Pierre Yves Andre, framherji Bastia í Frakklandi hefur nú tekið sér nokkra daga í að velja úr tilboðum en hann losnar undan samningi eftir 3 mán. Þessi 27 ára franski piltur mun fá ansi fín laun hjá nýju félagi sem mun ekki borga neitt fyrir drenginn og velur um Sunderland, Rangers, Nantes og Monaco. Peter Reid, stjóri “svörtu kattanna” hefur boðið Andre fjögurra ára díl og yrði hann með hæst launuðu leikmönnum liðsins. Þess má geta að Reid hefur verið með Andre í sigtinu í hálft ár enda verið að pæla í nýjum leikmönnum alla leiktíðina.