Sjáðu himininn
svo heiðskír og blár
þar sem fuglarnir fljúga
og fagna nýjum degi.

Er himnaríki svona fallegt
ríkir þar heiðríkjan blá
getum við hvílst þar
að loknum löngum degi.

Að liggja í grasinu
og horfa til himins
láta sig dreyma
öllum áhyggjum gleyma.

Sofðu vært minn vinur
vertu barn þinna drauma
Á himninum ríkir friður
og frelsi andans.