Þú ekur
hratt
á lífsins vegi

Í gær
varstu
hjá mér

Í morgunsárið
ókstu
frá mér

Hvar ertu
núna
á þessari stundu

Allt
er háð
stund og stað

Munum við
mætast aftur
á sömu stund
á sama stað?

Hvað er lífið
annað en
hrærigrautur
tilviljana
og
tilfinninga