Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

appel
appel Notandi frá fornöld Karlmaður
1.112 stig
Áhugamál: Geimvísindi, Deiglan, Sci-Fi

Duldar hættur í nýtísku mat (27 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
KYNNING Fyrir um 5 árum síðan þá fékk ég vitundarvakningu varðandi matarræði þar sem ég byrjaði að stunda líkamsrækt, síðan þá hef ég öðlast mikla þekkingu og skilning á mataræði, hvað er gott að borða og hvenær. Þessi heimur er algjör frumskógur, og ekki allir sem vilja setja sig lengra út í það en að vita hvað kalóríur, kolvetni, fita og prótein er. En ég ætla ekki að skrifa stóra grein um matarræði, heldur ætla ég að fjalla um “duldar hættur” í mat. Þessar “hættur” eru hráefni, og önnur...

Aðrir SCI-FI þættir (19 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nú þegar Enterprise hverfur á braut, á næstu mánuðum, þá mun ekkert nýtt Star Trek efni koma á skjáinn næstu 1-2 árin. Gaman væri að fá tillögur hvað væri hægt að horfa á þangað til nýr Star Trek sería byrjar :) Ég er búinn að vera að horfa á Battlestar Galactica núna undanfarna daga, og ég verð nú bara að segja það að þetta eru stórkostlegir þættir. Þeir eru búnir að hljóta mjög góða dóma frá gagnrýnendum. Reyndar eru þeir doldið ólíkir Star Trek. Annars væri gaman að heyra hvað ykkur...

Gullgrafarageðveikin á húsnæðismarkaðnum (34 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég er bara agndofa yfir ástandinu á húsnæðimarkaðnum, þetta er komið algjörlega út úr öllum raunveruleika. ALLIR ÓÐIR Maður þekkir fólk sem er núna að flýta sér að selja húsnæði sitt á tvöföldu verði, og flytja í eitthvað ódýrt. Góð viðskipti þar og gott hjá þeim. Örugglega margir að gera hið sama, en maður veltir fyrir sér hverjir það eru sem kaupa eignir á tvöföldu verði, miðað við það sem eignin kostaði 4-5 árum fyrr. Ágangur húsnæðissölumanna er svo mikill að foreldrar mínir fá...

Jarðgöng til eyja eða spítala? (173 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég hef nú furðað mig á allri þessari umræðu um hugsanleg jarðgöng til eyja, allur fréttaflutningur af þessu máli virðist einkennast af einhverri bjartsýni og tilætlunarsemi af hálfu jarðgangasinna. Hvaða upphæðir er verið að tala um í þessu efni? Hátt í 20 milljarða? Nei nei nei, að eyða 20 milljörðum í göng sem eru á vægast sagt óstöðugu jarðsvæði (sjá aðsenda grein í morgunblaðinu) er algjört glapræði, og fyrir einhverjar 10 þús hræður? Einfaldast væri nú bara að leggja byggð á þessari...

Í fréttum er þetta helst... (36 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
- Hryðjuverkaárás var gerð í Írak í morgun, 20 manns féllu. - Danir gáfu út viðvörun til þegna sinna í Indónesíu um væntanlega hryðjuverkaárás. - Ariel Sharon hefur fyrirskipað öllum embættismönnum sínum að hætta samskiptum við Palestínustjórn. - Halldór Ásgrímsson fyrrverandi utanríkisráðherra, og núverandi forsætisráðherra, gefur frá sér leiðinlega tilkynningu. - Ekkert hefur enn fréttst af franskri fréttakonu sem rænt var í Írak. - Davið Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og núverandi...

Innflutningur á lággjaldaverkafólki (49 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Já, nú er svo komið að það einfaldlega verði ekkert af kárahnjúkavirkjun nema Impregilo fái að flytja inn ódýrari mannskap. Eða, a.m.k. finnst mér fréttaflutningurinn af þessu máli vera. Hver er eiginlega tilgangurinn að hafa verkamannastétt hérna á Íslandi fyrst það er hægt flytja þetta bara inn hræódýrt frá öðrum löndum. Lifum við svona obboðslega hátt að engin veraldleg fyrirtæki geta borgað okkur sæmileg laun? Ég vil nú taka fram að ég er ekkert á móti útlendingum, né að þeir séu að koma...

