Þú vaknar að morgni og horfir til himins
fullur af lífskrafti og vonum.
Svo lestu í blaðinu um hörmungar heimsins
um græðgi, losta, grimmd og hatur
Þeir skrifa um fátæktina, eymdina og frelsi
- manna til að særa, stela, ljúga og drepa.

Við sjáum það öll, sem viljum heyra og sjá
að kærleikurinn er farinn og vonin frá okkur tekin.
Eftir situr beiskt bragð vondra verka
þar sem hið góða er vikið fyrir hinu illa

Munt þú leggja lykkju á leið þína
til að færa fátækum brauð - hjúkra þeim sjúku?
Munt þú leggja allt í sölurnar fyrir náungann?
Býr í þér miskunnsamur Samherji?