Ég held því fram, að tilgangur lífsins sé hamingja. Og það sem ég er hamingjusöm hefur líf mitt tilgang. Ég á yndislega vini, gengur vel í skóla, fjölskyldan mín er frábær, er í vel launaðri vinnu sem er ekki 9-5 (túlkur) og kemst í frí einu sinni á ári, þar sem ég sleppi algerlega af mér beislinu, lifi í lestum og farfuglaheimilum, og upplifi eitthvað nýtt. Við þurfum í rauninni frekar lítið af peningum, getum alveg sleppt því að eiga gemsa, tölvur, sjónvörp og bíla (ég á ekki helminginn af...