Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Aðför að réttarríkinu (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 7 mánuðum
“Baugsmálið” í heild sinni er aðför að réttarríkinu. Málatilbúnaðurinn grefur undan trausti almennings á lögregluyfirvöldum og dómsstólum. Hér berjast tvær valdablokkir um völdin í stjórnmálum og viðskiptalífi, eða hvað? Sakborningar, þ.e. forsvarsmenn Baugs samsteypunar, hafa haldið því fram að valdmiklir menn innan Sjálfstæðisflokksins með ítök í veikburða Kolkrabban, standi að aðförinni að sér. Forystumenn Samfylkingarinnar hafa tekið undir þetta í frægum ræðum. Fjölmiðlar í eigu Baugs...

Hetjan mín (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þú sem mér trúir og stendur sterkur sem klettur í ölduróti þótt vindar blási Taktu eftir tímanum sem taktfast líður og hlífur engum á ferð sinni heim Vertu ávalt trúr í gleði sem sorg í hafi harmsins býr hetjan mín

Álftin (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Í fjallasal flýgur álftin í frelsinu Vindar helsis blása úr norðri þróttin kæla Barnið grætur í kaldri nóttinni móðurlaust Haturshel hræðir sálir deyðir von Álftin baðar milda vængi í himnasal

Geir og Sjálfstæðisflokkurinn brugðust (7 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ákvörðun Geirs H Haarde að skipa Jón Steinar hæstaréttardómara var mikil vonbrigði. Þó Jón Steinar sé örugglega mjög hæfur lögmaður þá breytir það ekki því að hann er nátengdur forystu annars stjórnarflokksins þ.e. Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur varið flestar ákvarðanir formanns flokksins með svipuðum hætti og Hannes Hólmsteinn prófessor. Þarna hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins brugðist illilega báði Hæstarétti og flokknum. Þessi ákvörðun ásamt síðustu skipun dómara í Hæstarétt,...

Í tóminu (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Í tóminu liggur kraftur þinn hljóðlaust skimar þú heiminn þú hlustar en ert hljóður í sál okkar þú sáir von, gleði og kærleika og uppskeran er þín að lokum

Heilbrigðiskerfið að hruni komið (24 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Þeir sem eitthvað kynna sér ástandið í heilbrigðiskerfinu gera sér fljótt grein fyrir því að heilbrigðiskerfið er að hruni komið. Það er geysilega umfangsmikið og dýrt í rekstri en það sem skiptir meginmáli er að kostnaður sjúkra er hefur hækkað hættulega mikið. Eitt af meginstoðum velferðarkerfisins er öflugt heilbrigðiskerfi sem “grípur” fólk þegar það lendir í þeirri stöðu að veikjast. Það hefur alltaf verið grundvallarsjónarmið á Íslandi eins annars staðar á Norðurlöndunum að samfélagið...

Var Jón Ólafsson fíkniefnasali? (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Í Silfri Egils kom fram sú fullyrðing að Jón Ólafsson hefði verið viðriðinn fíkniefnasölu. Það hefði hann viðurkennt í einhverju viðtali. Ef rétt er eftir haft þá er þetta alvarlegt mál. Ekki bara fyrir hann heldur fyrir samfélagið allt. Hægt er að spyrja spurninga eins og: Hvernig komst hann upp með það án þess að vera tekinn? Er það í lagi að menn byrji ferilinn sinn í viðskiptum með þessum móti - komi fótum undir þann rekstur sem hann stjórnar í dag - og allir telji það vera í lagi? Hvað...

Forsætisráðherra búinn til í fjölmiðlun? (27 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég var að lesa grein hjá James bloggara http://afhverju.blogspot.com/ sem vakti mig til umhugsunar. Getur það staðist að Ingibjörg sé ekkert annað en í boði Jóns Ólafssonar og Baugsfegða? Vinnur ekki maðurinn hennar hjá Stöð 2? James bloggari skrifar: “Ingibjörg er hins vegar greinilega ”búin til“ af áðurnefndum aðilum. Stöð 2 og Fréttablaðið leitast við að birta jákvæðar fréttir um Ingibjörgu og hennar afrekum. Það sást vel í R-lista deilunni, þar sem ”andstæðingar“ hennar fengu slæma dóma,...

