Líttu til himins
og sjáðu sakleysið
svífa í falllegum
heiðbláum geimi
þar sem fuglarnir
fagna frelsinu
með söng sínum
þegar þeir fljúga
til fjarlægra landa

Sjáðu hve fimlega
þeir falla
og hefja sig
að nýju á loft
áhyggjulausir
í leit
að fyrri heimkynnum
þar sem fegurðin
og hlýr vindurinn
tekur á móti þeim
eins og móðir
fagnar týndu barni.