Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gong
gong Notandi frá fornöld 2.274 stig

Sámur frændi pínir og potar (16 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nú var Bush, kallinn, að undirrita ný lög og reglur um að kanarnir mættu spæja, nánast að vild, um alla þá sem þeim þykir pínkuponsu grunsamlegir og þeir eru sko slatta margir. Nú má hlera síma og fylgjast með ferðum manna án mikilla heimilda, jafnvel engra, og það er ekki mikið mál í dag á tímum rafrænna boða, þ.e. síma, gemsa, netsins, korta o.s.fr. Svo má taka menn “til skoðunar” að vild. Jeminn góður, ég er ekki mjög hrifinn af þessu. Við lifum á tímum átaka og ótta eða einfaldlega...

pælari og penni (9 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
þetta er ein flottasta grein sem ég hef séð um vestrænar bombur á Afganistan. Þetta er tekið af Silfri Egils á strik.is og greinina skrifaði Pétur Tyrfingsson þann 10.10.2001. Viðsjárverðir tímar Hvert er bandaríska herveldið að fara með okkur? Ræða George Bush í sameinuðu þingi á Kapítólhæðum 20. september markar tímamót. Húsið var fullt af þingmönnum, hermönnum, bírókrötum og gestum. Forsetinn hrósaði fólki á báða bóga, þar á meðal Tony Blair sem sat í salnum bergnuminn. Svo gaf hann...

Spæli trúður og tónlistarveisla. (1 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Í deiglunni eru trúðslæti, kórsöngur, blús og rokk því margt verður um að vera á Ingólfstorgi og á Gauk á Stöng á laugardaginn nk. Er það vegna alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins sem reyndar var á miðvikudaginn sl. undir yfirskriftinni “vinna og geðheilbrigði” en á laugardag er það “vertu með í að rækta þitt geð”. Hefst hann með göngu kl.14 frá Hlemmi að Ingólfstorgi undir lúðrablæstri þar sem fjölskylduhátíð verður haldin. Tjaldbúðum verður slegið upp og félög er koma að málefnum geðfatlaðra...

frakkar í fíling (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Risið upp úr öskustó -Litla og mjóa Amélie leiðir franska endurreisn- Undanfarið ár hafa Frakkar, líkt og Bretar í gegnum árin, sýnt að þeir vilja helst láta mata sig með hraðsoðinni Hollywoodframleiðslu þegar þeir fara í bíó. Síðastliðið ár var algjört flopp í franskri kvikmyndagerð, samdráttur varð um þriðjung í iðnaðinum og Marin Karmitz, framleiðandi litamyndanna þriggja, leikstýrðum að Krzystof Kieslowski, lýsti því yfir að frönsk kvikmyndagerð væri komin í alvarlegar kröggur. En...

cher tælir (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Cher að tæla Óskarsverðlaunahafinn, hún Cher (Cherilyn Sarkisian LaPierre), sem orðin er 55 ára er að reyna að tæla hinn 32 ára gamla Brendan Fraser til að leika á móti sér í sinni næstu mynd. Cher er ekki feimin við að lýsa yfir aðdáun sinni á Fraser, sem elt hefur múmíur af miklum móð á undanförnum árum Myndinni ætlar hún að leikstýra sjálf, auk þess að vera í aðalhlutverki. Heitir hún The Enchanted Cottage og er þetta önnur endurgerð sögunnar sem fyrst kom út 1924. Þá sem þögul mynd, með...

skjöldurinn góði (15 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mig langaði bara aðeins að tjá mig um Góðgerðarskjaldarleikinn. Skrapp á Sportkaffi og þar var fullt af Man Utd fönum og Liverpool fönum. Þetta var super skemmtun og vona ég bara að maður fái að sjá meira af svona bolta í vetur. Manchestergaurarnir fengu náttúrulega á sig tvö klaufamörk í fyrri hálfleik, Keane á nú að vita betur en að skella mönnum inni í teig. En þetta var á annari mínútu og menn ekki komnir í gírinn. Seinna marki var nú slys, Stam skrallaði á hausinn og Owen sýndi snilli...

Hoddle í ham (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Glenn Hoddle er að rembast eins og rjúpa við staur að fá menn. Hann hefur viðurkennt dálæti sitt á Dean Richards, varnarmanni Southamton og hefur víst boðið í manninn sem er 27 ára. Richards var með einhverjar yfirlýsingar um “að Spurs væru eitt af sex bestu liðunum í deildinni og kannski gaman að……” svo ekki er talið ólíklegt að hann langi til fyrrum stjóra síns. Hinsvegar eru Southamtonmenn ekkert á því að láta kallinn fara, enda ekkert ánægðir með Hoddle og óska honum væntanlega ekki alls...

byrjað að rúlla knettinum á Englandi (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
1. deildin hófst í dag á Englandi. Coventry, með Strachan, vin minn, gargandi á línunni, vann Stockport 2-0 á útivelli með mörkum frá Lee Hughes, hinum glænýja í fyrri hálfleik og CarsleyÍ þeim síðari. Hinn 22 ára sonur framkvæmdastjórans, Gavin Strachan, var á bekknum (tékkaði á því vegna þess að ég sá að varamaður var Strachan, hélt kannski að kallinn vildi inná, vissi ekki betur) og Magnus Hedman var líka á bekknum. Spurning hvað verður um kallangann? Alltaf verið að bendla hann við hin...

Brynja píurama (4 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Var að horfa á panorama. Ekki varð ég nú hrifinn af þættinum. Hræðilega lítið af nammi í rosa stórum og skreyttum poka. Þetta var allt svo straujað og bónað að það er ekki fyndið. Ég vil fá lítinn og nettan þátt þar sem innihaldið er aðalatriði og grafísku hönnuðurnir geta dúllað sér við annað prógramm. Bara eitthvað sem er tekið upp, svona eins og heima í stofu. Ekkert talað um hvað er á döfinni, bara það sem er að koma á næstu dögum. Þó er það allt í lagi, ég vil bara meira. Gaman að sjá...

Enskir Hollendingar fljúga í hópinn (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hollensku nýliðarnir á Englandi, Van Bronckhorst, Van der Sar, Nistelrooy og Zenden eru allir í hollenska landsliðshópnum sem mætir Englendingum í næstu viku. Talið er að Nistelrooy muni verða í fremstu víglínu ásamt Hasselbaink. Athygli vekur að Frank de Boer og Edvar Davids eru í hópnum. Davids má vera með í vináttuleikjum en ekki alvöru næstu mánuðuna. De Boer má hinsvegar spila alla leiki frá og með (að mig minnir ) 1. sept. Hollenska liðið: Van der Sar (Fulham), Westerveld (Liverpool),...

Holland - England (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Rio Ferdinand er meiddur og missir örugglega af vináttuleik Englendinga við Hollendinga þann 15. ágúst. Jafnvel er talið að hann missi af hinum þýðingarmikla leik við Þjóðverja 1. sept. Erikson ætlaði sér að hafa hann með Campbell þarna aftast (þeas ef Campbell verður hress) en þarf að pæla í breytingum. Það versta er að Rio missir væntanlega af einhverjum leikjum með Leeds. Erikson sendi aðstoðarmann sinn, Tord Grip, til Eistlands þar sem Ipswich er í ferðalagi til að fylgjast með Marcus...

Þá gekk sú rófan, sagði Samúel. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það gekk þá, hjá honum Strachan, að ná í Lee Hughes frá West Brom. Ekki veit ég kaupverðið nákvæmlega, en allavega var eitt boð uppá 5.000.001 pund. Írski landsliðsmaðurinn Keith O´Neill gekk einnig frá samningi við Coventry í dag, frá Middlesbrough og Strachan er að rembast við að ganga frá samningi við Marokkó búann, Youssef Safri sem spilar með Raja Casablanca. Duglegur, hann Gordon gamli.

Arsenal gæjar (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Kanu segir að ef hann þurfi að verma bekkinn áfram, eins og oftast sl vetur, vilji hann fara aftur til Inter Milan. Þeir hafa víst alveg áhuga á að fá hann til sín. Kanu vill meina að hann eigi skilið sæti í byrjunarliðinu og nennir ekki svona ströggli. Hann ætlar samt aðeins að bíða og sjá hvað verður. Alex Manninger hefur staðfest að hann sé að fara til Fiorentina á lánssamning, og verður þar næstu leiktíð. Svo má geta þess að ofbeldið er að verða leiðinlegt þegar lið ferðast milli landa...

