Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

appel
appel Notandi frá fornöld Karlmaður
1.112 stig
Áhugamál: Sci-Fi, Geimvísindi, Deiglan

Opið bréf til dómsmálaráðherra - Rafbyssur á Íslandi (289 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Góðan dag virðulegi ráðherra, Ég rita þér vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um hugsanlega innleiðingu á rafbyssum, eða svokölluðum “Tasers”, hjá íslensku lögreglunni. Ljóst er að þessar rafbyssur eru langt frá því að vera hættulausar, eins og fjöldamörg dæmi hafa sannað í fjölmiðlum, og einnig í ummælum frá Amnesty International. Nú hef ég fylgst með ástandi mála í Bandaríkjunum, og þá sérstaklega hvernig lögreglan notar slík tæki. En hún einfaldlega notar rafbyssur sem “fjarstýringar” á fólk,...

Java 4K leikjaforritunarkeppni (15 álit)

í Forritun fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Java 4K er leikjaforritunarkeppni sem hefur verið í gangi í nokkur ár, og er haldin árlega og stendur yfir desember, janúar og febrúar mánuðina. Markmiðið er að búa til leik í Java sem er að HÁMARKI aðeins 4 KB (já, 4096 bæti). Þetta er snilldarkeppni og er án efa stærsta leikjaforritunarkeppnin fyrir Java. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar hér: http://www.java4k.com Endilega skoðið þetta, tilvalið til að eyða jólafíinu í :)

Eureka - nýjir skemmtilegir SciFi þættir (Hugsanlegir örlitlar spoilers) (16 álit)

í Sci-Fi fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er nýbyrjaður að glápa á Eureka þættina, en það er búið að sýna um 7 þætti úti í BNA, og eru því nýbyrjaður. Átti ég ekki von á miklu, en ég hafði heyrt góða hluti um þessa þætti og ákvað að slá til og horfa á pilotinn. Eftir það var ekki snúið. Þessir þættir eru einsog Desperate Housewives fyrir scifi-nörda. Þættirnir fjalla um bæinn Eureka, sem er voða spes bær í Bandaríkjunum. Íbúar hans eru allir helstu vísindamenn heims, og vinna þeir saman að því að uppgötva og þróa tækninýjungar....

Threshold, Invasion og Surface (24 álit)

í Sci-Fi fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Þessir þrír þættir sem komu út í fyrra eru nú allir dánir. Stóru sjónvarpsstöðvarnar úti hafa hætt við framleiðslu þeirra. Nokkuð síðan tilkynnt að hætt var við Threshold, en hann fór aldrei lengra en einhverja 13-14 þætti, og sagan ekki kláruð. Sama gerðist með Invasion. Gerðir voru 22 þættir, og endaði season 1 með “cliffhanger” þætti. Nú er orðið ljóst að við munum aldrei vita meira um söguna. Surface fór í 15 þætti, og endaði einnig með “cliffhanger” þætti. Reyndar er ekki búið að taka...

Húsnæðismarkaðurinn, vangaveltur um þróun síðustu ára og framtíðina (12 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Mér finnst einstaklega skrýtið hvernig húsnæðismarkaðskerfið hefur þróast á örfáum árum, 2- 3 árum. Fyrir hina stóru sápukúlubólu, áður en bankarnir hófu að lána, þá var Íbúðalánasjóður að bjóða 75% lán upp að 14-15 milljónum. Þetta fyrirkomulag hélt í raun niðri húsnæðisverði, þannig að um meðal 90fm 3ja herbergja íbúð á ágætum stað kostaði um 13 milljónir fyrir 4 árum síðan. 25% af 13 milljónum eru 3,5 milljónir. Og byrjendur þurftu þá að útvega sér það með ýmsu móti, t.d. með...

3 vikur í að hátíðin hefjist að nýju (6 álit)

í Sci-Fi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já kæru Scifi unnendur, nú eru aðeins 3 vikur þar til StarGate mun hefjast að nýju í sjónvarpi (erlendis). Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem hafa aðgang til að geta horft á þá á þeim tíma. 14. júlí mun Stargate SG1 season 10 hefjast, og season 3 af StarGate Atlantis. Sögursagnir hafa verið á netinu um að O'Neill muni snúa aftur í StarGate SG1, en þó aðeins í gestahlutverki en mun koma mun oftar til sögu heldur en gerðist í season 9. Hvejrum er ekki sama um Atlantis. Man einhver eftir því...

