Peter Reid, stjóri Sunderland er á útopnu við að reyna að redda nýjum leikmönnum fyrir næstu leiktíð. Ekkert hefur gengið hjá karlræflinum hingað til en nú vill hann Ray Parlour hjá Arsenal fyrir 5 mill. punda. Hann bauð í Parlour í haust og gerir nú aðra tilraun. Parlour hefur verið á bekknum í talsverðan tíma en oftast komið inná og hugsanlega er hann til í flutning, þessi 28 ára gamli leikmaður. Reid verður að vera á útopnu eitthvað áfram því ekki er ósennilegt að Kevin Phillips fari á önnur mið í sumar ef marka má enska fjöl- og netmiðla en mörg lið virðast hafa áhuga.