Æi mér fannst þessi mynd bara frekar leiðinleg, tilgerðarleg og alltof löng og langdregin. En kannski var það bara út af því að mér er illa við epískar stórmydir almennt. Ég veit nú ekki hversu gáfulegt það er að segja frá endi myndarinnar, þeir sem myndu vilja sjá hana verða svekktir, það væri við hæfi að setja spoiler-aðvörun fremst. En eins og segi, þá finnst mér hún ofmetin og í heildina frekar leiðinleg, en kannski er það bara út af því að ég er miklu meira fyrir raunsæjar nútímamyndir.