Hvalveiðimál - Eru hvalfriðunarsinnar að skjóta sig í fótinn? (25 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Á mbl.is er birt frétt um að ályktun á ráðstefnu alþjóða hvalveiðiráðsins hafi verið samþykkt um það efni að hvalveiðibannið sé ekki lengur nauðsynlegt. (http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1208048) Þykir þetta sýna að hvalveiðiþjóðunum hafi tekist að ná meirihluta í þessu ráði, og eru nú öll dýraverndunarsamtök óttaslegin og fordæma þetta. Virðist sem vera að eini valkosturinn í þeirra augum sé algjört hvalveiðibann. Þeim hlýtur að vera ljóst, þ.e. hvalfriðunarsinnum, að að reyna halda...

SciFi - uppgjörið (34 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum
Af hverju er SCIFI betra en allt annað? Nokkuð merkilegt með scifi sjónvarpsefni hvað það hefur mikla yfirburði gagnvart öllu öðru sjónvarpsefni sem er framleitt. Vissulega er misjafnt hvað menn hafa áhuga á og finnst skemmtilegt, en þegar maður horfir á þessa “hefðbundnu” sjónvarsþætti einsog CSI (sem er góður), Law & Justice, King of Queens, Guiding Light og alla hina sápuóperurnar þá get ég ekki annað hugsað en “Guð hvað þetta er slæmt og yfirborðskennt sjónvarpsefni miðað við góða scifi...

Verð á bensín (37 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum
Jahérna, aldeilis. Nú er sko bensínið byrjað að hækka fyrir alvöru. Við erum að sjá 3-4-5 kr. hækkarnir á lítranum í apríl, og það er aðeins byrjunin. Olían á heimsmarkaði er að hækka upp úr öllu valdi vegna Írans, sumar að koma í bandaríkjunum og ferðalög að hefjast. Svo má ekki gleyma fellibylunum seinna í sumar. Krónan að hrynja, verðbólgan að rísa, olían að hækka… allt virðist styðja þær spár mínar að bensínlítrinn eigi eftir að ná 200 kr. markinu á þessum áratug. Hef ég skrifað margar...

Stargate SG1 Season 9 finale og Battlestar Galactica Season 2 finale! !!!!! ( SPOILERS ) !!!!! (23 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég á ekki til orð til að lýsa þessum þáttum, þeir voru hreint meiriháttar. Byrjaði ég að horfa á Stargate fyrst, og byrjaði hann svona einsog venjulegir season 9 þættir hafa byrjað. Svo þróuðust þeir meira og ég verð að segja að síðari hluti þáttarins var alveg hreint meiriháttar. Bardaginn við O'ri geimskipin þegar þau komu í gegnum ofurhliðið var með því flottasta sem hefur sést í stargate. Ekkert smá flott skip líka, eitthvað öðruvísi. Þau voru líka hvít! Sem sést ekki oft í svona...

Samskipti á internetinu - hvar liggur ábyrgðin (29 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, þ.e. hvar ábyrgðin liggur ef einhver aðili setur inn óhróður eða annað ólöglegt inn á einhvern vef eða umræðuþræði. Fyrir þá sem ekki vita þá var vefnum malefnin.com lokað vegna þess að á umræðuþráðunum þar var einhver aðili, í skjóli nafnleyndar, sem setti inn tengil á tölvupóstana hennar Jónínu Benidiktsdóttur. Athugið, ég er að tala um tengil. Eigandi malefnin.com ákvað eftir að hafa athugað lagagrundvöllinn, að loka vefnum þar sem hann komst að því...

Nokkrar Sci-Fi seríur sem fóru ekki lengra en season 1 (18 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Eftir að hafa horfa á allt StarTrek, StarGate, og þessa vinsælu scifi sjónvarpsþætti þá fór ég að reyna þefa upp þætti sem ég hafði ekki heyrt um. Góð byrjun var TV.com, en það er yfirlit yfir nánast alla sjónvarpsþætti sem hafa verið framleiddir… og stjörnugjöf fylgir með. En ég ætla fyrst og fremst að fjalla um sjónvarpsþætti sem lifðu ekki lengur en eitt season, en hefðu í raun átt að fá að halda áfram. Þessir þættir eru: - Space, Above and Beyond - Odyssey 5 - Threshold - FireFly SPACE -...

