Það húmar að degi
þokan læðist að mér
eins og þjófur að nóttu

Allt sem var í gær
er glatað í dag

Hvar varstu
er ég þarfnaðist þín?

Ég stóð ein
varnarlaus
og týndi lífinu

Hann braust inn
í líf mitt óboðinn
og tók frá mér
sakleysið

Hjarta mitt
er hulið
dautt
sem steinn

Ég er
ei lengur
ég sjálf
heldur ókunnug vera
sem tekið hefur
bólfestu í mér

Bjartur dagur
kemur ei meir
nóttin er eilíf