Enterprise Season 4, taka 2 (14 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Jæja, nú er þetta allt saman að breytast. Vulkans komnir meira inn í þetta, og von á Andorians. Nú fer að sjást í það sem Star Trek er um, samvinnu og geimkönnun. Mér fannst the forge þátturinn bara ansi ágætur, söguþráðurinn er byrjaður að vera flóknari (a.m.k. tveir hlutir í gangi í einu) og tæknibrellurnar sem sýna Vulcan bara ansi svalar. Awakening var bara einn af top 3 enterprise þáttunum sem hafa verið sýndir, maður fylltist af spennu og lítið um “dauðar” mínútur þar sem eitthvað...

Hive - er raunveruleg samkeppni að byrja? (191 álit)

í Netið fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég sagði og hugsaði “KÚL” þegar ég sá fyrstu auglýsingarnar frá Hive: Ókeypis download. 8, 12 og 20 Mbit hraði! En ég er skeptískur að eðlisfari, og hoppaði ekki alveg upp úr stólnum við þetta, heldur fór ég á stúfana og rannsakaði þetta nánar. Vildi ég fá svör við nokkrum spurningum sem komu upp í huga. 1. Þarf að borga til Símans vegna ADSL tengingar? Nei, ekki þarf að borga neitt! Aðeins þarf að borga til Hive. 2. Stærð útlandatengingar? Að mínu mati doldið stór spurning, því ef Hive er...

Digital Ísland (60 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Jáhá, vá! Æðislegt! Loksins!!! Eða hvað? Nú var farið í skífuna á dögunum og fenginn hjá þeim þessi nýji digital ísland afruglari, og var maður ansi ánægður með það. Kvöldið og Idol keppnin er sýnd þá er farið í að setja hann upp, tengja og svona, lesa leiðbeiningar. En, nú kom doldið upp á, HANN BARA VIRKAÐI EKKI! Ég fór í gegnum setupið á þessum afruglara, og svo í sjálfvirka leit á stöðvum, en EKKERT fannst! Hvaða hvaða dæmi er í gangi hugsaði ég. Fór í gegnum öll stillingaratriði á...

Þórólfur borgarstjóri og olíusamráðið (21 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég er gáttaður á allri þessari umræðu um olíusamráðið, ekki að það sé umræða um þetta heldur hvert, eða að öllu heldur, að hverjum hún beinist. Forstjórar olíufélaganna og þeir sem bera margfalt meiri ábyrgð á þessu samráði geta verið ansi ánægðir þessa dagana, allt fjölmiðlafárið vegna þessa beinist frá þeim, þ.e.a.s. að einum manni, Þórólfi Árnasyni borgastjóra. Þetta er gríðarlega yfirborðskennt, fjölmiðlar eiga að kafa dýpra í þetta mál og upplýsa almenning um hverjir eru höfuðpaurarnir...

Enterprise Season 4 (10 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ok, fyrir þá sem vilja bíða eftir að hið aldna og stirða RÚV byrji að sýna season 4 ættu að hætta lesa. Nú er búið að sýna fyrstu 2 þættina af season 4, sem eru continue þættir af season 3. Reyndar var season 3 heilt continue season, og mér sýnist að season 4 sé að stefna í það líka. Sjáum til með það. En ég er að velta fyrir mér ýmsum varðandi þessa Enterprise þætti. Ég veit ekki hvar ég á að byrja, þannig að ég byrja bara að telja upp: - Scott Bakula sagði í viðtali einhverntímann við ET...

Olían, upphafið að endalokum? (18 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Fyrir einu og hálfu ári síðan skrifaði ég grein hér á Huga um komandi olíukreppu, “Komandi olíukreppa - stærsta vandamál heimsins!”, lesið hér: http://www.hugi.is/deiglan/articles.php?page=view&contentId=885258 Í þeirri grein ritaði ég: “Á hverju ári eykst eftirspurnin eftir olíu um 7%. Þetta þýðir að árið 2013 mun eftirspurn eftir olíu verða tvöfalt meiri en er í dag. Er þessi 7% tala reiknuð miðað við síðastliðin 10 ár, og þá er ekki tekið tillit til væntanlegrar iðnaðaruppsveiflu í Kína,...