Í fréttum var þetta helst........ (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ferguson segir að Chelsea verði helstu andstæðingar Man Utd í vetur. Viðurkennir að þetta verði mjög erfitt, þeir taki þetta ekki eins létt eins og síðast. Liverpool og Arsenal verði liði sínu skeinuhætt líka og Leeds komi þar á eftir. Ég segi samt, enn og aftur. Áfram Leeds. Robert Prozinecki hefur verið neitað um leikheimild af enska knattspyrnusambandinu. Þeir halda sig ákveðið við sína stífu 75% reglu, þe að hann hefur greinilega ekki náð ¾ leikja króatíska landsliðsins á síðustu tveimur...

Bryan Robson á heimaslóðir? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Bryan Robson hefur verið boðin staða hjá Man Utd, sem aðstoðarþjálfari, eða “ part time coach”, sem útleggst kannski frekar sem “þjálfari í hlutastarfi”. Robson, sem eitt sinn var nú talinn líklegur arftaki Ferguson, hefur eins og allir vita, ekki gengið allskostar vel við stjórnvölinn undanfarin ár. Kannski líður honum betur hjá sínum gömlu félögum. Kallinn er í fríi núna og ræðir þetta við stjórnarmenn þegar hann kemur heim. Thomas Myhre, norski landsliðsmarkvörðurinn, tók ekki tilboði...

fimm millur og eitt pund! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Gordon Strachan neyddist til að selja John Hartson til Celtic um daginn. Fékk hann 6,5 millur í budduna sem hann sagðist ætla að eyða umsvifalaust í framherja. Nú bauð kallinn fimm milljónir og eitt pund! í Lee Hughes, sem flest neðri deildar lið virðast vera á eftir. Ekki man ég þó til að úrvalsdeildarliðin hafi reynt að fá piltinn. Hann spilar með West Bromwich og setti minnir mig nálægt þrjátíu mörk sl vetur og annað eins leiktíðina þar áður. West Brom vill fá enn meir fyrir piltinn en í...

Sorin í viðræðum við Man Utd (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það kemur víst fram í brasilíska blaðinu “Lance” að umbinn hann Gustavo Mascardi, kallaður “argentínski súper umbinn” sé í viðræðum við Man Utd vegna varnarmannsins Juan Pablo Sorin. Þessi 25 ára piltur er að sjálfsögðu argentínskur landsliðsmaður og spilar nú með Cruzeiro í Brasilíu. Áður spilaði hann með River Plate og Juventus og þetta virðist víst ganga vel, því Cruzeiro eru að reyna að fá Athirson, Juventuskall, aftur til sín til að fylla í skarð Sorin. Argentínumenn eru efstir í Suður...

skaphundar (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Á heimasíðu Fiorentina segir að þeir hafi samþykkt tilboð West Ham í varnarmanninn Alessandro Pierini fyrir 14 billjón lírur!!! Það er víst eitthvað nálægt 4,5 millum í pundum talið. Glenn Roeder er eins og flestir stjórar á fullu að styrkja lið sitt fyrir átökin í vetur. Pierini er í London og mun gangast undir læknisskoðun. Hann og Roberto Mancini, stjóri Fiorentina, eiga víst ekki alveg skap saman þannig að þetta er víst bara góður kostur fyrir alla aðila. Það eru víst fleiri í boltanum...

banaslys í umferðinni - á Englandi (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hinn 25 ára gamli markvörður Portsmouth, Aaron Flahavan lést í umferðarslysi sl nótt. Pilturinn ólst upp hjá Portsmouth og hefur hægt og bítandi verið að vinna sig í sessi sem aðalmarkvörður liðsins. Einhver meiðsl höfðu verið að hrjá hann að undanförnu þannig að hann spilaði ekki í 2-1 sigurleik á móti Leicester í gær en var engu að síður orðinn fyrsti kostur í markið. Graham Rix, sem orðinn er framkvæmdast. Portsmouth og allir topparnir þar hafa lýst yfir mikilli sorg og leikmenn liðsins...

"punda"bikarinn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Nú á að fara að veita verðlaunafé með FA bikarnum fína. Þetta er algjör nýlunda, enda heiðurinn í veði og ekkert peningakjaftæði hingað til. Margir urðu fúlir þegar Man Utd vildi ekki vera með fyrir tveim árum og þá var farið að ræða um “gulrót”. Verðlaunafé verður 2 millur en einnig munu þau lið sem vinna leiki sína, og þannig smám saman komast nær bikarúrslitum, fá bónusgreiðslur. Það munar um það fyrir litlu liðin og ef þetta hefði verið svona í fyrra hefði Wycombe Wanderers fengið 725...

Wenger í þungum þönkum (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Arsene Wenger hefur dregið það von úr viti að skrifa undir áframhaldandi samning við Arsenal. Hann hefur lengi sagt að hann muni skrifa undir, ekkert annað komi til greina (nema það að hann hótar að hætta þjálfun ef leikmenn geti skipt um lið að vild og farið þangað sem peningarnir eru mestir). Hinsvegar hafa allskyns spekúlasjónir verið í gangi, þar sem mörg stórlið hafa lýst yfir áhuga á að fá kallinn til sín. David Dein í stjórn Arsenal hefur fengið nóg af þessu drolli og hefur nú gefið...

flutningar, meiðsli og bönn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Edgar Davids hefur verið dæmdur í 8 mánaða bann, af ítölsku lyfjanefndinni. Fyrst var hann dæmdur í ársbann en talið var að það yrði stytt í ca 6 mánuði, en átta urðu niðurstaðan. Svo þarf kallinn að greiða um 100 þús dollara í bætur, sem eru eins og 10 millur íslenskar, takk fyrir. Þó ég sé einhver fimm-sex ár að vinna fyrir því, tekur það hann svona u.þ.b. viku, svo ég vorkenni honum ekkert. Þrátt fyrir að Marcello Lippi, hinn nýi þjálfari Juve, segist ekkert vera í verslunarhugleiðingum,...

Fótur á Faraldi (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þá hefur Sunderland loksins gengið frá kaupum á Svissneska landsliðsmanninum Bernt Haas. Hann kostaði bara 1 millu og skrifar undir í fjögur ár. Þessi 23 ára piltur spilar í vörninni og kann best við sig sem hægri bakvörður. Þá hefur Steve McClaren, gamli Man Utd þjálfari, loksins náð til sín þeim Greening og Wilson. Þetta er búið að vera drama í allt sumar þar sem Ipswich, og að mig minnir einhver fleiri lið, blönduðu sér í . United vildi 4,5, Boro vildi borga 3,5, svo farinn var...

Faraldsfóturinn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það lítur út fyrir að Magnus Hedman fari frá Coventry til Everton í næstu viku. Prísinn er 3,4 millur og allir sáttir. Það á þó eftir að ganga frá einhverjum endum en aðalmálið er hvort Mikhael Ball fari ekki örugglega til Rangers. Þá fær Everton ca 6,5 millur, annars eiga þeir eitthvað erfitt með að borga. Þetta fer örugglega alltsaman vel. Gamlir Poolarar ætla að blanda sér í fótboltaslag að nýju. Roy”hinn góði” Evans hefur verið ráðinn stjóri hjá Swindon Town með Neil”hinn slæma”sem...

Total Football (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrst langar mig að segja ykkur frá því að ég keypti mér ágústheftið af Total Football. Þar eru 50 flottustu fótboltamyndir að mati blaðsins og er sú elsta frá 1867 og sú nýjasta bara frá því í fyrra (í það minnsta nýleg). Þetta eru guðdómlegar myndir og ég skora á alla að kíkja á blaðið. Það kostar að vísu þúsundkall en er þess virði. Nokkrir koma oftar en einu sinni fyrir en fyrir “prúðmannlega” framkomu fær Winnie Jones tvisvar að vera með. Í annað skiptið er hann að tækla 5 ára strák svo...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok