Í dag var dómur upp kveðinn
um litlar stúlkur
sem rétt voru að byrja
að ganga lífsveginn

Á sólbjörtum degi
var líf þeirra tekið
og við skilin eftir
örvingluð á miðjum vegi

Hvað ertu
þú sem slíkt getur
af grimmd og losta
án vægðar

tekið líf einnar
og annarrar
saklausra stúlkna
á miðjum degi