Loksins, loksins tókst það hjá Reid Aldrei að gefast upp. Peter Reid hefur, ótrúlegt en satt, keypt leikmann. Hann var búinn að skoða ótrúlegan fjölda leikmanna að undanförnu og bjóða í helming þeirra þegar einn sagði; “allikey”.
Það var hinn argentínski miðjumaður hjá Argentinos Juniors, Nicolas Medina. Reid lýsir yfir mikilli gleði með að hafa landað þessum 19 ára pilti sem hann greiddi fyrir 3,5 milljónir í ríkispundum.
Það muna allir fóbboltafanar eftir Javi Moreno Alaveskalli sem setti tvö á Liverpool. Hann hefur lengi verið undir smásjá liða í Evrópu og Aston Villa ætlar sér í slaginn. Vitað er að fyrrum klúbbur Morenos, smáliðið Barcelona, vill hann aftur og Middlesborough (sem er að reyna að ræna Brian Kidd frá Leeds því Venables vill, næstum öruggt, ekki vera áfram) vill vera með. Annars var Moreno frægur á Englandi fyrir að klúðra víti gegn Englendingum fyrir einhverjum mánuðum. Í samningi hans segir að hann megi fara komi boð upp á 5 og hálfa millu punda.