Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gong
gong Notandi frá fornöld 2.274 stig

Þýðandi og þulur var Þröskuldur Þráinsson (17 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þrátt fyrir að fullyrt hafi verið tuttugu sinnum að John Arne Riise sé á leiðinni frá Monaco til Fulham virðist hann nú samt á leiðinni til Liverpool. Hann var víst alltaf heitur fyrir þeim og mamma hans, hún Berit, er algjör gribba sem segir ýmislegt en meinar oft eitthvað annað. Þegar ensku liðin voru að reyna að ná honum í fyrra gáfust þau upp á kellu sem hækkaði verðið um milljón pund á vikufresti. En hann valdi Liverpool sem þurfa að borga í það minnsta 4 millur sem Fulham ætlaði að...

2 til Englands - 1 í burtu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir hjá Derby halda því fram að sennilega geri þeir samning við Ravanelli í kvöld en hann er nú á Englandi að ræða málin. Lazio hafði fyrir sitt leyti samþykkt 2 millur og svo fær hann 35 þús pund á viku. Nelson Vivas er farinn til Inter Milan. Fór frítt og er ægilega glaður með það. forsvarsmenn Sunderland segjast alveg vera að ná samningum við Bordeaux um kaup á Lilian Laslanders, 29 ára frönskum landsliðsmanni. Allavega fyrrverandi landsliðsmanni þar sem hann var ekki valinn í hópinn í...

West Ham samþykkir 11 millur í Lampard (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Flest virðist nú benda til að Frank Lampard muni fara til Chealsea, en ansi mörg lið hafa verið orðuð við kappann. Aston Villa bauð 15 millur í Lampard og Kanoute, saman, en West Ham gengið varð bara hneykslað. Lampard er í fríi en ræðir við Chelsea þegar hann kemur en þeir hafa boðið 11 millur sem West Ham hefur fyrir sitt leyti samþykkt. Anders Svensson, leikmaður Elfsborg og sænska landsliðsins, er á leið til Southampton. Hann kostaði 750 þús pund en Southampton hafði boðið 300 þús. Þegar...

Bowyer fær ekki að vera með. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eriksson hefur farið fram á það, við FA, að fá Lee Bowyer í landsliðshópinn. Bowyer er í banni frá landsliðinu meðan yfirheyrslur og réttarhöld yfir honum standa yfir. FA svaraði Eriksson strax með nei-i. Sven Göran hefur áhuga á að bæta Bowyer og Kieron Dyer í hópinn, en verður að bíða vegna meiðsla og banns. Eriksson hefur látið hafa það eftir sér að hann ´sjái Bowyer sem framtíðarmann, vinstra meginn á miðjunni í landsliðinu. Af öðrum Leedsurum er það að frétta að Michael Bridges, sem var...

Þjálfarafréttir úr Evrópu!!!!!! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Margir hafa verið orðaðir við þjálfarastöðuna hjá Barcelona eftir að Llorenc Serra Ferrer var rekinn. Talað var um Arsene Wenger, Carlos Bianchi, Hector Cuper, jafnvel Ronald Koeman og svo Alex Ferguson. Nú er talið að Charly Rexach, aðstoðarþjálfari hjá Barca verði boðin staðan. Hann er fyrrv. Landsliðsmaður Spánverja og Patrick Kluivert hefur látið hafa eftir sér að honum lítist mjög vel á málið. Didier Deschamps, leikmaður Valencia og fyrrum leikm. Chealsea segist hættur að spila fótbolta...

Eriksson í ham. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sven Göran Eriksson, dáðasti maður Englands, hefur gefið það út að hann og aðstoaðrmaður hans, Tord Grip, ætli að fylgjast vel með leikmönnum í sumar. Þeir muni fylgjast með æfingum, kynnast þjálfurum betur og mæta grimmt á æfingaleiki. Þeir séu sko alveg tilbúnir til að þvælast milli landa til að horfa á æfingaleiki og svo neyðist hann nú til að mæta á vináttulandsleik Englendinga og Hollendinga sem er settur á þann 15. águst. Eriksson hefur boðið David Platt, stjóra Nottingham Forest að...

Poyet fer, en hvað um Eið?!! (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það var svosem komið fram að Gustavo Poyet myndi yfirgefa Chealsea í sumar. Vialli er æstur í að fá hann til Watford en Poyet vill vinna einhverja titla, segir hann. Houllier Poolari vill hann fyrir ca 2 millur, en kallinn kom frítt frá Real Zaragosa sumarið 97´. Tottenham hefur líka sýnt áhuga á þessum 33 ára framherja. Liverpool hefur nú sosum gert fín kaup í leikmönnum sem taldir eru á síðasta snúningi og á ég þá náttúrulega aðallega við McAllistair, minn gamla vin úr Leeds. Sam...

Owen Hargreaves í bobba. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Owen litli Hargreaves, Bayern Munchen strákur var valinn í hópinn gegn Mexikó um daginn en fékk frí vegna fagnaðar yfir Meistaraliðatitli. Svo átti hann að spila með England U-21 gegn Grikkjum en þá bárust boð frá læknum Bayern að hann væri meiddur á ökkla og þyrfti í aðgerð. Lítið við því að gera en nú sl helgi spilaði hann eins og engill með Bayern gegn New Jersey Metrostars í USA. Erikson er ekkert allt of hress með þetta en málið er pínku flókið. Owen á enskan pabba og mömmu frá Wales....

Breytingar hjá Arsenal. (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er nokkuð ljóst að Sylvian Wiltord og Kanu munu yfirgefa herbúðir Arsenal í sumar. Barelona bauðst að kaupa þá en sögðu “nei takk”. Þeir voru hinsvegar tilbúnir að ræða um Tierry Henry, Patrick Vieira og Ashley Cole en Arsenal sagði “nei takk”. Arsenal vill fá pening til að kaupa Trezequet sem er efstur á óskalistanum en þeir borguðu 13 millur fyrir Wiltord sem þeir fá ekki nema að hluta til til baka. Verðmiðinn á Kanu er 7 millur en þess má geta að Þeir eru að tékka á Kamerúnanum Patrick...

Seaman ekki alveg hress. (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Talið var að David Seaman hefði náð sér af axlarmeiðslunum sem hafa verið að hrjá hann en á æfingu fyrir landsleikinn á morgun, þegar Nigel Martyn og David James voru að negla á hann, meiddi hann sig aftur. Ray Clemence, markmannsþjálfari, sendi hann rakleitt í meðferð hjá Gary Lewin, sjúkraþjálfara, sem reyndar er líka sjúkraþjálfari hjá Arsenal. Það er ekki búið að afskrifa hann fyrir leikinn, en líkur eru á að hann nái ekki að vera með. Samkvæmt því er sést hefur á æfingum mun Steve...

Siarhei Shtaniuk Stókari. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Guðjón Þórðar var að versla varnarmann. Hann heitir Siarhei Shtaniuk, landsliðsmaður Hvíta-Rússlands og leikmaður Dynamo Moskvu. Hann var til reynslu þrjár vikur í vetur og hefur gert þriggja ára samning. Ekki veit ég hvað hann kostaði en þetta er reynslubolti með 26 landsleiki að baki og hefur spilað í Evrópukeppninni. Örugglega góð kaup. John Rudge hjá Stoke segir hann hávaxinn og fljótan en lélegan í ensku og ekki vita mikið um enska boltann. Það kemur hjá kappanum, þeir eru ýmsu vanir í Moskvu.

Ferguson í verslunarham. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fréttir frá Spáni herma að Man Utd sækist eftir Portúgalanum Sergio Conceicao, miðjuleikmanni Parma. Hann er víst eitthvað ósáttur á Ítalíu, kallinn, og Ferguson vill fá hann. Það vilja hins vegar Juventus og AC Milan líka þannig að það verður fætingur. En ef hann er óánægður á Ítalíu ættu Skumsararnir að hafa séns. Drengurinn setti hat-trick á móti Þjóðverjum á Evrópumótinu í fyrrasumar svo hann myndi væntanlega vera titlaður framsækinn miðjumaður. Talað er um ca sex millur fyrir strák (24...

Tekur Frank Rijkaard við West Ham? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er næstum mánuður síðan Harry Redknapp hætti!!! hjá West Ham og ekkert gengur að fá nýjan stjóra. Steve McClaren var á leiðinni en sneri við á síðustu metrunum og fór til Middlesborough sem er ekki rassgat í bala betri kostur. Sennilega samt pínku meiri peningar. En umbinn hans Frank Rijkaards hafði víst samband og bauð fram krafta hans fyrir einhverja þóknun. Þeir höfðu víst spjallað við Ruud Gullit sem sagði þetta í orden. Vitað er að stuðningsmenn eru meir en tilbúnir í að landa...

Leeds í pælingum (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Randaflugusögurnar fljúga um leikmenn á faraldsfæti í Englandi og víðar. Ein ný er að David O´Leary sé að undirbúa boð í Michael Ball, varnarmann Everton. Hann getur verið miðvörður og vinstri bakvörður og svo er hann bara tuttuguogeins og býsna góður. Vitað er að Bolton og Leicester vilja hann en þó er ólíklegt að Leeds pungi út 8 millum eins og Everton vill. Jafnvel er talið að Jason Wilcox verði settur uppí en hann fær voða lítið að vera með þar sem Kewell er orðinn heill. Ég vil alveg...

O´Leary um kjurrt- basta. (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds segist hafa átt langt og gott spjall við David O´Leary í sambandi við sögusagnir um að Barcelona, Lazio og fleiri vilji bjóða honum til sín. Hann fullyrðir að O´Leary fari ekki hænufet enda á hann 5 ár eftir að samningnum. Maður trúði því sosum ekki baun í bala að hann færi eitthvert annað enda ætlar hann að taka dollur á næsta ári. Líka þarnæsta og þarþarnæsta og þarn…….. Hinsvegar á Leeds í viðræðum við Brian Kidd um að framlengja samninginn og láta...

Wes Brown úr leik (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Wes Brown hefur ekki alveg náð sér af ökklameiðslum sínum þannig að hann er ekki inn í myndinni fyrir leikinn gegn Grikkjum þann 6. júni. Enska landsliðið er að fara á morgun (þriðjud) til La Manga á Spáni í æfingabúðir fyrir leikinn. 24 leikmenn eru þá í hópnum en Ray Parlour hefur víst náð sér eftir minniháttar aðgerð á hendi, Gerrard er alveg heill og Steve McManaman er með að nýju. Svo er Leicester eitthvað að pæla í Ravanelli kallinum. Hann hefur sosum lýst því áður yfir að hann vildi...

Kóngurinn í Kína (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Spurs hafa gefið það út að þeir nái ekki að gera samning við Sol Campbell. Hann hafi hafnað 80.000 punda vikulaunum og vilji 130 þúsund!!! Svo átti samningurinn að vera með þeim fyrirvara að ef Spurs næði ekki inn í meistaradeildina (sjensinn)næsta vetur, mætti hann fara frítt! Mér finnst drengurinn vera farinn að taka sig fullhátíðlega, svei mér þá. Hann er ofsa góður og dobía af liðum á eftir honum, stærstu liðin á Englandi og í Evrópu. Held að Barcelona hafi sagt að þeir væru til í að...

Dacourt eftirsóttur (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Barcelona er víst að undirbúa tilboð í Olivier Dacourt Leedsara. Mörg lið hafa verið að spá í hann og þó sérstaklega eftir að hann var valinn í franska landsliðið sem er að fara að keppa á móti í Kóreu. Sérstaklega eru það spænsk og ítölsk (kemur á óvart!!) lið sem eru nefnd. Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds segir einfaldlega að hann sé ekki til sölu. Hann sjálfur og O´Leary hafi farið í gegnum stöðuna með framtíðina í huga og enginn fastamaður sé til sölu og í raun enginn leikmaður...

Wes Brown meiddur, Mills í startholunum. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Gary Neville var ekki valinn í landsliðið vegna meiðsla og nú hefur Wes Brown fengið 1 sólarhring til að sýna fram á að hann sé í lagi en hann gat ekki æft með liðinu i dag. Ólíklegt er talið að hann verði í formi svo Danny Mills, Leedsari er í startholunum. Hann hefur einu sinni verið valinn í hópinn, þegar Glenn Hoddle var með liðið en fékk ekki að spila. Þá var hann í vörninni hjá Charlton. Mills hefur staðið sig frábærlega í vetur, átti svolítið erfitt í byrjun en komið ótrúlega til í...

Hreinsunarstarf hjá Vialli (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vialli hefur heldur betur hafist handa við hreinsun hjá Watford. Heiðar fær að vera enda á hann eftir að láta að sér kveða en Vialli ætlar að skipta um aðstoðarmenn og hefur sett sex menn á sölulista. Neil Cox, David Perpetuini og Clint Easton fengu skilaboðin um daginn og síðan Peter Kennedy sem er Norður- írskur landsliðsmaður, Steve Palmer og fyrirliðinn Robert Page. Nú hefur Watford líka gefið út að fleiri verði ekki seldir að sinni. Tækifæri fyrir Guðjón að kíkja í kringum sig? Vialli...

Arsenal fær markmann. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú virðist nokkuð ljóst að Arsenal fær nýjan markmann. Pólverjinn Jurek Dudek hjá Feyenoord kemur á þriðjudag í samningaviðræður og hann ætlar að sjá ágóðaleik milli Arsenal og Barcelona þar sem Seaman fær seðlana í sparibaukinn. Feyenoord vill 10 millur en Arsenal vill borga 6. Hans Hagelstein hjá Hollendingunum segir að það beri svolítið á milli í peningum en liðin komist örugglega að samkomulagi þannig að þetta virðist á borðinu. Seaman hefur nýlega framlengt samning sinn um eitt ár en...

Hvað gerir Nedved? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Pavel Nedved hefur ekki viljað framlengja samning sinn við Lazio sem rennur út eftir eitt ár. Hann á sér þann draum að spila með Man Utd (ótrúlegt en satt) og vonar að þeir bjóði aftur í sig en þeir reyndu í fyrra. Það hefur sosum verið rætt í tvö ár að hann eigi eftir að fara til Skumsaranna en ég vona ekki, hann er djöfull góður. Málið er bara að hann er 28 ára og Skumsararnir hafa sagt að þeir vilji yngri menn sem dugi lengi, lengi. Það er dálítið mikið að borga 20 + millur en hann er...

Hvað gerir Nedved? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Pavel Nedved hefur ekki viljað framlengja samning sinn við Lazio sem rennur út eftir eitt ár. Hann á sér þann draum að spila með Man Utd (ótrúlegt en satt) og vonar að þeir bjóði aftur í sig en þeir reyndu í fyrra. Það hefur sosum verið rætt í tvö ár að hann eigi eftir að fara til Skumsaranna en ég vona ekki, hann er djöfull góður. Málið er bara að hann er 28 ára og Skumsararnir hafa sagt að þeir vilji yngri menn sem dugi lengi, lengi. Það er dálítið mikið að borga 20 + millur en hann er...

Djorkaeff sennilega á leið í enska boltann. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fullyrt er í Sunday mirror að Youri Djorkaeff sé á leið frá Kaiserslautern til Arsenal og hitti þar fyrir fullt, fullt af frönskum félögum. Kaiserslautern hefur gefið út yfirlýsingu um að hann fái leyfi til að yfirgefa þá í sumar þó hann eigi 1 ár eftir af samningi. Eins gott að fá aur í budduna. Ekki er þó minnst á verð en hann er sleipur í fótbolta strákurinn. Glenn Hoddle hefur boðið 5 og hálfa millu í Garreth Southgate hjá Villa en hann má fara fyrir “rétt” verð. Þarf sennilega að bæta...

Alan Smith sennilega í hópinn á ný. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þar sem Andy Cole er í banni í næsta landsleik er talið að Svenni Ericson velji Alan Smith í hópinn. England spilar vináttuleik gegn Mexico á föstudaginn og sagt er að Fowler, Owen, Heskey og Sheringham verði þarna. Hópurinn verður tilkynntur í dag, sunnudag og Gary Neville og Sol Campbell eru meiddir en spurning hvort Keown og Southgate komi inn en þeir hafa ekki verið með í undanförnum leikjum landsliðsins. Alan Smith hefur sett 16 mörk í vetur og myndað ansi skætt par með Viduka. Hins...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok