Lee Bowyer hefur nú verið dæmdur í þriggja leikja bann í Evrópukeppninni fyrir að trítla aðeins oná Sanches Valenciumanni á Elland Road sl miðvikudag. Þetta var nú asnalegt hjá honum og ekki glæsilegar fréttir fyrir Leedsara sem þurfa sko að eiga toppleik ætli þeir að komast í úrslitin. Valencia er vant að vinna sína heimaleiki og ætla sennilega ekkert að breyta því, en… aldrei að vita. Gott þó að Batty er með þó hann sé í banni á Englandi. Bowyer verður allavega ekki markahæstur í Evrópukeppninni þetta árið en hann er kominn með sex mörk. Ég var tvo daga að ná mér eftir Deportivo-Leeds og vona bara að mínir menn skori einhver mörk í þessum leik.