Já ég er alveg nákvæmlega sammála, í búðum eru bara föt fyrir stelpur sem eru 1,75 og nota stærð 38, með skóstærð númer 39 og B eða C brjóstahaldara! Ég er sjálf 1,65 og lendi alltaf í því að þurfa að stytta buxur eða bretta uppá þær. Um daginn fann ég gallabuxur sem voru akkúrat fyrir mig, og vá, ég var svö glöð að ég keypti þær strax! Þetta hafa samt örugglega átt að vera hnébuxur eða eitthvað… Semsagt, meira úrval af stærðum í búðir!