Barn (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Barn er sem óskrifuð bók Auðar blaðsíður bíða þess að vera skrifaða

Naugðun (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það húmar að degi þokan læðist að mér eins og þjófur að nóttu Allt sem var í gær er glatað í dag Hvar varstu er ég þarfnaðist þín? Ég stóð ein varnarlaus og týndi lífinu Hann braust inn í líf mitt óboðinn og tók frá mér sakleysið Hjarta mitt er hulið dautt sem steinn Ég er ei lengur ég sjálf heldur ókunnug vera sem tekið hefur bólfestu í mér Bjartur dagur kemur ei meir nóttin er eilíf

Stund og staður (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þú ekur hratt á lífsins vegi Í gær varstu hjá mér Í morgunsárið ókstu frá mér Hvar ertu núna á þessari stundu Allt er háð stund og stað Munum við mætast aftur á sömu stund á sama stað? Hvað er lífið annað en hrærigrautur tilviljana og tilfinninga

Lífið (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í dag fórstu frá mér varst farinn áður en ég gat áttað mig á hvar ég stæði Hvert fóru öll árin okkar saman hurfu þau burtu út í buskann út í tómið Var líf okkar blekking sambúð án tilgangs stefnulaust ferðalag í eyðimörkinni ferð án fyrirheits Á morgun verðum við bara stakar manneskjur sem áttum samleið stuttan spöl á langri lífsleið

Á morgun (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Dag eftir dag dvelurðu í tilgangsleysinu og horfir út í myrkvið Að kvöldi hvílirðu lúin bein og ert einum degi nær eilífðinni Í nótt græturðu brostna drauma og sefur svefni hinna saklausu Á morgun ætlarðu að sigra heiminn og gefa lífinu tilgang

Fuglar (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Líttu til himins og sjáðu sakleysið svífa í falllegum heiðbláum geimi þar sem fuglarnir fagna frelsinu með söng sínum þegar þeir fljúga til fjarlægra landa Sjáðu hve fimlega þeir falla og hefja sig að nýju á loft áhyggjulausir í leit að fyrri heimkynnum þar sem fegurðin og hlýr vindurinn tekur á móti þeim eins og móðir fagnar týndu barni.

Ný stjórnmálahreyfing - Skýr stefnumál (11 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég væri til í að taka þátt í stofnun hreyfingar sem hefði eftirfarandi á stefnuskrá: Meginmarkmið: Að auka frelsi einstaklinga og fyrirtækja. Setja hagsmuni fjölskyldunnar í öndvegi með öflugri velferðarstefnu. Bæta inn í stjórnarskrá landsins ákvæði um hámarks skattprósentu sem leggja má á einstaklinga. Stjórnarskráin á að vernda einstaklinga frá ofríki ríkisvaldsins og þar með talið of þungri skattbyrði. Frjálslyndi, jöfnuður og réttlæti skulu vera einkunnarorð nýrrar hreyfingar. Lög og...

Drottningarviðtal við Davíð (33 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hvað fannst mönnum svo um drottningarviðtalið við Davíð? Það eru örugglega skiptar skoðanir um það. Dyggir sjálfstæðismenn standa áreiðanlega með sínum manni og sama er að segja um andstæðinga Sjálfstæðisflokksins þ.e. þeim finnst hann hafa verið hrokafullan. En hlutlaust á litið? 2-2 eins og fótboltanum ef við lítum á það jákvæða sem hann sagði og það neikvæða. Hann hrósaði Össuru kallinum í fyrsta skiptið í langan tíma. Á móti hallmælti hann Ingibjörgu drottningu í Reykjavík heldur betur....

Góði maðurinn (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hann vildi vera góður maður alla daga og alla nætur brosti til heimsins og vildi hjálpa þáði aldrei neitt að launum gaf allt með glöðu geði krafðist aldrei neins af öðrum Var hann kannski helgur maður eða bara heimskur einfeldingur því enginn vildi ráðum hans fylgja bara þiggja og biðja um meira Kom sá dagur að hann ekkert lengur átti bara góðvild og brosið sæla og hamingjuna

Er Guð gleymdur? (39 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það læðist að manni sá hræðilegi grunur að Guð sé gleymdur. Hjá unglingunum er alla vega Guði “úti”. Hjá flestum er umræðan um Guð og það sem hann stendur fyrir - tabú. Ef einhver tæki upp á því að spjalla um Guðdóminn í kaffitímanum yrði litað á þann sama með undrunarsvip. Sá hinn sami yrði álitinn eitthvað skrýtinn eftir það. Við sjáum að um leið og Guðshræðslan hverfur þá fylgja hræðilegir glæpir og afskiptaleysið í kjölfarið. Við sjáum glæpi sem okkur hryllir við gerast í okkar...

Lítill draumur (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í dag fæddist draumur í dalverpi heimsins Þar ríkti gleði og glaumur í víðáttum geimsins Í friði og frelsi við fagnandi nutum og hötuðum helsi við hlekkina brutum

Grimmd og losti (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í dag var dómur upp kveðinn um litlar stúlkur sem rétt voru að byrja að ganga lífsveginn Á sólbjörtum degi var líf þeirra tekið og við skilin eftir örvingluð á miðjum vegi Hvað ertu þú sem slíkt getur af grimmd og losta án vægðar tekið líf einnar og annarrar saklausra stúlkna á miðjum degi

Dagrenning (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í dagrenningu rýkir kyrrð þess hægláta dagurinn kemur eins og lækur sem seytlar niður fjallshlíð án árennslu í fullkominni sátt við Guð og menn.

Heiður himinn (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sjáðu himininn svo heiðskír og blár þar sem fuglarnir fljúga og fagna nýjum degi. Er himnaríki svona fallegt ríkir þar heiðríkjan blá getum við hvílst þar að loknum löngum degi. Að liggja í grasinu og horfa til himins láta sig dreyma öllum áhyggjum gleyma. Sofðu vært minn vinur vertu barn þinna drauma Á himninum ríkir friður og frelsi andans.

Félaga tölvunar- og kerfisfræðinga (23 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Eftir að hafa lesið umræðuna um lögverndun tölvunarfræðingsins þá finnst mér rétt að varpa upp spurningunni hvort rétt væri að stofna stéttarfélag þeirra sem vinna að hugbúnaðargerð. Slíkt félag gæti sett á laggirnar ýmsa vinnuhópa til að tryggja ýmis réttindi sem eiga einungis við í þessari atvinnugrein. Einnig er orðin þörf á því að skapa samningsgrundvöll fyrir þennna hóp. Fróðlegt væri að fá skoðanir annarra um þetta.

Er þörf á nýju afli í þjóðmálaumræðunni? (14 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er það orðið svo að nauðsynlegt er að stofna almannasamtök til að taka á ýmsum réttlætismálum í þjóðfélaginu? Það virðist vera að inn í núverandi stjórnmálasamtök nái ekki hugmyndir og kröfur þorra landsmanna. Lýtum á nokkur dæmi: 1. Fólk á Íslandi situr uppi með margfalt hærra vöruverð í tíðkast í nágrannalöndunum. Þetta sýna kannanir ítrekað. Staðreyndirnar tala líka sínu máli. Verslunarkeðjur sem tryggt hafa fákeppni á markaði vita ekki lengur hvað á að gera við allan gróðann. Það er gott...

Býr í þér miskunnsamur Samherji? (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þú vaknar að morgni og horfir til himins fullur af lífskrafti og vonum. Svo lestu í blaðinu um hörmungar heimsins um græðgi, losta, grimmd og hatur Þeir skrifa um fátæktina, eymdina og frelsi - manna til að særa, stela, ljúga og drepa. Við sjáum það öll, sem viljum heyra og sjá að kærleikurinn er farinn og vonin frá okkur tekin. Eftir situr beiskt bragð vondra verka þar sem hið góða er vikið fyrir hinu illa Munt þú leggja lykkju á leið þína til að færa fátækum brauð - hjúkra þeim sjúku? Munt...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok