Greame Souness í verslunarleiðangri. Greame Souness, Blackburnsstjóri hefur lýst yfir áhuga á versla þá Nicky Butt frá Man.Utd og Ian Pearce frá West Ham. Þar sem Blackburn ætlar að keppa við stóru strákana næsta vetur þarf að fá nýja menn, helst með reynslu úr efstu deild. Talið er að hinn 26 ára Butt sé metinn á 7 millur og Ian Pearce, fyrrum Blackburnmaður, á um 4. Allt virðist í lausu lofti hjá West Ham um þessar mundir og stöðugt verið að falast eftir þeirra bestu mönnum.
Alex Ferguson hefur gefið út að breytinga sé þörf hjá Man. Utd svo kannski vill Butt finna sér nýtt lið. Blackburn missti frá sér tvo miðvallarleikmenn í vetur, þá Lee Carsley og Billy McKinlay svo nú er lag að kaupa menn.