Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gong
gong Notandi frá fornöld 2.274 stig

Loksins, loksins tókst það hjá Reid (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Aldrei að gefast upp. Peter Reid hefur, ótrúlegt en satt, keypt leikmann. Hann var búinn að skoða ótrúlegan fjölda leikmanna að undanförnu og bjóða í helming þeirra þegar einn sagði; “allikey”. Það var hinn argentínski miðjumaður hjá Argentinos Juniors, Nicolas Medina. Reid lýsir yfir mikilli gleði með að hafa landað þessum 19 ára pilti sem hann greiddi fyrir 3,5 milljónir í ríkispundum. Það muna allir fóbboltafanar eftir Javi Moreno Alaveskalli sem setti tvö á Liverpool. Hann hefur lengi...

Níu "Englendingar" í franska hópnum. (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
9 leikmenn úr ensku deildinni eru í franska hópnum hjá Roger Lemerre sem tekur þátt í Samveldisleikunum sem haldnir eru í Suður - Kóreu í sumar. Ekki veit ég nú alveg hvaða lið munu keppa í þessari túrneringu en hún hefst 29. mai. Fjórir eru frá Arsenal en fyrir góða frammistöðu í vetur sá Lemerre sér ekki annað fært en að velja Olivier Dacourt, Leedsara, í hópinn. Annars er hann svona skipaður: Ulrich Ramé (Bordeaux), Mickaël Landreau (FC Nantes), Gregory Coupet (Lyon), Marcel Desailly...

England - U 21. (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sven Göran Ericson var að pæla í að velja hann Owen litla Hargreaves í Bayern Munchen í landsliðshópinn sinn en hann verður að gera sér að góðu að vera í 27 mann hóp u-21. Þeir eru að fara að spila vináttulandsleik gegn Mexico 24 mai og svo í undankeppninni gegn Grikklandi 5. júni. Einnig kemur Jermain Defoe frá West Ham inn. Hargreaves varð frægur á einu kvöldi fyrir frammistöðuna með Bayern gegn Real um daginn. Hins vegar spilar Bayern gegn Valencia aðeins 2 dögum fyrir leikinn gegn Mexico...

Guðjón ánægður með Petty (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Guðjón yfirstókari er hinn ánægðasti með Ben Petty sem fékk rauða spjaldið í leiknum gegn Walsall. Hann segir þetta hafa verið rétta ákvörðun hjá stráknum að stoppa Pedro Matias því lítið hafi verið eftir af leiknum og besti kostur að missa manninn útaf í þessari stöðu. Ekki hefði verið vænlegt að fara í útileikinn með mark í mínus - sem hefði kannski og kannski ekki……. -. En Petty kallinn fær ekki að vera með í næsta leik. Ég er asskolli hræddur um að menn þurfi að bíta í jaxl ætli þeir að...

Wenger áfram í London (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Samningur Arsene Wenger hjá Arsenal rennur út eftir næstu leiktíð og pælingar um hvað hann muni gera svo. Barcelona vill fá hann og eftir tapið gegn Poolurum héldu menn að hann myndi bara fara að fara. En nú segir kallinn að hann ætli að skrifa undir nýjan samning í næstu viku og ætli sér að kaupa eins og tvo nýja leikmenn í sumar. Hann viti hverja hann vill og það séu eingöngu algjörir toppkallar sem komi til greina. Eru þið Arsenal fanar ánægðir með þetta? ég held að hann verði alltaf...

Samherjar slást. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það gekk ekki vel hjá Bradford þegar þeir litu við á Elland Road á sunnudag. 5-1 í hléi og fordararnir ansi pirraðir. Andy Mayers og gamli moli Stuart McCall rifust undir lok fyrri hálfleiks og Meyers sló McCall sem borgaði fyrir sig með að skalla félagann. McCall fékk smá skurð á augabrún en heldur því fram að Viduka hafi sett olnbogann í trýnið á sér fyrr í leiknum! Yfirvideoskoðarar hjá FA ætla að tékka á þessu því hvorki má kýla og skalla mót- né meðherja, jafnvel þó maður sé mjög...

Stuart Pearce vill í stjórastól. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hinn aldni en þrælhressi varnarmaður West Ham, Stuart Pearce, hefur lýst yfir miklum áhuga á að taka við liðinu eftir skyndilegt brotthvarf Redknapps. Hugur hans hefur lengi staðið til þjálfunar og knattspyrnustjórnar. Hann hefur smá reynslu í því, tók við liði Nott. forest 1996 þegar Frank Clark lét þar af störfum. Pearce ætlaði að fara að skrifa undir áframhaldandi árssamning við West Ham þegar Redknapp fór og er nú í lausu lofti eins og allir virðast vera þar á bæ um þessar mundir. “Þetta...

Greame Souness í verslunarleiðangri. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Greame Souness, Blackburnsstjóri hefur lýst yfir áhuga á versla þá Nicky Butt frá Man.Utd og Ian Pearce frá West Ham. Þar sem Blackburn ætlar að keppa við stóru strákana næsta vetur þarf að fá nýja menn, helst með reynslu úr efstu deild. Talið er að hinn 26 ára Butt sé metinn á 7 millur og Ian Pearce, fyrrum Blackburnmaður, á um 4. Allt virðist í lausu lofti hjá West Ham um þessar mundir og stöðugt verið að falast eftir þeirra bestu mönnum. Alex Ferguson hefur gefið út að breytinga sé þörf...

Tigana vill Harte. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
samkvæmt upplýsingum úr ensku pressunni ætlar Jean Tigana, stjóri Fulham að bjóða 8 millj. punda í Ian Harte, írska landsliðsmanninn hjá Leeds. Tigana ætlar að styrkja liðið talsvert fyrir átökin í úrvalsdeildinni næsta vetur og M. Al Fayed, stjórnarmaður og eigandi Fulham er til í að spenda fullt af seðlum. Drengurinn með sinn öfluga vinstri fót var lengi í gang í vetur, var settur alllengi út úr liðinu en hefur staðið fyrir sínu að undanförnu. O´leary, Leedsstjóri vill nú ekki missa menn...

Barátta um stjórastól hjá Southampton! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sú saga gengur að bæði Harry Redknapp (fyrrv. West Ham) og Micky Adams (stjóri Brighton) hafi lýst yfir miklum áhuga á að taka við Southampton. Adams hafði verið orðaður við jobbið en eftir að Redknapp lýsti yfir áhuga hefur Adams rætt opinberlega um hvað það væri nú spennandi að fara til Southamton, þó hann sé voða ánægður hjá Brighton og bla bla (dauðlangar greinilega). Vitað er að Rupert Lowe, stjórnarformaður Southamton vill fá vanann kall í stólinn svo nú hefst baráttan. Sjálfur held ég...

Bowyer í bann. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Lee Bowyer hefur nú verið dæmdur í þriggja leikja bann í Evrópukeppninni fyrir að trítla aðeins oná Sanches Valenciumanni á Elland Road sl miðvikudag. Þetta var nú asnalegt hjá honum og ekki glæsilegar fréttir fyrir Leedsara sem þurfa sko að eiga toppleik ætli þeir að komast í úrslitin. Valencia er vant að vinna sína heimaleiki og ætla sennilega ekkert að breyta því, en… aldrei að vita. Gott þó að Batty er með þó hann sé í banni á Englandi. Bowyer verður allavega ekki markahæstur í...

Ray Parlour. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Peter Reid, stjóri Sunderland er á útopnu við að reyna að redda nýjum leikmönnum fyrir næstu leiktíð. Ekkert hefur gengið hjá karlræflinum hingað til en nú vill hann Ray Parlour hjá Arsenal fyrir 5 mill. punda. Hann bauð í Parlour í haust og gerir nú aðra tilraun. Parlour hefur verið á bekknum í talsverðan tíma en oftast komið inná og hugsanlega er hann til í flutning, þessi 28 ára gamli leikmaður. Reid verður að vera á útopnu eitthvað áfram því ekki er ósennilegt að Kevin Phillips fari á...

Evrópudeikdarsætin (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Sem Leedsari vil ég óska Arsenal fönum til hamingju með sigurinn ídag. Þið völtuðuð yfir okkur í 60 mín en mínir menn náðu sér aldrei á strik. Nú þarf mikið að gerast svo Liverpool detti niður úr þriðja sætinu eftir frækinn sigur í dag en við höfum samt ekki játað okkur sigraða. Eigum eftir Bradford og Leicester heima en Liverpool á eftir Chealsea og Charlton. Alltaf fréttir um að Leeds ætli að nota Harte og Bridges sem skiptimynt í sumar en ég trúi því ekki. Harte er glimrandi...

Hvað með Campell??? (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Glen Hoddle ætlar að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda í Sol Campell. Hefur gefið út að Tottenham vilji og ætli að kaupa Petit og Gardila frá Barcelona og Sheringham frá Man Utd og á það að freista Campell. Talið er að boð upp á 9 mill. punda í Petit berist Börsungum fljótlega og heyrist manni á fréttum að Gardiola muni fara til spurs. Til að hjálpa Rebrov á svo að fá Sheringham en umbinn hans segir hann ekki fara neitt. Mörg stóru liðin eru á eftir Campell sem kannski mun ekki...

Citizen Cane (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum
Sá Citezen Cane í Háskólabíói í kvöld. Haldið upp á 1. árs afmæli Filmundar með þessari 60 ára gömlu mynd Orson Wells. Hafði áður séð hana á video, tvisvar í misgóðum fíling. Þetta var allt annað. Algjör argandi gargandi fokkíng snilld. Þessi maður var barasta bara snilli því þarna voru talmyndir tiltölulega nýkomnar en þessi mynd var brautryðjendaverk á margan hátt. Tveggja tíma löng ræma með mörgum flottum fítusum og ég skora á ALVÖRU kvikmyndaáhuga(á huga)fólk að sjá hana. Alvöru...

Valencia náði jöfnu. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Það má alveg segja að Valencia hafi náð jafntefli við Leeds á Elland Road í gærkvöldi i Meistaradeildinni. Þetta var snilldarleikur þrátt fyrir 0-0 jafntefli. Rosalega barátta en engin hræðileg brot og aðeins 2 menn fengu spjöld - í seinni hálfleik. Báðir markmenn sýndu snilldartilþrif og gríðarleg barátta sem skilaði báðum liðum nokkrum færum. Smith var að vanda ótrúlega duglegur, jafnvel einum of því hann skallaði einu sinni framhjá þegar Viduka beið eftir að skalla í autt markið. Miðað...

5 ára samningur hjá Burley (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
George Burley, stjóri Ipswich hefur slegið á sögusagnir um að hann væri á förum. Hefur kallinn skrifað undir nýjan 5 ára samning við félagið. Heyrst hafði að Rangers vildi fá hann í sínar raðir og jafnvel að hann yrði fenginn til Man Utd þegar Ferguson hætti, en sennilega sem aðstoðarmaður þar. Talað hefur verið um 500 þús pund á ári handa kalli sem hann er bara hress með. Stjórnarformaður Ipswich, David Sheeepshanks, lýsti yfir mikilli ánægju og sagði að þeir væru nánast komnir í...

Merkilegir úrslitaleikir (12 álit)

í Handbolti fyrir 23 árum
Þetta eru nú alveg merkilegir leikir hjá KA og Haukum. Þessi no 2 var nú sérlega dularfullur þar sem 7 marka munur virtist ekki skipta höfuðmáli. Það er alveg merkilegt hvað ungu strákarnir hjá KA eru duglegir. Ég hélt að það væri ekkert að koma út úr Atla þjálfara, engir bikarar í 4 ár en hann hefur greinilega verið að byggja vel upp almennilegt lið. 9 marka munur í kvöld er nú bara slatti og Hörður Flóki orðinn helv góður í markinu. Hissa hvað markmönnum Hauka gekk illa, tveir annars góðir...

Carlingdeild verðu Barcleydeild (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að kortafyrirtækið “Barcleycard” verði styrktaraðili ensku úrvalsdeildarinnar næstu þrjú árin. Þessi nýi samningur er áætlaður að verðmæti 48 milljónir punda en Carling sem styrkt hefur deildina að undanförnu ákvað að hætta því. Carling samningurinn var að verðmæti 36 milljóna þannig að innkoman hjá knattspyrnusambandinu hækkar um 1/3. Richard Scudamore, stjórnarmaður í “Premierleague” (á mynd) var voða glaður þegar hann tilkynnti þetta og næstu...

