Colin Hendry, gamli varnarjálkur sem nú er hjá Bolton, var dæmdur í 6 leikja bann af FIFA og fær 4100 punda sekt. Þetta krækti hann sér í með olnbogaskoti í Nicola Albani, leikmanni San Marino.
Craig Brown, landsliðsþjálfari Skota studdi sinn mann af krafti en fékk engu breytt, enda sýndu upptökur að þetta var högg sem Hendry vill að sjálfsögðu meina að hafi verið algjörlega óviljandi.
Hann hefur náttúrulega alltaf verið svaka nagli en ég minnist þess ekki að hann hafi meitt neinn viljandi í gegnum tíðina. Kannski var þetta óvart en hann spilar ekki landsleik á næstunni, blessaður kallinn.