EricSaadeOfficial Twitter: https://twitter.com/#!/ericsaademusic Official síðan: http://www.ericsaade.com

Sonya er mamma Callum! (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Hæ, bara svona til að hefja samræður… Hvað finnst ykkur um að Sonya sé mamma Callum?? Þetta er rosa sjokker, en frekar spennandi söguþráður finnst mér. Vil ekki að samband hennar og Toadie endi samt, en ég veit að þegar hann kemst að því verður hann rosa reiður því hún er búin að ljúga að þeim allan tímann. Ég skil af hverju hún gerði það og hún er betri manneskja núna, en hún átti samt bara að segja þeim sannleikann frá upphafi. En hvernig líst ykkur á Jade? :)

Glee 3D myndin til Íslands?? (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Hæ. Ég var að spá, veit einhver hvort Glee 3D myndin kemur í bíó á Íslandi? Hún kom út í dag í Bandaríkjunum en hún verður bara til sýninga í 2 vikur. Ég var að vona að hún kæmi hingað, mig langar svo að sjá hana í 3D!

Josh Duhamel snéri aftur í All My Children :) (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Josh Duhamel snéri aftur í All My Children 4. og 5.ágúst síðastliðinn! All My Children er daytime sápa eins og Bold og GL, en hún er að enda seinna á árinu. Josh Duhamel hóf feril sinn í þeirri sápu (1999-2002), og hann ákvað að snúa aftur fyrir 2 þætti (í endanum á þeim fyrri) þar sem þeir eru að hætta. Persónan sem hann lék, Leo du Pres, dó hinsvegar svo hann kom aftur bara í draumi. Það vill svo til að Rebecca Budig (fyrrverandi Michelle Bauer í GL) lék Greenlee Smythe, konuna sem hann...

B&B sigurvegari á Daytime Emmy Awards 2011 (0 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 10 mánuðum
Síðastliðinn sunnudag, 19.júní, var hin árlega verðlaunahátíð Daytime Emmy Awards haldin í 38.skiptið á Las Vegas Hilton hótelinu. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta fyrir “daytime” þætti, s.s. sápuóperur eins og The Bold And The Beautiful og Guiding Light (en það er ekki lengur verðlaunað þar sem það er búið). Ég gat ekki horft á þetta beint, en mest öll hátíðin er komin á YouTube. The Bold And The Beautiful vann í 3.skiptið í röð sem besti dramaþátturinn (Outstanding Drama Series), og...

Leiðarljós byrjar aftur 27.júní - KOMIÐ Á RÚV! (3 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 10 mánuðum
Já, núna er algjörlega STAÐFEST að það byrjar 27.júní, strax eftir EM, og það er m.a.s. komið í dagskrána á ruv.is! Sjá: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/2011/06/27/

Bill og Katie! (1 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 10 mánuðum
Já Bill og Katie (aka Kill) eru LOKSINS búin að “játa ást sína á hvort öðru” haha! ;) Maður var bara farin að bíða eftir þessu, eða allavega ég. Í lokaatriðinu í fimmtudagsþættinum, eftir tískusýninguna þegar Bill og Katie hittust baksviðs og kysstust, hoppaði ég bara af gleði! Það var svo augljóst að þau eru hrifin af hvort öðru og Bill getur loksins viðurkennt að hann hafi tilfinningar :) Ég vona að þetta samband verði ekki eyðilagt, þau eru bara svo góð saman....

Fyrri undanleppnin: Er í sjokki! (2 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 12 árum, 11 mánuðum
Já ég var í algjöru sjokki í gær. Þegar það var bara eitt eftir og Noregur var eftir þá var ég búin að skrifa okkur út og var bara NOREGUR, NOREGUR! En nei, 3.árið í röð kom íslenski fáninn síðastur! Ég trúði því varla og ég var í svo miklu sjokki að ég heyrði einu sinni ekki þegar hún sagði Iceland og sá ekki viðbrögð strákanna og Þórunnar (þess vegna horfði ég á endann aftur!). Ég er svo ángæð, en á hinn bóginn er ég rosa leið fyrir hönd Noregs og Stellu greyinu. Þetta var uppáhalds lagið...

Nágrannalagið á íslensku í gær! (6 álit)

í Sápur fyrir 12 árum, 12 mánuðum
Já, Neighbours theme lagið var á íslensku í gær í tilefni af því að þáttur 6000 var sýndur. Ég vissi einu sinni ekki að það væri til og að það var í dágóðan tíma á íslensku, svo mér fannst það algjör snilld! Vil að það verði alltaf þannig, enda sá ég hóp á facebook sem kallar sig: Neighbours theme lagið aftur á Íslensku. :) Grannar, allir þurfa góða granna, skilningur á milli manna lalala…. :) Veit einhver hver syngur það?? Allavega, spennandi að gerast þessa dagana í Neighbours! Er ekki...

Gleðilega páska (0 álit)

í Hátíðir fyrir 12 árum, 12 mánuðum
Vildi óska öllum gleðilegra páska, vona að þið hafið það sem allra best í dag :) Til gamans var málshátturinn minn “Svo skal leiðan forsmá að ansa honum engu”, en ykkar?

Selena hefði orðið 40 ára í dag (0 álit)

í Popptónlist fyrir 13 árum
Selena Quintanilla-Pérez var mexíkósk/amerísk söngkona og hefði hún orðið 40 ára í dag. Hún var vinsælasti latínutónlistarmaðurinn á tíunda áratugnum og var hún kölluð “The Queen of Tejano music”. Hún söng lög á borð við Amor Prohibido, Como La Flor, I Could Fall In Love og Dreaming Of You, sem kom út stuttu áður en hún var myrt af Yolanda Saldívar, forseta aðdáendaklúbbsins hennar. Selena og fjölskylda hennar komust að því að Yolanda stal peningum úr aðdáendaklúbbnum og fatabúðinni hennar,...

Leiðarljós byrjar aftur í maí - STAÐFEST! (2 álit)

í Sápur fyrir 13 árum
Já, biðin er á enda því Leiðarljós byrjar aftur í maí! Kona hjá RÚV var að staðfesta það og sagði að það byrjar kannski eftir fyrstu vikuna í maí. Það verður liðið næstum heilt ár þegar það byrjar aftur, en nú er bara mánuður í það! :) Ef það byrjar í annari vikunni í maí verður þvílíkt gaman, Leiðarljós og Eurovision ;)

Eric Saade til Düsseldorf! (4 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 13 árum, 1 mánuði
Í gærkvöldi var stærsta undankeppnin fyrir Eurovision haldin, Melodifestivalen, undankeppni Svía (kemur kannksi ekki mörgum á óvart þar sem Svíþjóð er svo mikil Eurovision þjóð). Ég horfði spennt á hana á SVT1 (rosa gaman að vera með fjölvarpið:)) og allan tímann hélt ég með sigurvegaranum, Eric Saade, með lagið Popular :D Hann sigraði bæði í dómara- og símakosningunni (það er 50/50 eins og í Eurovision), og var að lokum með 193 stig, en í 2.sæti var Danny Saucedo með lagið In The Club með...

Brett Tucker (Dan) í C.S.I!! (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 1 mánuði
Ætla bara aðeins að nefna það að ég var að horfa á C.S.I síðasta mánudag og horfi alltaf á það, og Langston og Hodges voru að tala við mann sem var yfir svona risaeðlusýningu (Walking with dinosaurs). Ég heyrði strax að hann væri ástralskur og svo allt í einu fattaði ég að þetta var Brett Tucker, sem lék Dan í Neighbours! Ástralir eru vinsælir úti í Ameríku greinilega… Gaman að þessu :) Bætt við 24. febrúar 2011 - 18:00 http://www.youtube.com/watch?v=K5LmZM6KZBc - hér er brot úr þættinum, en...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok