Evrópudeikdarsætin Sem Leedsari vil ég óska Arsenal fönum til hamingju með sigurinn ídag. Þið völtuðuð yfir okkur í 60 mín en mínir menn náðu sér aldrei á strik. Nú þarf mikið að gerast svo Liverpool detti niður úr þriðja sætinu eftir frækinn sigur í dag en við höfum samt ekki játað okkur sigraða. Eigum eftir Bradford og Leicester heima en Liverpool á eftir Chealsea og Charlton. Alltaf fréttir um að Leeds ætli að nota Harte og Bridges sem skiptimynt í sumar en ég trúi því ekki. Harte er glimrandi aukaspyrnukall og skoraði glæsimark í dag. Svo skaut hann í stöng af 40 m færi. Svo óska ég Skumsurum til hamingju með dolluna sem þeir fengu - verðskuldað- í dag. Sú síðasta næstu 5 árin!