Lykilmenn hvíldir fyrir evrópurimmu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Miroslav Djuckic, leikmaður Valencia og Júgóslavíu hefur varað Leedsara við stríðsástandi á Elland Road á miðvikudag. “Leeds er með baráttulið en við föllum ekki í sömu gryfju og Deportivo” segir varnarjaxlinn Djukic og lofar svaka rimmu. Hector Cuper, stjóri Valencia segist ætla að senda Leedsara út úr keppninni og hefur hvílt Gaizka Mendieta og John Carew fyrir átökin.

Sunderland leitar til Frakklands (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Pierre Yves Andre, framherji Bastia í Frakklandi hefur nú tekið sér nokkra daga í að velja úr tilboðum en hann losnar undan samningi eftir 3 mán. Þessi 27 ára franski piltur mun fá ansi fín laun hjá nýju félagi sem mun ekki borga neitt fyrir drenginn og velur um Sunderland, Rangers, Nantes og Monaco. Peter Reid, stjóri “svörtu kattanna” hefur boðið Andre fjögurra ára díl og yrði hann með hæst launuðu leikmönnum liðsins. Þess má geta að Reid hefur verið með Andre í sigtinu í hálft ár enda...

Alf Inge í aðgerð - vegna Keane (28 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Alfie Haaland, man city drengur þarf víst að fara í aðgerð vegna höggsins sem hann fékk frá Keane í derby leiknum við united. þetta var nú ekki fallegt og ekki alveg óvart hjá Keane og leiðinlegt að sjá þetta frá svona góðum fóbboltagæa. Eins og allir vita sennilega virðist þetta hafa verið hefnd síðan í leik Leeds og Man utd frá sept ´98 þegar þeir piltar tækluðu hvorn annan þannig að Keane var frá restina af tímabilinu. Alf Ingi þykist heppinn að sleppa svona vel frá þessu atviki og ætlar...

Babayaro hreinsaður af ásökunum um ljótan leik (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Muniði eftir leik Arsenal og Chealsea á highbury í febrúar? það fór allt í háaloft en ljót framkoma Babayaro hjá Chelsea vakti ´mikla athygli. Hann var kærður fyrir m.a. að sparka niður Bergkamp og það sem var miklu ljótara, að labba á leggjum Ljungberg þar sem hann lá í grasinu. Hann hefði nú bara léttilega getað brotið beinin í pilti, að mínu viti var þetta ógeðslegt og eingöngu tilraun til að meiða. Babayaro hefur hinsvegar verið hreinsaður af öllum ásökunum af FA og má vera glaður yfir...

Real Madrid bætist í hóp Vidukaaðdáenda (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Spænska fréttablaðið “Marca” hefur það eftir Jorge Valdano, yfirkalli hjá Real Madrid að þeir séu að bjóða í Viduka hjá Leeds og samningaviðræður séu jákvæðar. Enn er talað um 20 millur í ríkispundum en Peter Ridsdale hja´Leeds heldur fast við að hann sé ekki til sölu. Hjá Real þykjast menn vissir um að fá Viduka vinni þeir meistaradeildina en spurning hvort hann vilji frekar fara til Ítalíu þar sem minnst 3 lið eru sögð á eftir honum. Svo fær hann kannski bara ekkert að fara! Hinsvegar...

Hendry í sex leikja bann (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Colin Hendry, gamli varnarjálkur sem nú er hjá Bolton, var dæmdur í 6 leikja bann af FIFA og fær 4100 punda sekt. Þetta krækti hann sér í með olnbogaskoti í Nicola Albani, leikmanni San Marino. Craig Brown, landsliðsþjálfari Skota studdi sinn mann af krafti en fékk engu breytt, enda sýndu upptökur að þetta var högg sem Hendry vill að sjálfsögðu meina að hafi verið algjörlega óviljandi. Hann hefur náttúrulega alltaf verið svaka nagli en ég minnist þess ekki að hann hafi meitt neinn viljandi í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok