Þú sem mér trúir
og stendur sterkur
sem klettur í ölduróti
þótt vindar blási

Taktu eftir tímanum
sem taktfast líður
og hlífur engum
á ferð sinni heim

Vertu ávalt trúr
í gleði sem sorg
í hafi harmsins
býr hetjan mín