Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Pippa Black á People's Choice Awards 2011! (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Ég var að horfa á frá rauða dreglinum á People's Choice Awards áðan, sem var haldið á miðvikudaginn í Los Angeles, og það var verið að taka viðtal við leikara úr nýjum gamanþætti sem heitir Outsourced (veit ekkert um hann nema hann á að gerast í Indlandi að hluta til). Horfið á þetta og gáið hvort þið kannist við konuna sem er lengst til vinstri (þegar þið horfið á það), í ljósbláa kjólnum :) http://www.youtube.com/watch?v=XuwaOPbkNy4 Vitiði hver þetta er?? Pippa Black sem lék Elle Robinson...

Neighbours síðan í gær á netinu (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Hæ. Ég lenti í smá vandræðum með Neighbours þáttinn í gær. Ég tók hann upp í hádeginu og ætlaði að horfa á hann um kvöldið en þá sá ég að það voru svo margar truflanir að það var varla hægt að horfa á þáttinn, spólan er örugglega biluð bara. En því miður voru allar endursýningarnar búnar líka þannig ég ætlaði að horfa á hann á netinu, en ég bara finn hann hvergi! Ég veit ég get horft á hann á laugardaginn eða sunnudaginn, en þá get ég ekki horft á hina þættina í vikunni fyrr en þá líka. Veit...

Camp Rock 2: The Final Jam (16 álit)

í Kvikmyndir fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Hver horfði á frumsýningu Camp Rock 2 á Disney Channel á föstudaginn?? :D Hvernig fannst ykkur myndin? Mér fannst hún allavega æðisleg, tók hana upp og er búin að horfa á hana þrisvar núna! Lögin eru líka frábær, þarf nú ekki að segja meira um það :) Einhverjar umræður??

Primetime Emmy Awards á netinu (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Hæ. Ég var bara að pæla hvort einhver veit hvar er best að horfa á Emmy verðlaunin á netinu í nótt? Ég var að vona að þau yrðu sýnd á Stöð 2 en þau verða ekki sýnd hér og á E! er bara hægt að sjá LIVE from the Red Carpet áður en þau byrja. Ég veit að það er ekki sniðugt að horfa á þau þar sem það er skóli á morgun en mig bara langar svo að sjá þau! Ég googlaði en það komu upp fullt af síðum af svona live stream, en ég hef ekki hugmynd um hvar er best að horfa! Bætt við 30. ágúst 2010 - 19:01...

Cold Case hætt (old news) (0 álit)

í Spenna / Drama fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Veit að þetta eru old news en langaði bara að búa til kork hér um hvað ég er ógeðslega fúl út í CBS fyrir að hætta með Cold Case! Ég sá það á netinu fyrir löngu síðan og er bara ekki ennþá að trúa því. Þeir eru semsagt að spara eða e-ð og eru að hætta með fullt af þáttum. Cold Case sem Stöð 2 hefur sýnt frá byrjun, er núna að enda eftir 7 seríur. Það þýðir að við sjáum ekki meira að Cold Case því við vorum svo stutt á eftir svo það er búið að sýna 7.seríu á Stöð 2. Það verður engin 8.sería!...

Lokaþáttur 90210! (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Jæja hvað segir fólk um lokaþáttinn? Ég verð bara að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með Mr. Cannon! Ég vorkenndi honum svo þegar Naomi var að kæra hann fyrir kynferðislega áreitni (fyrir utan hvað hann er sætur) og svo nauðgar hann henni, eða það er allvega gefið í skyn. Svo mun náttúrulega enginn trúa henni þannig að hún á ekki eftir að segja neitt, þar til í lok 3.seríu eða eitthvað. Ég vona að Ryan muni eftir því að hafa séð hana í stofunni og Mr. Cannon að draga fyrir, en hann var...

Byrjar ekki fyrr en í september (6 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Já þið hafið tekið eftir því að Leiðarljós byrjaði ekki þegar HM í fótbolta var búið og er enn ekki byrjað. Það er út af því að RÚV er ekki enn komið með fleiri þætti. Þau eru búin að semja en eru samt ekki komin með þættina og voru einu sinni ekki búnir að semja þegar HM var búið. Svo hringdi mamma í RÚV og þau sögðu alltaf eftir eftir viku eða 2 vikur en það hefur enn ekki byrjað. Núna er það hins vegar staðfest að það byrjar ekki fyrr en september, veit ekki nákvæma dagsetningu en svona...

Daytime Emmy Awards 2010 (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Þann 27.júní síðastliðinn var hin árlega verðlaunahátíð Daytime Emmy Awards haldin í 37.skiptið á Las Vegas Hilton hótelinu. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta fyrir “daytime” þætti, s.s. sápuóperur eins og Guiding Light og The Bold And The Beautiful. Ég var ekki heima þegar þetta var, en annars hefði ég kannksi horft á þetta á netinu því það var örugglega hægt. En úrslitin eru komin og ég hef séð myndir og video á youtube. Bold and the Beautiful vann sem besti drama þátturinn annað...

Föstudagsþátturinn af Bold (2 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 10 mánuðum
Veit nokkur einhver um síðuþarsem égget horft á síðasta föstudagsþátt af Bold, semsagt 26.júní? Ég var nefniilega útí bústað í Úthlíð ogvar bara að koma heim núna og sá þess vegna ekki endursýninguna á laugardaginn. Langar svo að sjá hann því hann er örugglega mjög spennandi! Bætt við 2. júlí 2010 - 19:31 Þetta er semsagt síðan 28.ágúst 2008 og þáttur nr.5387.

Leiðarljós kannski í fríi í 53 daga! (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Margir eru eflaust búnir að sjá auglýsinguna, sem var á undan og á eftir Leiðarljós þættinum í gær, þar sem kom fram að þeir fara í sumarfrí þar til HM er búið, og það er ekki fyrr en 11.júlí! Það gæti verið að þeir gætu sýnt einhverja þætti því það eru ekki leikir alla dagana, en RÚV vildi ekki lofa neinu. En þar sem HM byrjar ekki fyrr en 11.júní, eru þeir ekki bara í fríi út af því. Mamma hringdi í RÚV í gær og maðurinn sagði að þeir hefðu verið í samningaviðræðum við Procter & Gamble,...

Hart :( (4 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Æi þetta var svo sorglegt… Af hverju þurfti hann að deyja??? Af hverju gat ekki Dinah dáið??? Ég grét og grét yfir atriðinu þegar Cassie var þarna hjá honum. R.I.P Hart Jessup :( Annars var þetta svo fáránlegt með Vanessu og Matt að rugla tímanum og svo voru þau bæði þarna á Towers… fyndið a sjá Matt svona fullan samt, ekki líkt honum.

Marj Dusay í mynd með Elvis (0 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 12 mánuðum
Það er alltaf jafngaman að “uppgötva” einhverja leikara þegar maður er að horfa á eitthvað eftir langan tíma eða í fyrsta skipti, það hefur komið fyrir mig mjög oft. Í gær sá ég einmitt mynd með Elvis Presley, Clambake, sem kom út árið 1967. Ég hafði aldrei séð hana áður þó ég sé mikill aðdáandi hans Elvis og mér fannst hún mjög skemmtileg. En það sem var ennþá skemmtilegra var að sjá kunnuglegt andlit sem lék gengilbeinu (ef þa orð er notað ennþá) sem tók á móti pöntun Elvis, eða persónu...

Didge :( (4 álit)

í Sápur fyrir 14 árum
NEIIII!!!!! Af hverju þurfti Didge að deyja??? Oj þetta var svo sorglegt, maður hélt að henni væri að batna og svo dreymdi henni alltaf um þessa klukku sem sló 12 og þá dó hún… Ég grét og grét:( Hún var svo frábær persóna. Aumingja Declan! :( R.I.P. BRIDGET PARKER NAPIER :(

Endirinn í dag (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum
Jæja hvað fannst ykkur um þennan hræðilega og dramatíska endi? Ég hata Dinuh af öllu mínu hjarta, ef Hart deyr mun ég hata hana SVO MIKIÐ!!! Hann verður að lifa af og Dinah verður að fá hjálp! Og greyið Michelle að þurfa að gera þetta… á þessum sérstaka stað, hennar og Jesse.

Didge & Declan :D (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Æi fannst ykkur ekki brúðkaupið sætt hjá þeim? Mér fannst þetta svo rjómó þó að Steve og Miranda voru ekki þarna:) Þau eru svo frábær saman, Didge leit svo vel út svona ólétt í kjólnum og Dec bara gorgeous eins og alltaf :D Hvað finnst ykkur annars um að Susan ætli að ganga með barn Libby og Dan? Doldið skrýtið er það ekki?

Steve Irwin hefði orðið 48 ára í dag (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Vildi bara minnast á að Steve Irwin hefði átt afmæli í dag, hefði orðið 48 ára hefði hann verið á lífi. Þarf varla að kynna hann er það? Hann dó 4.september 2006 eftir að hafa verið stunginn af stingskötu. Hann dó allavega við það sem hann elskaði. Bráðum verða liðin 4 ár síðan hann dó. Hrikalega líður tíminn hratt. R.I.P. Steve Irwin 22.febrúar 1962 - 4.september 2006

EastEnders LIVE episode!! KANNSKI SPOILER (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
SPOILER FYRIR ÞÁ SEM HORFA Á EASTENDERS Á BBC ENTERTAINMENT Í SJÓNVARPINU!! Hæ. Veit ekki hvort einhver hér horfir á á bresku sápuóperuna EastEnders sem er sýnd á BBC Entertainment í gegnum danska sjónvarpið fyrir þá sem eru með fjölvarpið. Ég hef horft á þá núna í næstum 2 ár og elska þá! Þetta er svona ekta sápa, mikið drama en samt líka svona “real” ef maður getur kallað þá það;) Það var nú bókstaflega real í gær, því þá var fyrsti LIVE þátturinn af EastEnders, fór hann í lofið kl.8 (við...