"KÍ lítur á starfsemi heilsuskóla sem verkfallsbrot" (28 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Segir í frétt mbl.is: http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1102406 Mér finnst þetta áhugavert. Þetta er auðvitað mikið hagsmunamál fyrir kennara að börnin hafi ekkert við tímann að gera og séu í raun byrði á foreldra, því þá kemur meiri pressa á yfirvöld um að leysa deilunu. Þannig mætti halda því fram að þetta er verkfallsbrot, og get ég skilið afhverju KÍ vill þetta ekki. Hinsvegar tel ég að það séu tvö réttindamál að slást þarna, verkfallsréttur og sjálfsögð mannréttindi. Ég myndi...

Erlent niðurhal (97 álit)

í Netið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Síðan árið 1997 hófu ákveðnar internetþjónustur hér á landi að setja á sérstakt bandvíddargjald, ef farið var umfram eitthvað ákveðið þá var rukkað fyrir það sem var umfram. Þetta var eini möguleikinn til að rukka þessa svokallaða “ofurnotendur” sem voru gríðarlega virkir í sínu niðurhali. Nú er svo komið að þetta er orðinn eðlilegur hlutur af internetinu á Íslandi í dag, og flestallir virðast vera orðnir sáttir við hvernig þessu er háttað og ekkert bendir til breytinga. Þó hefur verið...

Enterprise, síðari hluti af Season 3 (13 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum
Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með nýjustu þáttunum og eru aðeins að horfa á þættina sem RÚV sýnir ættu að hætta lesningu. Ég er aðeins búinn að vera pæla í Enterprise, ætlaði nú ekki að hafa þetta sem gagnrýnisgrein, en ég gat ekki staðist það. Season 1 og 2: Frjálslegir þættir, of einfaldir, fínar tæknibrellur og farið út í Sulubans og TCW (temporal cold war). Reyndar endar season 2 með því að ráðist er á jörðina og Xindi stríðið byrjar. Season 3: Snýst algjörlega um að finna Xindi og...

Allt að falla saman í Írak (102 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum
Síðustu dagar hafa verið blóðugir í Írak, hálfgerð uppreisn er hafin og bandaríkjaher hefur þurft að draga sig frá ákveðnum svæðum. Fjölmiðlar hafa birt mjög “tregar” fréttir af þessum atburðum, CNN segir aðeins frá fjölda bandarískra hermanna sem látast en aðrir evrópskir fjölmiðlar, s.s. mbl, segja frá fjölda Íraka sem hafa látist, sem eru um 10 sinnum eða jafnvel 20 sinnum fleiri en bandaríkjamenn. Mikil umræða er að myndast í BNA um þetta, og eru menn byrjaðir að kalla þetta annað...

Bæ bæ tölvupóstur (36 álit)

í Netið fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Kæri tölvupóstur, Ég kveð þig nú, og öll mín netföng, nú er bara hægt að hafa samband við mig á MSN eða í GSM síma minn því ég er búinn að gefast upp á þér. Ég lýsi því hér með yfir að þú ert ónýtur. Loksins er búið að eyðileggja þig, þessa dásamlegu samskiptatækni, með ruslpósti og vírusum. Í dag fæ ég frá þér um 300-400 tölvupósta, þar af 1 eða 2 persónulegan póst…allt annað er rusl og vírusar. Ég skil ekki hvernig ég hef nennt að taka við öllu þessu rugli frá þér, en nú segi ég hingað og...

Netið ömurlegt vegna ókeypis download í 3 daga (100 álit)

í Netið fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já, Síminn auglýsti fyrir helgina að það væri ókeypis að sækja gögn frá útlöndum í heila þrjá daga, frá 16. jan til 19. jan. Mér sýnist að íslendingar eru aldeilis að notfæra sér þetta því útlandatenging símans er að nálgast 100% álag (gögn inn). Hægt er að skoða þessar tölur nánar hér: http://traffic.simnet.is/public/utlond/utlond-sam tals.html Nú spila ég mikið einn ákveðinn tölvuleik, og þá alltaf á útlenskum serverum. Ég hef ekki getað spilað þennan leik vegna þess að ég er með um 10-30%...

BANKARÁN!!! (35 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég sendi inn einhvern póst hérna sem fjallaði um bankarán, hve mikil aukning hefur orðið og það ætti helst að koma öryggisvörðum inn í þessa banka. Núna um daginn þá var framið stærsta bankarán í íslandssögunni, sjálfur bankastjórinn/forstjórinn er bara búinn að ræna eiginn banka! Nokkur hundruð milljónir þar. Svo eru menn að væla útaf einhverjum þúsundköllum sem menn í nauð hafa þurft! Frekar vel skipulagt hjá honum, hann kemst meira að segja upp með þetta! Eða það er það sem hann heldur....

Bankarán færast í aukana (72 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Allir þeir sem hafa fylgst með fréttum undanfarið hafa tekið eftir því hve mikið hefur verið um bankarán…oftast einhver einn aðili, ungur karlmaður, sem hugsar sér að auðvelt sé að ræna banka á Íslandi og góð leið til að afla sér peninga fljótt. Nú spyr ég, er ekki kominn tími á að hafa öryggisgæslu í bönkum á höfuðborgarsvæðinu í dag? Þetta tíðkast erlendis og ég gæti ekki séð neitt af því að þetta væri hérna á Íslandi. Þessir bankar eru að skilja milljörðum í hagnaði ár eftir ár og mér...

Enterprise, þriðja sería hafin (mögulegur spoiler) (18 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jæja, nú er þriðja serían af Enterprise hafin og er ég voðalega spenntur. Búinn að sjá fyrsta þáttinn, og mun sjá vonandi þátt númer 2 seinna í kvöld. Ég hlakkaði voðalega til að sjá fyrsta þáttinn af seríunni, þar sem spennan var í hámarki við lok síðasta þáttar af seríu númer 2. En…fyrsti þátturinn ekki eins spennandi og ég átti von á, svona miðlungs enterprise þáttur. Er ég búinn að skoða þá þætti sem eru framundan, fyrstu 7 þættina af þriðju seríunni, og svo virðist sem vera að...

The Original Series (16 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Jæja, nú hef ég nýlokið því að horfa á alla TOS þættina frá upphafi til enda í réttri röð og tók ég mér 3 mánuði u.þ.b. til að leigja spólurnar í Laugarásvídeó. Reyndar er ég núna búinn að sjá ALLA Star Trek þætti (TOS, TNG, DS9, VOY, ENT). Þannig að ég er í góðum málum að bera saman seríurnar. TOS með Kirk, Spock og Bones í fararbroddi verð ég að segja að sé alveg ótrúlega góð sería með miklu drama, ráðgátum, spennu og húmor. Sterkir karakterar. Þótt TOS sé frá 1967 þá er alveg ótrúlegt...

Hefur Davíð setið of lengi? (37 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Ég er ekki talsmaður fyrir neinn sérstakan stjórnmálaflokk, og er ekki að hvetja fólk til þess að kjósa einhvern ákveðinn flokk. Nú hef ég verið að velta fyrir mér hve lengi hann Davíð Oddsson hefur setið, lengst allra forsætisráðherra. Sá tími hefur verið ágætur en nú er kominn tími á að hann fari. Það er hollt fyrir lýðræðislega stjórn þessa lands að skipta reglulega út mönnum í æðstu stjórnþrepum ríkisins. Mér finnst sem Davíð sé búinn að koma sér óþægilega vel fyrir í hásæti sínu, hann...

Skólakerfið á Íslandi! (26 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég er 22ja ára gamall, og stunda nám í Fjölbraut við Ármúla. Kveikjan að þessari grein var greinin “Frjáls mæting í Framhaldsskólum”, en þó var ég búinn að hugsa um þessi mál í nokkurn tíma. Umfjöllunarefnið mitt er “Kennsluhættir í framhaldsskólum landsins”, en brottfall nemenda úr framhaldsskólum er gríðarlega hátt á íslandi miðað við önnur lönd og vil ég reyna rekja ástæður þess aðeins. Ástæðurnar fyrir þessu brottfalli eru margvíslegar, mætti nefna einhæfa námsmöguleika, félagslegar...

Albert Einstein (18 álit)

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi mun ég flytja á morgun í SAG203 í FÁ, endilega commentið :D Óhætt er að segja að Albert Einstein hafi verið einn fremsti vísindamaður og hugsuður sem hefur verið uppi, skilningur hans á alheiminum, virkni hans og efnissamsetningu, var gríðarlegur og var hann langt á undan sinni samtíð. Setti hann fram ýmsar mikilvægar kenningar sem áttu eftir að gjörbreyta sýn manna á virkni alheimsins. Albert Einstein fæddist í Þýskalandi árið 1879, foreldrar hans voru Hermann og Pauline...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok