Spænska fréttablaðið “Marca” hefur það eftir Jorge Valdano, yfirkalli hjá Real Madrid að þeir séu að bjóða í Viduka hjá Leeds og samningaviðræður séu jákvæðar. Enn er talað um 20 millur í ríkispundum en Peter Ridsdale hja´Leeds heldur fast við að hann sé ekki til sölu. Hjá Real þykjast menn vissir um að fá Viduka vinni þeir meistaradeildina en spurning hvort hann vilji frekar fara til Ítalíu þar sem minnst 3 lið eru sögð á eftir honum. Svo fær hann kannski bara ekkert að fara!
Hinsvegar virðast Realmenn ætla í þetta kapphlaup af mikilli alvöru þar sem þeim mistókst að fá Nistelroy. Fernando Morientes er eitthvað meiddur en Guti er í fínu formi.