Tvær skoðanakannanir í röð mæla að Samfylkingin hefur náð Sjálfstæðisflokknum í fylgi. Þetta hljóta að teljast stórtíðindi. Það vita hins vegar allir að skjótt skipast veður í lofti. Það væru tíðindi ef Samfylkingunni tækist að halda þessu “stími” til kosninga. Össur er mistækur en hefur vissulega styrkt stöðu Samfylkingarinnar með tilkomu Ingibjargar Sólrúnar. Ég var næstum búinn að skrifa “stöðu sína”, en það er öðru nær. Hans tími er liðinn. Ingibjörg skyggir á hann og hann er smámsaman...