Í dag fórstu frá mér
varst farinn
áður en ég gat
áttað mig á
hvar ég stæði

Hvert fóru öll árin
okkar saman
hurfu þau burtu
út í buskann
út í tómið

Var líf okkar blekking
sambúð án tilgangs
stefnulaust ferðalag
í eyðimörkinni
ferð án fyrirheits

Á morgun verðum við bara
stakar manneskjur
sem áttum samleið
stuttan spöl
á langri lífsleið