JIBBÍ HART VEIT SANNLEIKANN!!! :D (7 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
LOKSINS veit Hart sannleikann um barnið! :D Ég vissi að Matt gæti ekki leynt þessu, hann heufr allavega samvisku. Dinah er jafn barnaleg og ömurleg og áður, kennir mömmu sinni um allt. Vanessa er jafn twistuð og áður, ver Dinuh sama hvað hún gerir… ok er ekki að segja að Matt eigi að skella sér í fangið á Beth (sem hann gerði reyndar ekki) en ef hann myndi gera það getur Vanessa bara sjálfri sé um kennt. Það er aðalllega hún sem er að eyðileggja hjónabandið með því að verja Dinuh alltaf...

Katie og Storm!!! (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Jeminn hvað þetta var sorglegt í endanum í dag… ég fékk bara áfall og grét og grét! Fyrst er Katie skotin og svo skýtur Storm sjálfan sig til að hún fái hjartað hans! Æ ég vorkenndi Storm svo mikið, þetta var bara slys en honum leið samt eins og þetta væri allt sér að kenna og ákvað að drepa sig til að bjarga lífi Katie, svo hún fái hjartað hans. Þetta gæti varla verið ömurlegra! Storm var ekkert hættulegur, hann notaði rangar aðferð við að reyna að láta Ashley skilja þetta með því að koma...

Frank Grillo og Peter Hermann í Edge Of Darkness :) (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Ég var e-ð að flakka á milli stöðva í gær þegar Jay Leno var á Skjá Einum og akkúrat var Mel Gibson gestur þar og verið var að sýna úr nýjustu mynd hans, Edge Of Darkness. Og hvern sá ég annan en Frank Grillo, sá sem leikur Hart í Leiðarljósi? :) Ég googlaði svo myndina og komst að því að ásamt honum leikur líka Peter Hermann í henni, en hann lék Dr.Michael Burke í Leiðarljósi sem dó ekki fyrir löngu síðan í sprengingu! Mér fannst bara svo fyndið að þeir leika báðir í mynd með Mel Gibson að...

Jenna NEI !!! (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Ok, einhverjar umræður um endirinn áðan?!! Þetta leit ekki vel út… vona svo innilega að Jeffrey deyi og Jenna lifi, en það er bara einum of gott… :( Oj hvað ég hata hann, ég verð veik við að horfa á hann! Greyið Buzz.. Gott hjá Holly að segja honum frá þessu, en hvert var hún að fara með Coop og Rocky??? Æi konan alveg að fríka út, Fletcher getur haft þetta á samvisku sinni. En ef Jenna deyr þá sko er það bara ömurlegt, Buzz er þegar búinn að missa Nadine þannig ef hún deyr veit ég ekki hvað...

7.sería (12 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Hvernig finnst ykkur svo 7.sería? Ég verð að viðurkenna að mér finnst hún ekki eins góð og hinar 6 því það vantar svo mikið án Peyton og Lucas að mínu mati. Og þessar nýju persónur og söguþráðurinn er ekkert spes… ég ætla að horfa á seríuna en mér finnst hinar miklu betri! Ég vil fá Leyton aftur sko! Ekki systur Haley og e-n gaur sem er umboðsmaður Nathan… Þau hefðu bara átt að hætta eftir 6.seríuna þá í staðinn fyrir að hafa þessa, fyrst að eiginlega aðalpersónurnar eru farnar.

Angélica Vale - I Will Always Love You (0 álit)

í Sápur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=2I2_z4jtcZ4 Þetta er slóð á video af Angélicu Vale (Lety í La Fea Más Bella) að syngja I Always Love You. Ég verð bara hreinskilnislega að segja að ég veit ekki hvor syngur það betur, hún eða Whitney Houston! (Þó Dolly Parton hafi upphaflega sungið það). Í alvöru, ef ykkur finnst þetta ekki flott hjá henni er eitthvað að. Það er greinilegt að hér er þvílík söngkona á ferð! Mamma hennar, Angélica Maria, er stödd þarna í salnum, en hún leikur einnig mömmu hennar...

The Princess and the Frog (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Veit einhver hvort The Princess and the Frog sé sýnd með ensku tali? Á midi.is stendur að hún sé með íslensku og ensku tali en ég sé bara með ísl. tali… mig langar nefnilega að sjá hana með ensku tali svo ef hún er bara á íslensku ætla ég bara að bíða þar til hún kemur á DVD.

Gleðileg jól :D (0 álit)

í Hátíðir fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Langar að óska öllum gleðilegra jóla og hafiði það gott yfir hátíðarnar :D Beðið er eftir matnum heima hjá mér… :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok