Eureka - nýjir skemmtilegir SciFi þættir (Hugsanlegir örlitlar spoilers) Ég er nýbyrjaður að glápa á Eureka þættina, en það er búið að sýna um 7 þætti úti í BNA, og eru því nýbyrjaður.

Átti ég ekki von á miklu, en ég hafði heyrt góða hluti um þessa þætti og ákvað að slá til og horfa á pilotinn. Eftir það var ekki snúið.

Þessir þættir eru einsog Desperate Housewives fyrir scifi-nörda. Þættirnir fjalla um bæinn Eureka, sem er voða spes bær í Bandaríkjunum. Íbúar hans eru allir helstu vísindamenn heims, og vinna þeir saman að því að uppgötva og þróa tækninýjungar.

Þessum bæ var komið upp af frumkvæði Albert Einstein, eftir að hann hafði hvatt forseta BNA til að koma upp einhverskonar athvarfi þar sem vísindamenn geta unnið óáreittir.

Allt vísindastarf fer fram í höfuðstöðvum Global Dynamics, sem er stofnunin/fyrirtækið sem allir vísindamennirnir í Eureka vinna fyrir. Þetta er eitt helsta leyndarmál heimsins. Global Dynamics sem er fjármögnuð af bandaríkjastjórn hefur einnig það hlutverk að finna upp á nýjum vopnum og þróa hernaðartækni.

Svokallað leyndarmál innan leyndarmáls er “Section 5”, sem aðeins örfáir einstaklingar hafa aðgang að, og eru margir forvitnir um hvað leynist þar.

Aðalsöguhetjan er Jack Carter (U.S. Marshall) sem kemur til bæjarins óvart vegna þess að bíllinn hans bilaði. Hann lendir í ævintýrum þar og endar á því að leysa sakamál. Íbúar bæjarins sem samanstanda af ofursnillingum leist svo vel á Jack Carter, miðað við að hann væri “being of lesser intelligence”, að þeir fengu hann sem fógeta.

Andrúmsloftið í þáttunum minnir mig á Desperate Housewives, þó þættirnir eru engan veginn líkir þeim nema þá að þeir gerast í smábæ þar sem allir þekkja alla.
Það er léttur undirliggjandi húmor í öllum þáttunum, og er öll framleiðslan og tæknibrellur það besta sem gerist.

Mæli endregið með að menn skoði þennan þátt.