Menningarárekstrar, Íslam og vestræn samfélög (97 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 2 mánuðum
ÚLFALDI ÚR MÝFLUGU Talandi um að gera úlfalda úr mýflugu þegar maður sér öll þessi læti og mótmæli í múslimum bæði í danmörku og einnig í arabalöndum eftir að Jótlandspósturinn birti “skopmyndir” af Múhaðmeð spámanni. Ég get skilið sjónarmið múslima að þetta sé móðgun við þeirra trú, en ég get engan veginn skilið þessi mótmæli og í raun tilgang þeirra. Sérstaklega þegar um 4 mánuðir eru liðnir síðan þessar myndir voru birtar! Hverju er verið að mótmæla eiginlega? Jótlandspósturinn er búinn...

Óuppgötvað Ísland, innflytjendasprenging á döfinni? (62 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þetta er nokkuð sem ég byrjaði að velta fyrir mér í dag, eftir að hafa lesið fréttir í breskum fjölmiðlum og slæmt ástand á fasteignamarkaði þar, þar sem ung pör og einstaklingar hafa ekki efni á að kaupa sér húsnæði. Auk þess sem nánast allt land á bretlandseyjum er undirlagt af mannskepnunni og umhverfi einsleitt. Mun mannmergðin á bretlandi, og n-evrópu, valda því að fólk í leit að betra umhverfi muni flykkjast til íslands? Ég tel svo vera, sérstaklega eftir að íslendingar eru byrjaðir að...

Nýjustu þættirnir - smá gagnrýni [Spoiler-Alert] (14 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Sælir Sci-farar. Ég hef verið að horfa á nokkra af nýjustu þáttunum sem er verið að sýna vestanhafs í bandaríkjunum. Hér er um að ræða þættina; Invasion, Surface og Treshold. Vil ég aðeins fjalla um þessa þætti, hvað er búið að gerast so far, og hvað mér finnst um það sem er búið að gerast. INVASION Sögusviðið er smábær í BNA við mexíkóflóa. Þættirnir byrja þannig að fellibylur er að skella á ströndina, og fólkið býr sig undir það. En margt furðulegt gerist á meðan fellibylurinn stendur...

Nýjir þættir - Invasion (24 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég horfði á fyrir einstaka tilviljun á nýjan þátt sem var sýndur nú í bandarísku sjónvarpi í vikunni, hann heitir Invasion. Þetta eru nýjir SciFi þættir, og eru í svona drama/action/thriller ívafi. Svo ég sé ekki að þýða beint einhvern enskan texta, þá er hér stutt kynning á þessum þættum: Man has searched the skies for centuries and has never come up with conclusive evidence to prove the existence of other forms of intelligent life. What if we have been looking in the wrong place? What if...

Olían, hvað mun gerast innan 3ja ára? (57 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef reglulega skrifað stutta pistla hér á Deiglunni á Huga um framtíð olíunnar í heiminum, og er þetta þriðja greinin mín á um 3 árum um þetta viðfangsefni. Í öllum þessum greinum mínum hef ég bent á hið komandi hrun - olíuhrunið. Olíuhrunið mun ekki einungis hafa þau áhrif að við komumst ekki á milli staða í bílum okkar, heldur mun það í raun valda því að efnahagsstoðir heimsins munu hrynja. Nú þegar bensínlítrinn á Íslandi er kominn í sögulegt hámark, og styrkleiki krónunnar í sögulegu...

Aftur til framtíðar, til tunglsins! (41 álit)

í Geimvísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já, NASA kynnti núna á mánudaginn framtíðarplön sín, sem eru að koma mönnum aftur til tunglsins fyrir árið 2020. NASA ætlar að búa til tvennskonar eldflaugar, eina sem skýtur upp lendingarfarinu (sem lendir á tunglinu) og eina sem skýtur upp áhöfninni og farartækinu þeirra (sem ferðast um á tunglinu). Margir hafa gagnrýnt þessa áætlun, en aðrir hafa fagnað þessu. Þó eru flestir sammála um að þessi áætlun líkist mjög Apollo geimferðaáætluninni sem BNA/NASA var með í gangi fyrir um 30 árum...

Enski boltinn á Sýn - Idol á SkjáEinum? (43 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já, ég er nú aldeilis hissa á þessum *úrskurði* samkeppnisyfirvalda um að SkjáEinum beri að veita 365 miðlum aðgang að enska boltanum, annaðhvort í læstri eða ólæstri dagskrá. Ég veit sjálfur ekki alveg hvað þetta þýðir, hvort enski boltinn verður í kjölfarið sýndur í opinni dagskrá á Sýn, Stöð2 eða einhverri annarri stöð. Er ekki hægt að bera þetta saman við að nú mætti Stöð2 ekki einoka Idol þættina og þyrftu því að leyfa hverjum sem vildi (SkjáEinum, Símanum) að sýna þá í annaðhvort...

Ráðstöfun "Símagullsins" og lok Davíðs (112 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Merkilegt hvað fólk hefur mikið við þetta ráðstöfun að athuga. Ég hef skoðað í hvað þessir peningar, 66,7 milljarðar, fara í, og get ekki sagt neitt annað en að þetta sé allt hið besta mál. HÁTÆKNISJÚKRAHÚS Flestir hafa gagnrýnt þetta “hátæknisjúkrahús”, að það skuli vera eytt peningum í það á meðan ekki er hægt að reka núverandi heilbrigðiskerfi á viðunandi hátt. Svo eru sumir sem vilja bara dæla þessu Símagulli beint inn í reksturinn á heilbrigðiskerfinu….ég spyr nú bara, er ekki í lagi...

Bandaríkin, Kína og framtíðin á Íslandi (42 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
UPPVAXTARÁR KÍNA Síðustu ár hefur Kína vaxið mjög hratt og mikið sem iðnríki, og nú er Kína að verða stærsta iðnríki heims, ef það er ekki orðið það nú þegar. Þetta veldur mönnum áhyggjum, þó svo að menn gleðjist yfir betri lífsgæðum kínverja þá eru margir sem benda á að þetta gæti reynst hættulegt, fyrir allan heiminn. Kína er að vaxa sem ríki í öllum skilningi, hermálum, efnahagsmálum og heimsmálum. Kína hefur látið lítið fara fyrir sér í alþjóðamálum, yfirleitt látið aðra um áhyggjur...

Fækkun ráðuneyta, hugmynd sem ber að nýta (17 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nú eru starfrækt um 13 ráðuneyti á Íslandi og öll misstór. En nú 17. júní kynnti forsætisráðherrann hugmyndir um að fækka ráðuneytum allverulega, og hafa heyrst hugmyndir að fækka þeim alveg niður í 5-6 talsins. Enda nokkuð fáránlegt fyrir svo smáa þjóða hafa svona mörg ráðuneyti. Ég hef lengi gagnrýnt allt rekstrarbálknið í kring um hið opinbera. Alltof mörg ráðuneyti, hvert einasta í sinni eigin byggingu, og allnokkur fjarlægð alltaf á milli ráðuneyta, svo hefur hvert ráðuneyti sinn...

Welcome to Iceland Mr. Bobby Fischer! (52 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Jáhá!! VÁ! Hann er orðinn ÍSLENDINGUR, ekki lengur íslandsvinur, heldur ÍSLENDINGUR. Hann er einn af oss, og enginn svo mikið sem hóstaði þegar það var samþykkt á okkar virta Alþingi, elstu lýðræðisstofnun heims! En þetta mál hefur verið hið furðulegasta frá upphafi, maður hefur verið svona með annað auga á þessum fréttum af honum, aðallega útaf því að Ísland tengist þessu. En atburðarrásin er nokkurnveginn eftirfarandi (eftir minni): - Bobby kallinn stoppaður á flugvelli, þar sem hann var...

Héðinsfjarðargöng (152 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Jæja, nú er búið að ákveða að fara í framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng, og munu þau kosta um 7 milljarða. Þessi göng munu einkum nýtast Siglfirðingum, og einnig Ólafsfirðingum þar sem þessi göng tengjast beint þessum bæjum. Tæplega 1.500 manns búa á Siglufirði, sem þýðir að kostnaður við göngin er rúmlega 4,5 milljónir króna á haus. Reiknað er með að um 200-250 bílar fari um göngin á sólarhring. Margir hafa velt þessu fyrir sér, t.d. hefur verið bent á að önnur brýnni og hagkvæmari verkefni...

Háskólaþorp í Vatnsmýrinni (36 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þó nokkur umfjöllun hefur verið um háskólaumhverfið hér á íslandi, sérstaklega hvað varðar Háskólann í Reykjavík, en fjölmiðlar hafa verið duglegir að fjalla um framtíð hans, og hugsanlega framtíðarstaðsetningu, eftir samruna við Tækniháskóla Íslands. Hefur þeim skóla nú verið boðið land í Vatnsmýrinni og einnig í Garðabæ. Eitt er víst, það vilja allir fá þennan öfluga Háskóla til sín. Persónulega myndi ég vilja sjá Háskólann í Reykjavík í Vatnsmýrinni, það er frábær staðsetning. En eins og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok